Neytendur

Norskir komast í Víking gylltan

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hlynur vörumerkjastjóri brosir út að eyrum. Fróðlegt verður að sjá hvernig Norðmenn taka á móti íslenska bjórnum.
Hlynur vörumerkjastjóri brosir út að eyrum. Fróðlegt verður að sjá hvernig Norðmenn taka á móti íslenska bjórnum.

Íslenskur andi mun svífa yfir vötnum vínbúðanna í Noregi frá og með 6. mars þegar Víking gylltur verður fáanlegur í 191 verslun Vinmonopolet þar í landi. Bjórinn hafnaði í fyrsta sæti í útboði vínboðanna ytra á dögunum.

„Þetta er gríðarlegur heiður fyrir okkur,“ segir Hlynur Björnsson vörumerkjastjóri Víking í tilkynningu til fréttastofu.

Hann segir útboðið hjá Vinmonopolet afar krefjandi en þar sé fjöldinn allur af bjórum metinn eftir ströngum gæða- og bragðgreiningum. Víking Gylltur fékk hæstu einkunn í bragði og gæðum í baráttu við bjór frá öðrum Norðurlöndum og landaði fyrsta sætinu. Um er að ræða blindsmökkun sérfræðinga og hæstu einkunn þurfi til að tryggja sér pláss í vínbúðinni.

„Það er alltaf gaman að vinna og Víking Gylltur er svo sannarlega vel að þessu kominn. Við leggjum mikið upp úr gæðum og Víking Gylltur er þekktur fyrir sín gæði og hefur um langa tíð áunnið sér hjörtu íslensku þjóðarinnar,“ segir Hlynur.

Um sé að ræða tímamót enda sé aðeins hægt að fá tvær tegundir af Einstök og svo Giljagaur frá Borg í gegnum sérpantanir eða sérval vínbúðarinnar norsku. Víking brugghús er með bjórdreifingu í Danmörku og Svíþjóð en sigurinn í keppninni í Noregi marki eitt stærsta skref brugghússins hingað til á Norðurlandamarkað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×