Skoðun

Undir skólans mennta­merki

Andri Már Þórarinsson skrifar

Við þúsundir sem höfum numið undir skólans menntamerki getum ekki annað en mótmælt af einurð og festu þeim vanhugsuðu breytingum stungið hefur verið upp á að gera á sterkasta menntaskóla landsins.

Þar hafa gegnum yfir 140 ár vinir mæst og mætast enn í dag.

Á öllum sviðum íslensks samfélags hafa nemendur þessa skóla sýnt í vilja og verki að ætíð er hægt að vinna í þágu samborgara sinna, ýtt undir vöxt og trú og bræðralag.

Eins mikilvægt og það er vera í framkanti allrar þróunar, sem án efa verður hraðari með ári hverju, er alltaf fremd að rækja forna dáð. Skólinn hefur í alla þessa tíð hjálpað konum og körlum að láta drauma sína rætast, fagrir draumar rætast enn.

Skólinn hefur frá stofnun á Möðruvöllum 1880 skapað nemendum sínum heill sem þangað sækja.

Ein af grunnþörfum mannsins er sú að tilheyra hóp. Skólinn hefur gríðarlega sterkar hefðir og sjálfímynd sem MA stúdentar er afar sterk hjá þeim er numið hafa við skólann, fólki sem hefur í gegnum tíðina komið frá öllum landshornum. Við höldum því ekki einungis saman Norðanmenn, heldur öll, sem stolt höfum útskrifast úr skólanum.

Lýðræðislegt samfélag og gildi byggjast á vilja þeirra sem þar taka þátt. Einstaklingar eru kosnir sem fulltrúar almennings, en það er ekki bara skylda okkar að einungis á kosningadag velja þessa, heldur er jafn mikilvægt að hægt sé að hafa áhrif á fulltrúanna, alla daga þar á milli. Enda skal ekki allt lúta einum vilja.

Ef hins vegar þessar algerlega misráðnu breytingar verða pressaðar í gegn, meiri hagsmunum fórnað fyrir minni og mennta- og menningarlegt uppbyggingarstarf rifið niður með deigum fjaðurpenna, þá skuli allt muna þennan dag.

Því víst er að stúdentar frá Menntaskólanum á Akureyri munu öll halda áfram að sýna á sjó og landi, sigurþrek hins vitra manns.

Við mótmælum þessu af festu og ákveðni, við viljum sýna að afl og andi, eigi, eins og fyrr, skólann norðanlands.

Höfundur var Inspector Scholae 1991 - 1992.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×