Skoðun

Byggjum á því sem virkar – raun­veru­legar að­gerðir i hús­næðis­málum!

Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar

Staðan á húsnæðismarkaði hefur varla farið fram hjá neinum síðustu misseri. Fasteignaverð heldur áfram að hækka og er það orðið nánast ómöglegt fyrir fyrstu kaupendur að festa kaup á íbúð. Mörgu hefur verið slengt fram í umræðunni, oft til að slá pólitískar keilur og koma fram með einfaldar lausnir á flóknum vanda. Ljóst er að opinber inngrip og eftirlit á húsnæðismarkaði er nauðsynlegt til að viðhalda stöðugleika og tryggja framboð sem mætir þörfum almennings hverju sinni. Það liggur fyrir að núverandi aðgerðir stjórnvalda hafa staðið undir um þriðjungi húsnæðisuppbyggingar síðustu ár - en betur má ef duga skal.

Almenna íbúðakerfið með óhagnaðardrifnum leigufélögum á borð við Bjarg hefur þegar sannað gildi sitt. Hægt er að auka stofnframlög og auka þannig framboðið af almennum íbúðum. Fleiri aðilar, til dæmis Reykjavíkurborg, geta stofnað leigufélag inn í almenna íbúðakerfið. Auk þess að efla almenna íbúðakerfið þurfa stjórnvöld að skoða endurreisn félagslega eignaíbúðakerfisins að fullri alvöru til að fjölga megi valkostum á húsnæðismarkaði. Fleiri sveitarfélög hér á höfuðborgarsvæðinu geta tekið frekari þátt í uppbyggingu almenna íbúðakerfisins en tæp 90% af almennum íbúðum eru í Reykjavík. Auk þess sem 62% húsnæðisuppbyggingar í borginni var á vegum óhagnaðardrifinna félaga árið 2021.

Hlutdeildarlánin eru ætluð fyrstu kaupendum til að auðvelda þeim að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Mikilvægt er útvíkka það kerfi og efla enn frekar til framtíðar. Standa þarf vörð um opinberan húsnæðissjóð að norrænni fyrirmynd til að fjármagna slíka lánastarfssemi og uppbyggingu. En auk þess að tryggja að fólk geti keypt eða leigt húsnæði á viðráðanlegum kjörum þarf að tryggja framboð húsnæðis sem mætir þörfum fólks. Það má gera með fjölbreyttum leiðum; til dæmis með hagstæðri fjármögnun til uppbyggingaraðila hagkvæms húsnæðis, eflingu almenna íbúðakerfisins eða stofnun opinbers húsnæðisfélags i eigu ríkis og / eða sveitarfélaga og skoða einnig endurreisn félagslega eignaíbúðakerfisins.

Byggjum á þvi sem virkar, sagði forseti ASÍ í Silfri Eigils á dögunum. Ég tek fyllilega undir þau orð, byggjum rétt, byggjum nóg og byggjum fyrir fólk en ekki fjármagn.

Höfundur er varaborgarfulltrúi Vinstri grænna.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×