Niðurstöður skýrslu sem var unnin fyrir siðanefnd Alþjóðabankans var að Georgieva, sem þá var forstjóri bankans, og forseti hans hefðu sett þrýsting á starfsmenn að eiga við gögn til að fegra stöðu Kína á lista yfir þau ríki þar sem best er að stunda viðskipti í heiminum árið 2017.
Georgieva tók við stöðu framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í október árið 2019. Stjórn sjóðsins fundaði stíft um ásakanirnar og framtíð Georgievu um helgina og fram á gærdaginn.
Á endanum komst stjórnin að þeirri niðurstöðu að ekki væri nægilega sannað að Georgieva hefði gert nokkuð rangt hjá Alþjóðabankanum.
„Eftir að hafa skoðað öllu sönnunargögnin sem voru lögð fram ítrekað framkvæmdastjórnin full traust sitt á forystu framkvæmdastjórans og getu hans til að halda áfram að gegna skyldum sínum,“ sagði stjórnin í yfirlýsingu, að sögn AP-fréttastofunnar.
Sú yfirlýsing var með þeim fyrirvara að enn standi yfir rannsókn á vegum Alþjóðabankans. Bandaríkjastjórn áskilji sér rétt til að fylgjast grannt með framvindu þeirrar rannsóknar. Janet Yellen, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sagði að skýrsla Alþjóðabankans hafi leitt í ljós raunveruleg álitamál en að í ljósi skorts á frekari sönnunargögnum um beina aðild Georgievu að misferli væri ekki grundvöllur til þess að skipta henni út.
Georgieva hefur hafnað allri sök og sakað skýrsluhöfunda um að neita að leyfa sér að bregðast við ásökununum. Á þeim tíma sem hún og Jim Yong Kim, forseti Alþjóðabankans, eiga að hafa beitt sér í þágu Kína reyndu þau að sannfæra stjórnvöld í Beijing til þess að leggja bankanum til aukið hlutafé.
Framkvæmdastjórinn er einnig sagður hafa beitt sér á vafasaman hátt hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í sumar. Bloomberg-fréttastofan sagði frá því að árlegri úttektarskýrslu um Brasilíu hefði verið breytt og varúðarorð um loftslagsbreytingar fjarlægð eftir að Georgieva ræddi persónulega við fulltrúa ríkisstjórnar Jairs Bolsonaro.