„Þetta var góð frammistaða í dag. Við byrjuðum vel og skoruðum frábært mark. Ekki bara afgreiðslan sjálf sem var mögnuð heldur undirbúningurinn allur. En mér fannst við vera of „passífir“ í fyrri hálfleik. Við slökuðum of mikið á og ég var ekki ánægður þann hluta leiksins en í seinni hálfleik voru við miklu betri og skoruðum tvö góð mörk.“
Stuðningsmenn Everton eru eðli málsins samkvæmt sótillir yfir stöðu liðsins en stigafrádrátturinn virðist þó hafa þjappað fólki í kringum liðið saman. Ten Hag sagði að hans lið hefði þegar mætt á erfiða útivelli og ætti eftir að gera það aftur og hann hafði ekki áhyggjur.
„Við höfum verið að spila á erfiðum útivöllum eins og í Kaupmannahöfn og ég held að frammistaðan okkar þar þangað til að við fengum rauða spjaldið sýni hvernig við ætlum að spila í þessum leikjum.“
„Það er auðvitað sérstakt að koma hingað eftir það sem þessi klúbbur hefur gengið í gegnum sem er mjög sorglegt. Þú veist að þeir eru reiðir og liðið fær aukinn eldmóð úr þessum erfiðleikum.“
Hann var að lokum spurður um samanburð á draumamarki Garnacho við mörk sem Wayne Rooney og Cristiano Ronaldo hafa skorað í gegnum tíðina. Ten Hag taldi að slíkur samanburður væri ekki tímabær.
„Það er ekki sanngjarnt að bera Garnacho saman við Rooney og Ronaldo, það er ekki réttmætt. Þeir eru allir einstakir leikmenn og spila á sinn hátt en Garnacho gæti vel orðið leikmaður á sama skala og þeir en hann verður að vinna fyrir því og halda áfram að bæta sinn leik og halda stöðugleika. Hingað til hefur hann ekki náð því en hann á klárlega möguleika á að ná á sama stall og þeir.“
Viðtalið í heild má sjá hér að neðan: