Ekki er tæknilega um sýndarveruleikagleraugu að ræða, þar sem notendur munu geta horft í kringum sig og séð umhverfi sitt og bætt við það. Gleraugun flokkast heldur ekki undir það sem á ensku er kallað „augmented reality“ sem á íslensku getur kallast „viðbótarveruleiki“, þar sem notendur sjá umhverfi sitt í gegnum myndavélar á gleraugunum.
Gleraugun blanda í raun sýndarveruleika og viðbótarveruleika.
Apple kallar gleraugun „rýmistölvu“. Gleraugun líkjast hvað helst skíðagleraugum og eiga að gera skjái svo gott sem tilgangslausa.
Notendur Apple Vision Pro nota röddina og handahreyfingar til að stýra forritum gleraugnanna. Í tilkynningu frá Apple segir að skjáir gleraugnanna sýni 23 milljónir pixla og notendum eigi að finnast sem forrit þeirra séu raunverulega fyrir framan þau.
„Sköpun fyrstu rýmistölvunnar okkar þarfnaðist nýsköpunar á nánast öllum sviðum búnaðarins,“ er haft eftir Mike Rockwell, sem stýrir tækniþróun hjá Apple. Hann segir að þetta hafi tekst með því að láta búnað og hugbúnað vinna saman en Rockwell segir gleraugun vera háþróaðasta persónulega rafeindabúnað sem framleiddur hefur verið.
Áhugasamir geta fundið frekari upplýsingar á vef Apple.
Ekki fyrstir á svið, en fremstir
Microsoft hefur lengi verið með sambærileg gleraugu í þróun sem kallast Hololens. Google hefur einnig látið reyna á svipaða tækni með Google Glass og Meta með Quest Pro gleraugunum. Enn sem komið er hafa þessi viðbótarveruleikagleruaugu ekki vakið mikla lukku meðal almennra notenda.
Tækniblaðamenn hafa fengið að prófa gleraugun og virðast sammála um að þau standi öðrum fremur. Blaðamaður The Verge segir til að mynda að gæði skjáa gleraugnanna séu merkilega góð en hann hafði samt spurningar um hve stórt sjónsvið gleraugnanna. Það væri ekki eins og sýnt hefði verið í myndbandinu.
Blaðamaður CNet sló á svipaða strengi. Hann sagði gæðin í mynd gleraugnanna vera ótrúleg. Þá segir hann að gleraugun séu þægileg en ekki sé hægt að nota þau með hefðbundnum gleraugum. Blaðamaðurinn sagði einnig að gleraugun stæðu öðrum framar þegar kæmi að því að stýra kerfinu með höndunum. Það virkaði mun betur en í sambærilegum græjum.
Þá segir blaðamaður TechCrunch að þó gleraugun virðist ekki standast það sem Apple lofar í kynningarmyndbandinu sé Apple að taka stærðarinnar skref fram á við í blönduðum veruleika.
Gleraugun eiga að kosta 3.500 dali vestanhafs, sem samsvarar um hálfri milljón króna.