Ef Instagram-færslurnar birtast á ekki þá er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Fyrstu tónleikar barnsins
Birgitta Líf skellti sér til London með sambýlismanni sínum Enok Jónssyni. Þar hittu þau frænda Birgittu, rapparann Gísla Pálma, og skellti þríeykið sér á 50 cent tónleika. Birgitta Líf var glæsileg í magabol og leyfði óléttubumbunni að njóta sín. Hún birti myndasyrpu af rapptónleikunum á Instagram þar sem hún skrifaði: „Baby's first concert“.
Nægjusöm en skvísuleg tíska
Leikkonan og baráttukonan Aldís Amah skvísaði sig upp og hvetur fólk til að versla með nægjusemi í huga.
Skvísulæti í Manchester
Athafnakonan og áhrifavaldurinn Tanja Ýr átti gott gellukvöld í Manchester.
Sunnudags pelsinn
Gummi Kíró bað fólk að njóta sunnudagsins og skartaði svörtum pels á Kjarvalsstöðum.
Tinu Turner fjör í Hörpu
Dansarinn Sandra Helgadóttir kom fram á Tinu Turner heiðurstónleikum í Hörpu ásamt hópi úrvalssöngkvenna og öðrum dönsurum.
Bríet skín skært
Tónlistarkonan Bríet birti myndir af sér baksviðs frá Iceland Airwaves og hlakkar til að koma fram í Eldborg í desember.
Nýtur lífsins í New York
Fótboltakappinn og Iceguys meðlimurinn Rúrik Gíslason spókar sig um í New York í smart klæðnaði.
Óvænt afmæli
Leikkonan Íris Tanja fagnaði 34 ára afmæli sínu um helgina en hennar nánustu vinir komu henni heldur betur á óvart.
Sunneva Einars rokkaði bleikan síðkjól
Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir birti myndir frá Live Show-i hlaðvarpsins Teboðið sem haldið var í Gamla bíó. Sunneva klæddist bleikum síðkjól og virðist hafa átt dásamlegt kvöld, enda líður henni langbest þegar hún klæðist bleiku.
Söng fyrir pizzuröðina
Tónlistarmaðurinn Páll Óskar söng við opnun pizzastaðarins Pizza 107 og gat biðröðin notið ljúfra tóna hans.
Aldrei nóg af Evum
Grínistinn og skemmtikrafturinn Hjálmar Örn var í góðum málum með tveimur Evum.
Flygill fullur af tilfinningum
Listamaðurinn Snorri Ásmundsson birti mynd af sér við flygilinn og flytur listræna gjörninga með tilfinningarnar að vopni.
Fagnað í Kaupmannahöfn
Fasteignasalan Lind skellti sér í árshátíðarferð til Kaupmannahafnar. Fasteignasalinn, áhrifavaldurinn og dansarinn Tara Sif Birgisdóttir naut sín vel og var hin glæsilegasta.
Óp í Osló
Rapparinn, leikstjórinn og framleiðandinn Joey Christ birti mynd af sér við hið sögulega málverk Ópið eftir listmálarann Edvard Munch. Verkið er frá 1893 en myndin af Joey er nýleg.