Átjánda umferð Bónus deildar karla í körfubolta klárast í kvöld með tveimur leikjum. Fyrst er leikur ÍR og Njarðvíkur og svo er Reykjavíkurslagur milli KR og Vals.
Eftir leikina verður síðan Bónus Körfuboltakvöld á dagskrá þar sem öll átjánda umferðin verður gerð upp á skemmtilegan hátt.
Það verður einnig sýnt frá ensku b-deildinni og sádi-arabíska fótboltanum.
Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.
Stöð 2 Sport
Klukkan 19.20 hefst útsending frá leik KR og Vals í Bónus deild karla í körfubolta.
Klukkan 21.05 hefst Bónus Körfuboltakvöld þar sem öll sautjánda umferð Bónus deildar karla verður gerð upp.
Stöð 2 Sport 5
Klukkan 18.50 hefst útsending frá leik ÍR og Njarðvíkur í Bónus deild karla í körfubolta.
Vodafone Sport
Klukkan 16.55 hefst útsending frá leik Al Hilal og Al Riyadh í sádi-arabíska fótboltanum.
Klukkn 19.55 hefst útsending frá leik QPR og Derby County í ensku b-deildinni í fótbolta.