Alls eru 16 leikmenn í hópnum sem Pedersen gat valið úr og því eru fjórir þeirra sem ekki verða með í kvöld.
Leikur Íslands og Hollands er lokaleikur liðanna í fyrri hluta undankeppni HM 2023, en hópinn sem mætir til leiks í kvöld má sjá hér fyrir neðan. Inni í sviga má sjá fjölda landsleikja sem hver leikmaður hefur spilað.
Elvar Már Friðriksson - Derthona Basket, Ítalíu (73)
Haukur Helgi Briem Pálsson - Njarðvík (69)
Hörður Axel Vilhjálmsson - Keflavík (92)
Jón Axel Guðmundsson - Hakro Merlins Crailsheim, Þýskaland (19)
Kári Jónsson - Valur (25)
Ólafur Ólafsson - Grindavík (49)
Ragnar Ágúst Nathanaelsson - Stjarnan (56)
Sigtryggur Arnar Björnsson - Tindastóll (21)
Styrmir Snær Þrastarson - Davidson, USA (2)
Tryggvi Snær Hlinason - Basket Zaragoza, Spáni (51)
Þórir G. Þorbjarnarsson - Landstede Hammers, Hollandi (17)
Ægir Þór Steinarsson - Gipuzkoa Basket, Spáni (73)
Þeir Gunnar Ólafsson, Hilmar Smári Henningsson, Hilmar Pétursson og Kristinn Pálsson voru í æfingahópnum en verða ekki með í leiknum í kvöld.