Skoðun

Vegna um­fjöllunar um leik­skólann Sælu­kot

Elín Halldórsdóttir skrifar

Ég undirrituð hef þurft að lesa greinar og hlusta á viðtöl í fjölmiðlum síðustu 2 daga þar sem fram koma ótrúlegustu rangfærslur um skólastarf leikskólans Sælukots sem á að baki 46 ára starf.

Á sama tíma og leikskólastarf í landinu á undir högg að sækja þar sem ekki er borin nógu mikil virðing fyrir starfinu og laun yfirleitt undir eða í meðallagi miðað við aðrar greinar blása fjölmiðlar til stórsóknar á lítinn einkarekinn leikskóla undir yfirskini aðsendrar greinar frá 3 fyrrverandi starfsmönnum og einu fyrrverandi foreldri.

Ég hef síðustu 2 daga þurft að taka símtöl þar sem foreldrar fyrrum leikskólabarna í Sælukoti harma þessa hræðilegu umfjöllun út af því að hún samræmist ekki þeirra reynslu en einnig hef ég þurft að svara áhyggjufullum foreldrum. Að sjálfsögðu er alltaf gott að fá uppbyggilega gagnrýni og ábendingar og það vilja allar skólastofnanir það er aftur á móti annað mál að fá bylgju af uppspuna og ósannindum yfir sig.

Ég hef þurft að hlusta á það í útvarpinu að enginn faglegur leikskólastjóri starfi við skólann. Að skólinn tengist hryðjuverkasamtökum, að skólavistin jafnist á við fangabúðir svo eitthvað sé nefnt. Hér er vegið að litlum skóla með alþjóðlega sögu og alþjóðlega nemendur og starfsfólk með ótrúlegum hætti. Rekstrarstjóri leikskólans sem er nunna er nú orðin hryðjuverkamaður í íslenskum fjölmiðlum og stóreignakona. Börnin eru orðin að þrælum og starfsfólkið allt er ófaglegt og örugglega með hor í nös.

Vegið er að starfsumhverfi lítilla barna sem eðlilega geta hvorki staðfest né upplýst um það sem fleygt er í fjölmiðla og frænkur og frændur setja heilu barnafjölskyldurnar í geðshræringu eftir stóryrtar tröllasögur þekktra fjölmiðla.

Vafalítið kemur þetta sér býsna vel fyrir borgaryfirvöld sem standa í strangri baráttu við foreldra ungra barna sem hvergi fá leikskólapláss að beina nú allri athyglinni á einn lítinn ómerkilegan leikskóla með “útlenskum” börnum, Þá geta þau bara haldið áfram að nota borgarsjóð í pálmatré og bragga í friði.

Það mál sem fjallað hefur verið mikið um í miðlunum og tengdist áreiti og nefnt er í greininni umtöluðu fór í gegnum eðlilegt ferli í kerfinu lögreglu, barnavernd og eftirlitsaðila frá borginni og var afgreitt án ákæru.

Uppspretta alls þessa máls er aðsend grein í Vísi, full af rangfærslum. Þess ber að geta að 3 af þeim 4 sem rita greinina eru fyrrverandi starfsmenn leikskólans. Einn þeirra lýsti brottrekstri sínum frá störfum vel í Bylgjuviðtali nýverið þar sem hann kvaðst ekki hafa staðið sig. Þar með er nokkuð ljóst að hér hafa siðareglur starfsfólks skóla verið margbrotnar á ótrúlegan hátt af þessum „fullkomlega faglegu” greinarriturum.

Sem Leikskólastjóri Sælukots bið ég alla þá sem upphafa stóryrði eða rita eða tala í fjölmiðlum um leikskólann Sælukot og starfsumhverfi lítilla barna að sýna litlum börnum og þeirra starfsumhverfi tilhlýðilega virðingu og kynna sér málin áður en farið er í skotgrafirnar. Ást og friður.

Höfundur er leikskólastjóri Sælukots.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×