Leik lokið: Valur - Slavía Prag 28-21 | Vals­konur í frá­bærum málum

Hinrik Wöhler skrifar
Frá leik Vals fyrr á tímabilinu
Frá leik Vals fyrr á tímabilinu

Valskonur eru í góðri stöðu eftir 28-21 sigur á Slavía Prag í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópubikarsins í handbolta. Síðari leikur liðanna fer fram á morgun.

Valskonur byrjuðu af miklum krafti, komust í 4-0 í upphafi og leiddu 17-11 eftir fyrri hálfleikinn. Gestunum tókst að minnka muninn niður í þrjú mörk í upphafi síðari hálfleiks en þá stigu Valskonur aftur á bensíngjöfina og tryggðu sér öruggan sigur.

Lokatölur 28-21 og Valskonur nánast með annan fótinn í undanúrslitum Evrópubikarsins. Síðari leikur liðanna fer fram á morgun að Hlíðarenda.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira