Skoðun

Takkaborð til­finninga minna

Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar

Ég hef stundum líkt tilfinningalífi mínu við svona takkaborð sem ljósa- og hljóðmenn nota í leikhúsinu eða á tónleikum. Á slíku borði eru bæði on & off takkar, snúningstakkar og svona sleðar sem auka eða draga úr tilfinningum eða viðbrögðum mínum. Alla jafna eru stillingarnar bara svona frekar rétt stilltar og bæði birta og hljóð bara nokkuð þægileg og í góðu flæði fyrir skilningarvit mín.

Svo stundum kemur eitthvað fyrir í lífinu og þá er eins og ljósa- og hljóðmaðurinn fari bara á stjórnlaust flug og leiki sér að því að setja alla sleðana í botn á sama tíma og ýti ótt og títt á off og on takkann. Svo ef ég sæti út í sal á þessu leikriti eða tónleikum þá væru bæði birtan og hljóðið orðin að mjög miklu áreiti og verða jafnvel triggerandi.

Á svona stundum, þegar stjórnandi takkaborðsins fær slíkt æðiskast, getur verið svo gott að hitta einhvern sem kemur auga á þessar rang-stillingar þá og þegar. Aðili sem hefur færni til að grípa í takkana og í rólegheitum stillt þá aftur á sinn stað.

Það gerir viðkomandi með því að viðurkenna líðan þína og skilja að það sem kom fyrir þig hefur haft þessi áhrif á þig. Veitir þér aðstoð til að skilja þetta líka, bera kennsl á tilfinningarnar og setja á þær nafn.

Stundum er þetta svona einfalt.

Í Berginu-headspace starfar einmitt svona aðstoðarfólk, svona fólk sem kann að grípa inn í ljóslogandi takkaborð tilfinningalífs okkar. Þau kunna að tala um tilfinningar og aðstoða okkur að tala um tilfinningar líka.

Í Berginu headspace getur ungt fólk á aldrinum 12 - 25 ára bókað viðtal án þess að

  • þurfa tilvísun eða greiningu frá lækni,
  • vera sett á biðlista,
  • þurfa að greiða fyrir viðtalið.

Síðan 2019 hafa alls 2500 ungmenni leitað til Bergsins þegar þau hafa upplifað vanlíðan sem þarfnast sálræns stuðnings fagaðila. Vanlíðan sem getur verið hjartasorg eftir sambandsslit eða sjálfvígshugsanir. Og allt þar á milli. Bergið er lágþröskuldaþjónusta sem leggur áherslu á að grípa ungmenni í vanlíðan eins fljótt og auðið er. Og það getur skipt sköpum.

Þau sem vilja styrkja Bergið geta fara inn á heimasíðu Bergsins, www.bergid.is. Þar má líka kaupa boli og derhúfur sem eru hluti af herferð sem ber yfirskriftina „Tölum um tilfinningar“.

Höfundur er í stjórn Bergsins headspace og elskar að tala um tilfinningar




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×