Tölvuleikjaframleiðandinn EA Sports kynnti í gær nýjustu útgáfu leiksins. Í tilkynningunni kemur fram að Kerr muni vera andlit leiksins, ásamt frönsku stórstjörnunni Kylian Mbappé. Franski framherjinn er andlit leiksins þriðja árið í röð.
Presenting your #FIFA23 Cover Stars:@samkerr1 and @KMbappe ⭐️⭐️
— EA SPORTS FIFA (@EASPORTSFIFA) July 18, 2022
Two phenomenal forces up front.
One ultimate strike partnership.
See the full reveal on July 20 ➡ https://t.co/yjXnlCteDR pic.twitter.com/oOWyqoqBzB
Þetta verður í fyrsta skipti sem kona verður andlit heimsútgáfu leiksins sem kom fyrst út árið 1993 og hét þá FIFA International Soccer, en síðan eru liðin tæp þrjátíu ár.
Þetta verður þó ekki í fyrsta skipti sem kona verður andlit leiksins. Árið 2016 var hin bandaríska Alex Morgan sem prýddi forsíðu leiksins í heimalandinu og Christine Sinclair, fyrirliði kanadíska landsliðsins, var á útgáfunni í Kanada.
Kerr átti frábært tímabil með Chelsea í ensku WSL-deildinni á seinasta tímabili þar sem liðið tryggði sér Englandsmeistaratitilinn og FA-bikarinn. Hún varð markahæsti leikmaður deildarinnar með 20 mörk í 22 leikjum, og var valin leikmaður tímabilsins af samtökum knattspyrnublaðamanna.
Þetta verður áttunda árið í röð þar sem hægt verður að spila með kvennaliðum í leiknum. Hingað til hefur þó aðeins verið hægt að spila með kvennalandslið, en líklegt þykir að enska WSL-deildin verði með í þessari útgáfu.
Þá verður þetta seinasta útgáfa FIFA-leiksins sem verður gefin út af EA Sports þar sem samningaviðræður tölvuleikjaframleiðandans við alþjóðaknattspyrnusambandið sigldu í strand í vor.