Í Hönnunarsafni Íslands stendur nú yfir yfirlitssýning um sundmenningu á Íslandi. Á vef safnsins segir að mikilvægustu almannagæðin á Íslandi séu fólgin í heita vatninu. Athyglisverðustu almannarýmin séu sundlaugarnar. Laugarnar séu vettvangur þar sem ókunnugir hittast og verða jafnvel málkunnugir, staðir þar sem samfélagið birtist sjálfu sér — á sundfötum.
Nú hafa þrír háskólanema fengið styrk úr nýsköpunarsjóði námsmanna til að gera verkefnið Sundferðir í tengslum við sýninguna.
Um er að ræða þrjár sérhannaðar sundferðir sem almenningur getur nálgast á vefsíðunni sundferðir.com og valið sundferðalag um Vestfirði, Vesturland eða Suðurland.
Á síðunni er vegakort sem sýnir í hvaða röð er mælt með að fara í laugarnar. Þar má einnig finna ýmsan fróðleik svo sem upprunalegan tilgang lauganna og séreinkenni ásamt fallegu myndefni sem lýsir stemningunni á hverjum stað. Vefsíðan er blanda fróðleiks og skemmtunar og ætti að kveikja áhuga á ferðafyrirkomulagi sem er rakið að stunda á Íslandi.
Á kortinu hér að neðan má sjá sundferðalagið um Vestfirði en ljóst er að ferðalagið gæti tekið drjúgan tíma ef ferðalangar fara í allar laugarnar og njóta þeirra til hins ýtrasta.
Sigríður Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafnsins var leiðbeinandi í verkefninu en að því komu háskólanemarnir Katrín Snorradóttir nemandi í MA í Þjóðfræði , Móna Lea Óttarsdóttir nemandi í vöruhönnun og Ragnheiður Stefánsdóttir nemandi í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands.
Nemendurnir fóru sjálfar í allar laugarnar, hittu gesti og umsjónarmenn lauganna og fræddust um hvern stað fyrir sig.