Vonir stuðningsmanna Arsenal voru bundnar við að félagið myndi sækja framherja í glugganum í ljósi meiðsla Gabriel Jesus sem verður lengi frá eftir að hafa slitið krossband og þá er Bukayo Saka enn frá vegna meiðsla. Þjóðverjinn Kai Havertz hefur borið hitann og þungann sem framherji liðsins upp á síðkastið.
Arsenal kannaði ýmsa möguleika í félagsskiptaglugganum, gerði meðal annars tilboð í Ollie Watkins framherja Aston Villa og könnuðu möguleikann á því að sækja Mathys Tel frá Bayern Munchen en sá endaði hjá Tottenham á láni út tímabilið.
Arsenal mætir Newcastle United í kvöld í seinni leik liðanna í undanúrslitum enska deildarbikarsins og á blaðamannafundi fyrir leikinn lýsti Arteta yfir vonbrigðum sínum.
„Við vorum með skýr markmið. Að leita leiða til þess að bæta leikmannahópinn með ákveðinni týpu af leikmönnum. Við náðum því ekki og erum því vonsviknir en erum þó einnig meðvitaðir um að við viljum aðeins ákveðna týpu af leikmönnum. Við þurfum að vera agaðir í okkar nálgun og við vorum það að mínu mati,“ sagði Arteta á blaðamannafundinum.
Aðspurður hvort hann væri sérstaklega pirraður út í þá staðreynd að félaginu hafi ekki tekist að bæta við framherja svaraði Arteta því neitandi.
„Vegna þess að við gerðum okkar besta, fórum rétt að hlutunum,“ sagði Arteta. „Auðvitað getum við dregið lærdóm frá þessu, getum það alltaf, en svo verðum við að halda áfram. Það er engin leið að vita á þessari stundu hvort það hefði verið betra að semja við einhvern eða ekki. Við munum líklegast fá svar við þeirri spurningu í lok tímabilsins.“
Arsenal er sem stendur í 2.sæti ensku úrvalsdeildarinnar, sex stigum á eftir toppliði Liverpool sem á einnig leik til góða. Þá er Arsenal komið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar, á fyrir höndum leik kvöldsins í undanúrslitum deildarbikarsins en er úr leik í enska bikarnum eftir tap gegn Manchester United.