Ók um á vespu og skaut fólk af handahófi Samúel Karl Ólason skrifar 9. júlí 2023 14:19 AP/Lögreglan í New York Lögreglan í New York segist hafa handtekið mann sem ók um götur borgarinnar í gær á vespu og skaut á fólk af handahófi. Hann skaut einn 87 ára gamlan mann til bana og særði þrjá aðra.
Minnst eitt af fórnarlömbum árásarmannsins er sagt í alvarlegu ástandi en sá fékk skot í höfuðið. Öryggismyndavélar fönguðu árásarmanninn en hann var handtekinn um tveimur tímum eftir fyrstu skotárásina og var það eftir að kennsl voru borin á hann út frá myndum sem sendar voru á alla lögregluþjóna borgarinnar. Maðurinn hefur ekki verið nafngreindur en er sagður vera 25 ára gamall. Tilefni árásarinnar liggur ekki fyrir en lögreglan segir að maðurinn hafi líklega valið fórnarlömb sín af handahófi. Lögreglan segir hann hafa einu sinni áður verið handtekinn í New York. Hér að neðan má sjá blaðamannafund sem haldinn var í New York í gær. Fyrsta árásin átti sér stað um klukkan 11:10 í gærmorgun að staðartíma. Þá særðist 21 árs maður. Sautján mínútum síðar var maðurinn sem lést skotinn margsinnis og lést hann á sjúkrahúsi. Skömmu síðar skaut maðurinn á hóp fólks sem stóð á götuhorni en hann hæfði engan. Því næst skaut hann 44 ára gamlan mann í höfuðið. Sá er á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi, eins og áður hefur komið fram. Einni mínútu eftir það skaut árásarmaðurinn 63 ára gamlan mann í búkinn. Sá er sagður í stöðugu ástandi.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Innlent Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Innlent Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Innlent Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Innlent Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Innlent „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Innlent Fleiri fréttir „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Á annað hundrað látnir í Mjanmar „Það er skítkalt hérna“ Sænskur blaðamaður handtekinn í Tyrklandi Sjá meira