Donald Trump Bandaríkjaforseti og Elon Musk, náinn bandamaður Trump og einn auðugasti maður heims, héldu í gær blaðamannafund um starfsemi sparnaðarstofnunarinnar DOGE. Þar skrifaði Trump undir forsetatilskipun um að auka völd stofnunarinnar og útvíkka umboð hennar til niðurskurðar í stjórnsýslu Bandaríkjanna.
Musk kom ekki einn á fundinn því sonur hans, hinn fjögurra ára X Æ A-Xii, var með í för og vakti mikla lukku viðstaddra og annarra sem fylgdust með fundinum.
Á blaðamannafundinum tók Musk soninn á háhest auk þess sem X litli hermdi eftir föður sínum, boraði í nefið og hvíslaði í eyra forsetans.
Ætti ekki að vera á meðal almennings
Ekki voru þó allir ánægðir með að Musk skyldi taka soninn með á fundinn. Allavega ekki móðirin, hin 36 ára Claire Elise Boucher, sem gengur undir tónlistarnafninu Grimes, sem frétti af blaðamannafundinum á samfélagsmiðlinum X.

Grimes hafði skrifað færslu um stjórnmálaskýrandann Ezra Klein þegar einn X-verji svaraði henni og sagði „X litli var mjög kurteis í dag!... Þú ólst hann vel upp... Hann var svo sætur þegar hann sagði við DJT: ,Afsakaðu mig, ég þarf að pissa'.“
„Hann ætti ekki að vera meðal almennings á þennan máta. Ég sá þetta ekki, takk fyrir að láta mig vita. En ég er glöð að hann var kurteis. Andvarp,“ svaraði hún þá færslunni.

Eiga í forsjárdeilu um X, Exu og Techno
Grimes og Musk eiga þrjú börn saman. Elstur er X Æ A-Xii sem er fæddur í maí 2020, næstelst er Exa Dark Sideræl sem þau eignuðust með staðgöngumóður í desember 2021 og í júní 2022 fæddist Techno Mechanicus.
Sjá einnig: Grimes „útskýrir“ nafn barnsins
Musk og Grimes hættu saman 2023 og hafa staðið í hatrammri forsjárdeilu síðan. Nýleg fordæmdi hún „alt-right“-stefnu Musk og nasistakveðju hans við innsetningu Trump í embætti. Hún hefur einnig sagt að hún vilji ekki að Musk sé stöðugt að flagga syni þeirra meðal almennings.
Hún sagði í færslu á X þann 10. janúar að hún legði ekki blessun sína á þessa hegðun Musk. „Ég vil ólm leysa úr þessu. Þetta er persónulegur harmleikur fyrir mig. En eins og staðan er núna, veit ég ekki hvernig ég að gera það,“ sagði hún um málið.
Daginn fyrir innsetningu Trump mætti Musk með X litla á fjöldafund í Washington D.C. þann 19. janúar þar sem sá fjögurra ára hljóp um og hoppaði á sviðinu.