Þegar maður er fremst þá þarf maður að syngja með.Vísir/Viktor Freyr
Þjóðhátíðargestir 2024 létu slæmt veður ekki á sig fá á Verslunarmannahelginni í ár á 150 ára afmæli Þjóðhátíðar í Eyjum þegar fimmtán þúsund manns sóttu Vestmannaeyjar heim. Viktor Freyr Arnarson ljósmyndari fangaði stemninguna í Eyjum.
Ljóst var að hátíðin í ár yrði sérlega vegleg á stórafmæli hátíðarinnar. Átján metrar á sekúndu og rigning inn á milli kom ekki í veg fyrir stærsta partý ársins þrátt fyrir að mörg tjöld hefðu fokið út í veður og vind.
Hafa einhvern tímann verið fleiri Þjóðhátíðargoðsagnir á einni mynd? Klara Elias, Hreimur, Jóhanna Guðrún og Sverrir Bergmann eiga öll vinsælustu Þjóðhátíðarlög seinni ára.Vísir/Viktor FreyrMerki Bleika fílsins á lofti og gleðin allsráðandi.Vísir/Viktor FreyrFæribandið, sem spilaði öll þrjú kvöldin á Þjóðhátíð, ásamt Daníel Ágústi.Vísir/Viktor FreyrMargrét Rán, betur þekkt sem RÁN, með kyngimagnaðan flutning.Vísir/Viktor FreyrStúturinn er ein vinsælasta pósan þegar ljósmyndara ber að garði, það mun aldrei breytast.Vísir/Viktor FreyrJökull í Kaleo er alltaf í góðu skapi og það vantaði ekkert í Eyjum.Vísir/Viktor FreyrSkál!Vísir/Viktor FreyrBrekkan var fljót að breytast í drullu. Þessar létu það ekki á sig fá.Vísir/Viktor FreyrHerbert Guðmundsson hefur aldrei haft úr eins mörgum lögum að velja og í Eyjum í ár.Vísir/Viktor FreyrÞað er ekkert mikilvægara en að vera vel klæddur og það vissu þessir félagar.Vísir/Viktor FreyrDiljá Péturs er alltaf í stuði.Vísir/Viktor FreyrHvort er sjaldgæfara, einhyrningur eða bleik Playboy lopapeysa?Vísir/Viktor FreyrÞað er enginn nettari en Ragga Gísla.Vísir/Viktor FreyrSkemmtikraftar þjóðarinnar og vinir til margra ára, Auðunn Blöndal, Sveppi og Pétur höfðu aldrei verið betri en einmitt á þessari stundu.Vísir/Viktor FreyrUna Torfa söng á hinu ástkæra ylhýra, eins og henni er einni lagið.Vísir/Viktor FreyrJóhanna Guðrún steig á svið þrjú kvöld í röð og tók meðal annars Þjóðhátíðarlagið í ár, Töfra. Vísir/Viktor Freyr