Skoðun

Há­skóli hluta Ís­lands

Einar Freyr Elínarson skrifar

Háskóli Íslands hefur lengi verið eftirbátur annarra skóla þegar kemur að framboði og gæðum fjarnáms. Það er ekki skoðun heldur staðreynd byggð á tölum um framboð fjarnáms.

Ástæðurnar eru óljósar fyrir því að skólinn virðist staðráðinn í að viðhalda frekar þeim úreltu viðhorfum að nauðsynlegt sé að sitja í skólastofu í borginni. Forstöðumenn skólans hafa gefið fögur fyrirheit um að það horfi til betri vegar og að auka eigi framboð fjarnáms. Fjölmargir geta hins vegar vitnað um það að fátt gefur tilefni til þess að vera bjartsýnn um að staðið verði við þau fyrirheit. Viðhorf skólans til þeirra sem búa utan höfuðborgarsvæðisins og hafa reynt að nema við skólann hafa oft á tíðum verið ótrúlega ómálefnaleg og óskiljanleg. Af mörgum kennurum er lögð höfuðáhersla á að nemendur mæti á staðinn – hreinlega af því bara og telja sig ekki þurfa að færa fyrir því nein rök. Verði handvömm á því að fyrirlestur komist til skila á netið er einfaldlega sagt; þetta er ekki fjarnám og þið eigið að mæta á staðinn.

Það sem helst dregur úr trú manns á að skólinn bæti ráð sitt er það stórfurðulega viðhorf HÍ að ekki eitt einasta stöðugildi við skólann geti verið án staðsetningar. Þannig virðist skólinn handviss um það að hvergi á Íslandi, nema á höfuðborgarsvæðinu, sé að finna einstaklinga sem séu til þess færir að kenna við Háskóla Íslands, nema að flytja rakleiðis í borgina og taka upp aðsetur í fílabeinsturninum. Hvers vegna ætti maður að treysta stjórnendum skólans til þess að koma til móts við mögulega nemendur af landsbyggðinni fyrst þetta eru ríkjandi viðhorf í starfsmannamálum?

Fyrir þá sem vilja búa utan höfuðborgarsvæðisins getur skipt gríðarlegu máli að hafa möguleika til að læra það sem er innan þeirra áhugasviðs. Háskóli Ísland býður upp á ótrúlega fjölbreytt námsframboð og það er sorglegt að fólk sem býr á landsbyggðinni skuli ekki getað notið þess framboðs án þess að flytja í borgina. Fyrir því eru engin málefnaleg rök í dag.

Það voru ótrúlega ánægjuleg tíðindi að lesa um daginn að ráðherra háskólamála Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skyldi gefa það út að nær öll störf í ráðuneyti hennar yrðu auglýst sem störf án staðsetningar. Vonandi munu fleiri ráðherrar fylgja hennar fordæmi. Ég skora á Áslaugu Örnu að funda með rektori Háskóla Íslands og koma því til leiðar að allt nám, sem ekki þarf í eðli sínu að vera staðnám, verði héðan í frá skilgreint sem án staðsetningar og þannig í boði sem fjarnám.

Þó fyrr hefði verið!

Höfundur er oddviti Mýrdalshrepps.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×