Erlent

Ný ríkis­stjórn í höfn á Græn­landi

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Jens-Frederik Nielsen leiðir Demokraatit, stærsta flokkinn á grænlenska þinginu eftir nýafstaðnar kosningar.
Jens-Frederik Nielsen leiðir Demokraatit, stærsta flokkinn á grænlenska þinginu eftir nýafstaðnar kosningar. EPA/Christian Klindt Sølbeck

Viðræðum um myndun meirihluta á grænlenska þinginu er lokið og koma fjórir fimm flokkanna á þinginu að nýrri ríkisstjórn. Til stendur að undirrita stjórnarsáttmála í hádeginu á morgun.

Heimildir grænlenska ríkisútvarpsins herma að allir flokkarnir á grænlenska þinginu, að flokknum Naleraq undanskildum, komi að myndun ríkisstjórnarinnar. Grænlendingar gengu til kosninga þann ellefta mars undir mjög óvenjulegum kringumstæðum. Varla var þverfótað fyrir erlendum fjölmiðlum í og við kjörstaði og er skemmst frá því að segja að grænlenska þjóðin sé ekki vön því að umheimurinn sýni stjórnmálunum þar í landi þvílíkan áhuga.

Grænlendingar hafa setið undir stöðugum hótunum frá Donald Trump Bandaríkjaforseta sem hefur heitið því að innlima landið sama hvað það kostar. Í þessari viku vakti það hneykslan að óboðin bandarísk sendinefnd hygði á ferðalag til Grænlands. J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna er á leið sinni þangað ásamt eiginkonu sinni en þau ætla sér einungis að heimsækja bandarísku herstöðina Pituffik á norðvestanverðu landinu vegna harkalegra viðbragða í Nuuk og Kaupmannahöfn.

Í skugga væringanna bar stjórnarandstaðan stórsigur í kosningunum og í fyrsta sinn í sögu heima- og landsstjórnarinnar er frjálshyggjuflokkur sá stærsti á þinginu. Demokraatit undir handleiðslu Jens-Frederik Nielsen vann mikinn sigur og hafa leitt stjórnarmyndunarviðræður til þessa.

Samkvæmt staðarmiðlinum Sermitsiaq stendur til að undirrita stjórnarsáttmála klukkan ellefu á morgun á grænlenskum tíma í menningarsetrinu Katuaq. Flokkarnir Demokraatit, Siumut, Inuit Ataqatigiit og Atassut eiga sín á milli 23 fulltrúa af 31 á þinginu en vinstri flokkarnir Siumut og Iniut Ataqatigiit mynduðu síðustu ríkisstjórn sem Múte B. Egede, formaður Inuit Ataqatigiit samstarfsflokks Vinstri grænna, fór fyrir.

Jens-Frederik Nielsen, formaður Demokraatit og líklegt landsstjórnarformannsefni, hefur látið hafa það eftir sér að hann sæktist eftir því að mynda breiðfylkingarstjórn þvert yfir miðju til að takast á við varhugaverða þróun í heimsmálunum og svo virðist sem að honum hafi tekist það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×