Parið deildi gleðitíðindunum á Instagram og birtu mynd af hendi barnsins og dagsetningunni 19.05.23 ásamt bláu hjarta-tjákni. Miðað við hamingjuóskirnar sem rigna yfir nýbökuðu foreldrunum er ljóst að um lítinn dreng sé að ræða.
„Innilega til hamingju með prinsinn,“ skrifar ein. „Innilega til hamingju með hann,“ skrifar önnur.
Saga komst að því að hún væri barnshafandi þegar millistig keppninnar fór fram í Salnum í Kópavogi í fyrra og þurfti að læra að beita annarri tækni þegar lengra leið á meðgönguna.
Saga hefur sungið sig inn í hug og hjörtu þjóðarinnar og bar sigur úr býtum í Idol í febrúar síðastliðnum.
Brot úr flutningi Sögu Matthildar á laginu A Change is Gonna Come með Sam Cooke, á úrslitakvöldi Idol.