Enn einn eldflaugavísindamaðurinn dæmdur í fangelsi Samúel Karl Ólason skrifar 3. september 2024 16:13 Frá æfingum rússneska sjóhersins árið 2020, þar sem meðal annars voru gerðar æfingar með ofurhljóðfráar eldflaugar. EPA/ALEXEI DRUZHININ Alexander Shiplyuk, eldflaugavísindamaður, var í morgun dæmdur í fimmtán ára fangelsi í Rússlandi. Hann er að minnsta kosti fjórði vísindamaðurinn sem komið hefur að þróun nýrra ofurhljóðfrárra eldflauga Rússa sem dæmdur er í fangelsi.
Shiplyuk, sem er 57 ára gamall, kom að þróun svokallaðra ofurhljóðfrárra eldflauga, sem eiga að geta flogið á margföldum hljóðhraða. Hann var handtekinn í ágúst 2022 og var hann samkvæmt Reuters sakaður um að hafa afhent leynilegar upplýsingar til kínverskra útsendara á ráðstefnu árið 2017. Hann var dæmdur til að afplána dóm sinn í fanganýlendu með mikilli öryggisgæslu. Eins og áður segir hafa aðrir eldflaugavísindamenn sem störfuðu á mismunandi sviðum sem tengjast tækninni verið handteknir og sakaðir um landráð á undanförnum árum. Í heildina er talið að tólf eldflaugavísindamenn hafi verið handteknir á undanförnum tveimur árum. Þessir menn hafa meðal annars verið sakaðir um að leka upplýsingum til Kína og Evrópu. Samkvæmt Moscow Times er Shiplyuk fjórði eldflaugavísindamaðurinn sem dæmdur er í fangelsi fyrir landráð. Þar að auki er tveir af þeim tólf sem hafa verið handteknir látnir. MT hefur eftir lögmanni sem unnið hefur fyrir nokkra af vísindamönnunum að skipanir hafi borist til FSB, arftaka KGB, að ofan um að saka ætti mennina um landráð. Markmiðið væri að gera ofurhljóðfráum eldflaugum Rússa hátt undir höfði. Ráðamenn í Rússlandi hafa haldið því fram að eldflaugar þeirra séu þær þróuðustu í heimi og geti komist hjá loftvarnarkerfum annarra ríkja.
Rússland Kína Mest lesið Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Erlent Áfram talinn vanhæfur til að taka sæti í ráðinu Innlent Þrír fundust látnir í Noregi Erlent Trúverðugleiki forsætisráðherra sé í húfi Innlent Le Pen sakfelld fyrir fjársvik Erlent Fordæma árás á sjúkraliða Erlent Bein útsending: Ráðherra kynnir fjármálaáætlun Innlent „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Erlent Fleiri fréttir Le Pen sakfelld fyrir fjársvik Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Á annað hundrað látnir í Mjanmar „Það er skítkalt hérna“ Sænskur blaðamaður handtekinn í Tyrklandi Fyrsta árás Ísraelshers í Líbanon eftir vopnahlé Óttast að mörg hundruð séu látin Áhöfn kafbátsins sem sökk í Rauðahafi yfirheyrð Albanese boðar til þingkosninga 43 saknað eftir 7,7 stiga skjálfta í Mjanmar Sjá meira