Heldur hvassara verður á Ströndum í kvöld, annars hægari vind. Hiti verður á bilinu 7 til 17 stig, hlýjast á Austurlandi.
Í nótt fer svo aftur að rigna suðvestanlands og á morgun má einnig búast við lítilsháttar rigningu í öðrum landshlutum. Það er svipað útlit á laugardag, en þó ætti að hanga að mestu þurrt austantil á landinu með hita þar upp í 16 til 18 stig.
Greiðfært er víðast hvar á landinu en þó einhverjir vegir illa farnir. Nánari upplýsingar eru á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is, og um veður á vef Veðurstofunnar.
Gasmengun vegna eldgoss
Í dag er suðvestanátt og því berst gasmengun til norðausturs og gæti hennar orðið vart á höfuðborgarsvæðinu. Á morgun er vestlægari átt og þá berst mengunin til austurs yfir Suðurland.
Talsverð óvissa er með magn gastegunda frá gosstöðvunum. Hægt er að fylgjast með rauntímamælingum ýmissa gastegunda á vefnum loftgaedi.is.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag og laugardag:
Suðvestan 8-15 m/s og væta með köflum, en þurrt að mestu og jafnvel bjartviðri austanlands. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast eystra.
Á sunnudag (sjómannadagurinn):
Suðvestan 8-15 m/s, skýjað með köflum og sums staðar dálitlar skúrir, en yfirleitt léttskýjað á Suðaustur- og Austurlandi. Hiti 8 til 17 stig, Hiti 8 til 17 stig, hlýjast austanlands.
Á mánudag:
Vestlæg átt og bjart með köflum, en skúrir á víð og dreif síðdegis. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast suðaustantil.
Á þriðjudag:
Norðvestanátt og dálitlar skúrir á Norður- og Austurlandi, annars bjart. Hiti 3 til 13 stig, hlýjast suðaustanlands.
Á miðvikudag:
Norðlæg átt og yfirleitt þurrt. Hiti 3 til 12 stig, mildast sunnan- og vestanlands.