Lífið

Endur­nýjuðu heitin að rúss­neskum sið

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Þó að parið hafi formlega gifst árið 2020, ákváðu þau nú að halda veglega veislu í anda rússneskra hefða.
Þó að parið hafi formlega gifst árið 2020, ákváðu þau nú að halda veglega veislu í anda rússneskra hefða.

Ragnar Sigurðsson, knattspyrnumaður, og eiginkona hans, Elena Bach, endurnýjuðu heitin með glæsilegri brúðkaupsveislu í Rússlandi í byrjun desember síðastliðnum. Hjónin gengu í hjónaband í október 2020. Ragnar og Elena birtu óséðar myndir frá deginum á Instagram.

Í veislunni fylgdu brúðhjónin rússneskri hefð, Eh batya, þar sem þau tóku saman fyrsta bitann af brúðartertunni. Siðurinn táknar velmegun og sterka fjölskyldu, en samkvæmt hefðinni verður sá sem bítur stærri bita „höfðingi heimilisins.“

Stílhrenn glæsileiki og Cartier hringar

Hjónin voru afar glæsileg, Ragnar klæddist svörtum smóking og hvítri skyrtu, en Elena var í hvítum síðkjól alsettum perlum ásamt síðu brúðarslöri með áletrunni I love you. Athöfnin fór fram í stórglæsilegum sal þar sem Ragnar beið eftir Elenu á hvítu sviði með rósahaf í bakgrunni. Þá tók Ragnar lagið og spilaði á gítar fyrir veislugesti.

„Að halda upp á brúðkaupsafmælið og endurnýja heitin var besta ákvörðunin,“ skrifaði Elena við myndskeið frá stóra deginum á Instagram.

Elena valdi þrjá mismunandi kjóla fyrir stóra daginn. Í athöfninni klæddist hún glæsilegum síðkjól, síðar skipti hún yfir í stuttan hvítan satínkjól með ermum og þegar leið á kvöldið klæddist hún stuttum rauðum velúrkjól. Dætur hjónanna klæddust svörtum og hvítum kjólum og rauðum velúrskóm.

Hringarnir voru frá hinu virta lúxusmerki Cartier, sem er þekkt fyrir sínar vönduðu og tímalausu hönnun.

Ragnar og Elena eiga saman tvær dætur, Míu sem fæddist árði 2020 og Leu sem fæddist árið 2022, Ragnar á einnig einn dreng.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Brúðkaup í Rússlandi og hiti í desember

Jólaandinn svífur yfir stjörnum landsins og var skemmtanahaldið upp á sitt allra besta um helgina. Jólahlaðborð fyrirtækja, stórafmæli, tónleikar og almennur jólaundirbúningur setti sinn svip á vikuna sem leið. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.