Vísir greindi í gær frá máli sem snýr að óánægju íbúa á Hellu með hátt vöruverð Kjörbúðarinnar. Í samtali við Vísi sagði íbúi í nágrenni við Hellu að Hellubúar sneiði gagngert framhjá því að versla við Kjörbúðina vegna þess hve hátt vöruverðið er.
Þá fékk Vísir staðfest í dag um að raunverulegt verð kattamatarins í Fjarðarkaupum væru 478 krónur, sem er 241 krónu minna en í Kjörbúðinni á Hellu, sem er 719 krónur.
Fréttamaður hafði í gær samband við Jón Jónsson verslunarstjóra Kjörbúðarinnar, sem vísaði á Hauk Benediktsson, Rekstrarstjóra Kjörbúða og Krambúða. Haukur vísaði á Gunni Líf Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra verslunar- og mannauðssviðs.

Í skriflegu svari hennar sem barst í dag segir að lykilvörur eins og heimilisbrauð og mjólk séu á sama verði í Kjörbúðinni og í lágvöruverslunum. Þá séu aðrar vörur, sem ekki teljast til lykilvara, dýrari. Í tengslum við kattanammið sem Vísir fjallaði um í gær segir að umtalsverðar verðhækkanir hafi borist frá birgjum, að meðaltali um 10 prósent, en útsöluverð Samkaupa hafi ekki hækkað í samræmi við það. Þá leitist fyrirtækið ávallt eftir því að Kjörbúðin sé góður kostur fyrir fólk á landsbyggðinni.
Svar Gunnar í heild sinni má sjá hér að neðan:
Við verðlagningu í Kjörbúðinni leitumst við að bjóða samkeppnishæf verð og vera hagstæður kostur fyrir fólk á landsbyggðinni. Í Kjörbúðinni eru yfir 1000 vörur, sem eru svokallaðar lykilvörur , eins og á heimilisbrauð og mjólk, á sama verði og lágvöruverslanir. Til að vega upp á móti því er munurinn á vörum sem við flokkum ekki sem lykilvörur, eins og kattarnammi, því meiri.Sem dæmi er nýmjólkin í Kjörbúðinni er á sama verði og Nettó, 206 kr., sem er samkeppnishæft við aðra aðila á markaði. Þá býður Samkaup einnig upp á 2% inneign af öllum innkaupum í gegnum vildarkerfið, sem gefur viðskiptavinum tækifæri til að gera enn hagstæðari innkaup.
Hvað varðar verðmun á þessu kattarnammi í Kjörbúð og Fjarðarkaup erum við að bjóða verð í samræmi við innkaupaverð frá okkar birgja . Frá 1.janúar 2023 hefur Samkaupum borist umtalsverðar verðhækkanir frá birgjum, að meðaltali um 10%, en við höfum séð til þess að útsöluverð okkar hafi ekki hækkað í samræm i .
Það er ávallt leitast eftir því að Kjörbúðin sé góður kostur fyrir fólk á landsbyggðinni og mæta þörfum þeirra sem best .
Uppfært: Fréttastofu barst þær upplýsingar frá starfsmanni Fjarðarkaupa í morgun að raunverulegt verð á vörunni væru 263 krónur. Frá sama starfsmanni bárust upplýsingar í hádeginu um að verðið hafði í morgun hækkað um 205 krónur, upp í 478 krónur.