Skoðun

Tölu­verð fjölgun á göngu- og hjóla­leiðum í Hafnar­firði

Hilmar Ingimundarson skrifar

Göngu- og hjólaleiðum, sem hluti af samgöngukerfi Hafnarfjarðar, hefur fjölgað töluvert á umliðnum árum og er ánægjulegt að sjá að þeim fjölgar stöðugt sem kjósa að nýta sér þennan virka samgöngumáta reglulega. Við undirritun Samgöngusáttmálans árið 2019 einsettum við Hafnfirðingar okkur, sem hluta af því samkomulagi, að auka enn frekar vægi gangandi og hjólandi umferðar. Markmiðið er að 30% allra ferða verði með þeim hætti fyrir árið 2040. Það er metnaðarfullt og eftirsóknarvert markmið.

Hjóla- og göngustígar sem tengja höfuðborgarsvæðið

Með því að skapa aðstæður sem hvetja fólk til að nýta fleiri samgöngumáta fjölgum við þeim sem vilja ferðast gangandi eða á hjóli og stuðlum þar með að heilsueflingu og minni kolefnislosun. Næsta verkefni er að ráðast í gerð nýrrar aðgerðaáætlunar um hjóla- og göngustíga innan bæjarmarkanna með það að markmiði að tengjast betur nágrannasveitarfélögunum og auðvelda fólki þannig að komast leiðar sinnar um höfuðborgarsvæðið. Samkvæmt núgildandi Samgöngusáttmála munu um 8,2 milljarðar króna renna úr ríkissjóði til þessa verkefnis á öllu höfuðborgarsvæðinu á næstu tuttugu árum.

Uppland Hafnarfjarðar upplagt fyrir hjólreiðar

Verðugt verkefni er jafnframt að koma helstu hjólaleiðum inn í GoogleMaps til þess að auðvelda val um öruggustu og fljótlegustu leiðirnar. Einnig þarf að koma upp hjólabrautum (e. pumptrack) til að auka við þjálfunar- og afþreyingarmöguleika þeirra sem vilja efla hjólafærni sína. Jafnframt þarf að tryggja að upplandið okkar verði áhugaverður áfangastaður fyrir sívaxandi fjölda þeirra sem stunda malar- og fjallahjólreiðar. Markmiðin þurfa síðan að vera mælanleg og tímasett til að bæjarbúar geti fylgst með framvindu mála.

Það er heilsusamlegt að hjóla

Hjólreiðar hafa nú öðlast viðurkenndan sess sem fýsilegur ferðamáti. Ánægjulegt er að sjá hvað þeim hefur fjölgað mjög sem vilja nýta sér stofnstíga bæjarins til að komast til vinnu, fara á milli staða eða til heilsueflingar. Við viljum vissulega gera mun betur og því er mikilvægt að uppfæra núverandi hjólreiðaáætlun til að auka enn frekar vægi þessara virku ferðamáta og gera fleirum kleift að velja þá. Hjólreiðar eru hagkvæmur, heilsusamlegur og skemmtilegur ferðamáti og styðja vel við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem er leiðarljós í framtíðarsýn og heildarstefnu Hafnarfjarðar.

Hjólum inn í sumarið - örugg og vel áttuð!

Höfundur skipar 9. sæti á lista Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×