Innlent

Bundið slit­lag á síðasta kafla Norðausturvegar

Kristján Már Unnarsson skrifar
Horft til Þórshafnar af þjóðveginum sem liggur yfir Brekknaheiði.
Horft til Þórshafnar af þjóðveginum sem liggur yfir Brekknaheiði. Vilhelm

Vegagerðin auglýsir í dag eftir tilboðum í endurbyggingu Norðausturvegar um Brekknaheiði á Langanesi, milli Þórshafnar og Bakkafjarðar. Gert er ráð fyrir að verkið taki rúm tvö ár og skal því að fullu lokið 1. ágúst 2027.

Þetta er síðasti malarkaflinn á norðausturhringnum svokallaða. Þegar verkinu lýkur verður hægt að aka á samfelldu bundnu slitlagi hringleið sem markast af Húsavík, Ásbyrgi, Þórshöfn, Vopnafirði og Mývatnssveit. Holóttir malarkaflar ættu því ekki lengur að fæla ferðalanga á leið um hringveginn frá því að velja norðausturleiðina um Langanes í stað Möðrudalsöræfa.

Með endurbyggingu vegarins um Brekknaheiði verður komið samfellt bundið slitlag milli Þórshafnar og Bakkafjarðar.Stöð 2/Vegagerðin

Vegarkaflinn sem byggja á upp er 7,6 kílómetra langur. Hann nær frá gatnamótum Langanesvegar við Þórshöfn og að Vatnadal á Brekknaheiði, ofan Gunnólfsvíkur í Finnafirði. Frestur til að skila inn tilboðum rennur út þriðjudaginn 4. mars næstkomandi, samkvæmt útboðsauglýsingu.

Þetta er eitt af þeim verkum sem til stóð að bjóða út í fyrra en lentu þá í salti sökum þess að Vegagerðin og innviðaráðuneytið ráðstöfuðu miklum fjármunum í Hornafjarðarfljót án fjárheimilda Alþingis. Af þeim sökum treysti stjórnarmeirihlutinn í umhverfis- og samgöngunefnd þingsins sér ekki til að afgreiða samgönguáætlun síðastliðið vor.

Malarvegur liggur núna yfir Brekknaheiði. Með lagningu bundins slitlags verður norðausturhringnum lokað.Einar Árnason

Loforð stjórnvalda um að ljúka þessari vegagerð eru þó mun eldri. Þannig rifjaði þáverandi sveitarstjóri Langanesbyggðar, Jónas Egilsson, það upp í viðtali á Stöð 2 sumarið 2021 að því hafi verið lofað árið 2006 þegar byggðirnar Þórshöfn og Bakkafjörður sameinuðust í Langanesbyggð. Stór áfangi náðist árið 2021 þegar ríflega tuttugu kílómetrar slitlags bættust við, eins og fjallað var um hér:

Með samgönguáætlun sem samþykkt var í febrúar 2019 markaði Alþingi loksins þá stefnu að Norðausturvegur skyldi kláraður. Þá var miðað við að verkinu skyldi ljúka árið 2025, eins og þáverandi sveitarstjóri, Elías Pétursson, gladdist yfir í þessari frétt:


Tengdar fréttir

Þjóðvegarykið að hverfa af norðausturhringnum

Íbúar norðausturhornsins fagna um þessar mundir stórum áfanga í lagningu bundins slitlags um Langanesströnd milli Þórshafnar og Bakkafjarðar. Núna vantar malbik á aðeins sex kílómetra bút til að klára norðausturhringinn.

Héraðsverk bauð lægst í gerð Norðausturvegar

Héraðsverk á Egilsstöðum átti lægsta boð í uppbyggingu tuttugu kílómetra kafla Norðausturvegar um Langanesströnd. Verkið á að vinna á næstu tveimur árum og skal því að fullu lokið 15. september 2021.

Norðausturhringurinn lagður bundnu slitlagi

Átak hefst í sumar við að byggja upp þjóðveginn um Langanesbyggð, milli Þórshafnar og Bakkafjarðar. Sveitarstjórinn segir þetta mjög ánægjulegar vegarbætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×