El Salvador varð fyrsta ríki heims til þess að gera rafmynt að opinberum gjaldmiðli árið 2021. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur varað við lagalegri og efnahagslegri áhættu við það.
Samkomulagið sem salvadorsk stjórnvöld gerðu við sjóðinn í gær snerist um 1,4 milljarða dollara lán. Þau féllust á móti á að bakka aðeins með rafmyntarvæðingu sína. Þannig eiga skattgreiðslur aðeins að fara fram í bandaríkjadollurum, hinum opinbera gjaldmiðli landsins. Talsmaður sjóðsins sagði einnig í gær að fyrirtæki í landinu fengju sjálf að ákveða hvort þau tækju við bitcoin.
Nú segir fulltrúi ríkisstjórnar Nayibs Bukele forseta að bitcoin verði áfram opinber gjaldmiðill og að ríkisstjórnin ætli sér að bæta í varaforða sinn. Reuters-fréttastofan segir að El Salvador eigi 5.968 bitcoin-skildinga sem séu nú metnir á um 594 milljónir dollara, jafnvirði tæpra 83 milljarða íslenskra króna.
Sérfræðingur sem Reuters ræddi við segir vel mögulegt að yfirlýsingar stjórnvalda í El Salvador um þau ætli að bæta í rafmyntarkaupin séu tilraun þeirra til þess að draga úr neikvæðum áhrifum sem samkomulagið kunni að hafa á ímynd og stöðu bitcoin.