Rússar ná enn að valda miklu eigna- og manntjóni með árásum á borgir og bæi í Úkraínu. Nú er talið að 31 hafi fallið í árás þeirra á íbúðahverfi í bænum Chasiv Yar skammt suður af stjórnsýsluborginni Kramatorsk í Donetsk héraði á laugardag, þar sem tugir að auki særðust. Bærinn er heimabær Úkraínuforseta.
Úkraínumenn segjast líka hafa náð árangri með nýfengnum langdrægum fjölodda færanlegum skotpöllum sem þeir fengu frá Bandaríkjamönnum. Þeir hafi sprengt hergagnageymslu Rússa í bænum Nova Kakhovka í suðurhluta landsins í gær og fellt þar með tugi rússneskra hermanna. Rússneska ríkissjónvarpið sakar Úkraínumenn hins vegar um stríðsglæpi og segir eldflaugarnar hafa lent á íbúðarhúsnæði.

Evrópusambandið hefur búist við að Rússar skrúfi fyrir gasflutninga til Evrópuríkja og í gær skrúfuðu þeir algerlega fyrir flutninga með Nord Stream 1 lögninni til Þýskalands. Túrbína úr Nord Stream 1 hefur verið í viðgerð í Kanada og ætla Kanadamenn að skila henni aftur til Þýsklanda nú þegar viðgerð er lokið.

Volodymyr Zelenskyy forseti Úkraínu segir það brot á alþjóðlegum refsiaðgerðum gegn Rússum.

„Ef hryðjuverkaríki getur þvingað fram svona undanþágu frá refsiaðgerðum hvaða undanþágu vill það fá á morgun eða hinn daginn? Þetta er mjög hættuleg spurning. Hún er ekki bara hættuleg fyrir Úkraínu heldur öllum löndum hins lýðræðislega heims,“ sagði Zelenskyy í gærkvöldi.
Þótt Rússum hafi ekki tekist að ná annarri stærstu borg Úkraínu, Kharkiv, á sitt vald í upphafi stríðsins, halda þeir enn uppi stórskotaliðs- og eldflaugaárásum á borgina. Þar féllu þrír og fjöldi særðist í gær.
Nadezhda Slezhuk, 76 ára íbúi Kharkiv vandar Vladimir Putin forseta Rússlands ekki kveðjurnar.
„Pútín, þú ert skepna. Hvað hefurðu gert? Það er gamalt fólk hérna og þú ferð svo illa með það. Þú munt brenna í helvíti ásamt þínu fólki. En það er ekki fólkinu að kenna. Það er þér að kenna. Hvernig geturðu gert svona lagað,“ sagði miður sín þar sem hún stóð framan við húsarústir.