Teitið var eitt það fjölmennasta og fjörugasta Lúðrapartý auglýsingastofunnar frá upphafi.
Verðlaunahátíð Lúðursins var haldin með pompi og prakt síðastliðið föstudagskvöld í Háskólabíó þar sem auglýsingastofur landsins komu saman til að fagna vinnu og uppskeru auglýsingaherferða á liðnu ári.
Samtök markaðs og auglýsingafólks í samráði við samband íslenskra auglýsingastofa veita árlega verðlaunin Lúðurinn fyrir bestu auglýsingar ársins.
Auglýsingastofan Hér&Nú hlaut tólf tilnefningar á Lúðrahátíðinni og vann í þremur flokkum: lengri kvikmyndaðra auglýsinga fyrir Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka, hljóðauglýsinga fyrir Blush og Sorpu og umhverfisauglýsinga, einnig fyrir Blush og Sorpu.
Að hátíðinni lokinni hélt auglýsingastofan heljarinnar partý þar sem gestir og gangandi gæddu sér á gómsætum veitingum og skáluðu langt fram eftir kvöldi.
Tónlistarmaðurinn Eyþór Wöhler, meðlimur Húbba Búbba, og Erpur Eyvindarson (Blaz Roca) skemmtu gestum ásamt DJ Mellí eins og þeim einum er lagið. Teitið var eitt það fjölmennasta og fjörugasta Lúðrapartý auglýsingastofunnar frá upphafi, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Hressar vinkonur!Guðmundur Þór KárasonGerður í Blush með tölu.Guðmundur Þór KárasonHrafnhildur Ylfa, Guðrún og Anna Fríða.Guðmundur Þór KárasonDaníel Hjörvar, Júlíus Viggó og Geir. Guðmundur Þór KárasonEdda, Brynhildur og Helga Björg.Guðmundur Þór KárasonGleðin leyndi sér ekki.Gðumundur Þór KárasonHelga Björg og Björn og Marín í góðum félagsskap.Guðmundur Þór KárasonFatou, Sara Dís og Kristján.Guðmundur Þór KárasonSigrún María og Guðjón voru ánægð með kvöldið.Guðmundur Þór KárasonArnþrúður Dögg og Ásdís.Guðmundur Þór kárasonErpur tryllti lýðinn!Guðmundur Þór KárasonKristinn Kerr og Rakel.Guðmundur Þór KárasonMarín og Vala.Guðmundur Þór KárasonEyþór Wöhler keyrði upp stemninguna.Guðmundur Þór KárasonMarkaðsteymi Íslandsbanka.Guðmundur Þór KárasonInga María og Elma Dís.Guðmundur Þór KárasonBerglind Festival og Rebekka Líf.Guðmundur Þór KárasonGuðmundur og Rúrik.Guðmundur Þór KárasonFólk skemmti sér konunglega!Guðmundur Þór KárasonPósað fyrir myndavélina.Guðmundur Þór KárasonAtlavíkur teymið.Guðmundur Þór KárasonSveinbjörg og Ingvi.Guðmundur Þór KárasonHér&Nú Lúðra partýAndri, Einar og Orri.Guðmundur Þór KárasonBerglind Festival ánægð með verðlaunin.Guðmundur Þór Kárason