Lífið

Gleði þegar Unnur og Una frumsýndu loksins Storm

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Unnur Ösp með fjölskyldu sinni tilbúin til þess að fara inn í sal.
Unnur Ösp með fjölskyldu sinni tilbúin til þess að fara inn í sal. Anton Bjarni Alfreðsson

Söngleikurinn Stormur eftir þær Unni Ösp og Unu Torfa var frumsýndur með pompi og prakt í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Hátíðarstemning var í loftinu og eftirvæntingin mikil.

Unnur Ösp mætti með fjölskylduna í glæsilegum gylltri pallíettublússu. Þá létu öll helstu fyrirmenni landsins sig að sjálfsögðu ekki vanta, Jón Jónsson og Hafdís Björk Jónsdóttir skildu krakkana eftir heima og Birgitta Haukdal mætti í sólsskinsskapi. Myndir af fleiri gestum má skoða hér fyrir neðan.

Stormur er söngleikur sem talar til ólíkra kynslóða um fyrstu stóru tímamót lífsins. Vinahópur sem er að útskrifast úr menntaskóla stendur á tímamótum sem eru í senn spennandi og ógnvænleg. Hver er ég og hver vil ég vera? Get ég sagt skilið við fortíðina og byrjað lífið upp á nýtt? Þori ég að taka stökkið og fylgja hjartanu, alla leið?

Þar er Elísabetu fylgt eftir, ungri tónlistarkonu sem er undir mikilli pressu að reyna að ljúka við sína fyrstu plötu í kjölfar þess að lag sem hún sendi frá sér varð óvænt vinsælasta lag ársins. Með helstu hlutverk fara meðal annars Una Torfadóttir, Berglind Alda Ástþórsdóttir, Jakob van Oosterhout og Sigurbjartur Sturla Atlason.

Martina Vigdís Nardin og Birgitta Haukdal spenntar fyrir sýningunni.Anton Bjarni Alfreðsson

Jón Helgi Erlendsson í sínu besta skapi.Anton Bjarni Alfreðsson

Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri í góðra vina hópi ásamt Breka Karlssyni formanni Neytendasamtakanna.Anton Bjarni Alfreðsson

Kolbeinn Tumi og Selma Björns með Selmu Rún og Friðriki Ómari.Anton Bjarni Alfreðsson

Karítas Ríkharðsdóttir og Ragnar Auðun Árnason skelltu sér í leikhús.Anton Bjarni Alfreðsson

Birna Björgvinsdóttir og Birna Ósk Kristinsdóttir.Anton Bjarni Alfreðsson

Alvöru handaband.Anton Bjarni Alfreðsson

Eftirvænting í loftinu.Anton Bjarni Alfreðsson

Hjónin Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarson létu sig ekki vanta.Anton Bjarni Alfreðsson

Matthías Tryggvi skálaði með bros á vör.Anton Bjarni Alfreðsson

Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir og hjónin Birkir Kristinsson og Ragga Gísla.Anton Bjarni Alfreðsson

Danshöfundurinn Lee Proud og kærastinn Ahd Tamimi.Anton Bjarni Alfreðsson

Bros á vör og drykkur í glösum.Anton Bjarni Alfreðsson

Prúðbúin.Anton Bjarni Alfreðsson

Sigrún Edda og Tinni Sveins brostu sínu breiðasta.Anton Bjarni Alfreðsson

Tilbúnar í sýningu.Anton Bjarni Alfreðsson

Martina Vigdís Nardin og hjónin Hafdís og Jón.Anton Bjarni Alfreðsson

Í sínu fínasta pússi.Anton Bjarni Alfreðsson

Skál í boðinu.Anton Bjarni Alfreðsson

Gleði í lofti.Anton Bjarni Alfreðsson

Karlotta Karlsdóttir og Helga Viktoría Þorvaldsdóttir.Anton Bjarni Alfreðsson

Brosa!Anton Bjarni Alfreðsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.