Þetta kemur fram á vefsíðu flugfélagsins, þar sem saga þess er rakin.
„Frá því að vera félag sem lagði áherslu á stuttar flugferðir hefur Widerøe vaxið og orðið stór leikmaður í alþjóðaflugi,“ segir meðal annars í tilkynningu félagsins. Þrátt fyrir það sé Noregur enn hluti af kjarna félagsins, sem sé með yfir 40 áfangastaði við Noregsstrendur.
Félagið var stofnað 19. febrúar 1934 og fór jómfrúarflug sitt 18. júní sama ár. Þá var flogið frá Osló til Haugesund, með viðkomu í Kristiansand og Stafangri.
Um hina ókeypis flugferð fyrir jafnaldra flugfélagsins gilda ákveðnir skilmálar. Um er að ræða flug báðar leiðir fyrir fólk sem fætt er árið 1934, og níræðir geta aðeins nýtt sér tilboðið á almanaksárinu 2024. Þá er ekki hægt að breyta ferð sem bókuð hefur verið, en bóka þarf ferðir minnst 30 daga fram í tímann. Eins geta jafnaldrar félagsins aðeins nýtt sér tilboðið einu sinni, og fljúga því ekki frítt allt árið.