Mitt í því kaupæði sem nú ríkir, en í dag er Svartur fössari og tilboðum rignir yfir landsmenn, má greina vaxandi andstöðu við þá neysluhyggju sem ríkir. Felix Bergsson leikari, útvarps- og sjónvarpsmaður, skemmtikraftur og rithöfundur, deilir á sinni Facebook-síðu sláandi upplýsingum; skilaboðum frá Góða hirðinum sem þeir þar kalla „Myrkar staðreyndir“:

Fjölmargir gefa merki til marks um að þeim hugnist skilaboðin og Freyr tekur upp þráðinn:
„„90% vörur sem við kaupum - enda í ruslinu innan 10 ára“ – „14 jarðir“. Þetta eru m.a. upplýsingar sem fékk á fyrirlestri í gær hjá Kristínu Völu Ragnarsdóttur, sem er umhverfisverkfræðingur og prófessor hjá HÍ. Annað er byggt á bandarískum rannsóknum,“ segir Freyr.
Hann bendir á að Black Friday sé bandarísk uppfinning og neyslu- og úrgangsmenning okkar og Bandaríkjanna sé býsna svipuð, það sýni flest gögn.
„Auðvitað er alltaf hægt að tæta svona tölfræði í sig með ýmsum aðferðum, en flestar mælingar og gögn styðja frekar þessar hrollvekjandi staðreyndir. Við erum Evrópumeistarar í raftækjaúrgangi, textílúrgangur fer vaxandi með hverju ári. Það er fínt að greina þetta og gagnrýna, en þetta er sett fram til þess að fá fólk til að staldra aðeins við á þessum sturlaða degi og gera sér grein fyrir því að það er mikill ábyrgðarhlutur að kaupa eitthvað drasl sem ekki endist lengi.“
En hvort þetta andóf gegn neyslubrjálæðinu stöðvi kaupóða Íslendinga er svo önnur saga.