Þá verður rigning norðaustan- og austantil en annars bjart með köflum og stöku skúrir. Hiti verður á bilinu fimm stigum í þokulofti við norður- og austurströndina upp í 16 stig á Suðurlandi þar sem sólar nýtur við.
Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar kemur svo fram að í nótt nálgist lægðin landið enn frekar og þá hvessi. Á morgun verður norðvestan hvassviðri á norðaustan- og austanverðu landinu og víða slær í storm á Austfjörðum og sunnan undir Vatnajökli.
„Það er því ráðlegt að fara að öllu með gát á þessu svæði og líklegt að ekki verði ferðafært með aftan í vagna fyrr en á laugardaginn,“ segir enn fremur í hugleiðingunum.
Nánar á vef Veðurstofunnar og um færð vega á vef Vegagerðar, umferdin.is
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Norðvestan 5-13 m/s og þurrt og bjart veður um landið vestanvert, en rigning eða súld austantil fram eftir degi. Hiti frá 5 stigum norðaustanlands að 20 stigum syðst á landinu.
Á sunnudag:
Suðlæg átt 3-8 m/s, og víða bjartviðri en 8-13 m/s og rigning vestantil síðdegis. Hiti 10 til 24 stig, hlýjast um landið norðaustanvert.
Á mánudag:
Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og bjart með köflum, en rigning austast í fyrstu. Hiti 8 til 18 stig, svalast á annesjum fyrir norðan, en hlýjast á Suðausturlandi.
Á þriðjudag:
Fremur hæg austlæg átt og víða rigning sunnan- og austantil, en ananrs yfirleitt þurrt. Hiti 9 til 16 stig.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir norðaustlæga átt með skúrum um mest allt land. Heldur svalara.