Þrír látnir eftir skotárás í Uppsölum Jón Ísak Ragnarsson skrifar 29. apríl 2025 16:47 Umfangsmikil lögregluaðgerð stendur yfir nálægt Vaksala-torgi í miðbæ Uppsala. Árásarmaðurinn er sagður hafa ekið burt á rafmagnsvespu. EPA Þrír eru látnir eftir skotárás nálægt Vaksala-torgi í Uppsölum í Svíþjóð. Umfangsmikil lögregluaðgerð stendur yfir og málið er rannsakað sem morð. „
Okkur grunar að um skipulagða skotárás hafi verið að ræða,“ sagði Magnús Jansson Klarin, talsmaður sænsku lögreglunnar við Aftonbladet. Í nýrri tilkynningu frá sænsku lögreglunni hefur fengist staðfest að þrír séu látnir og málið sé rannsakað sem morð. Árásarmaðurinn er sagður hafa ekið af vettvangi á rafmagnsvespu, en svæðið hefur verið girt af og þyrla á vegum lögreglunnar aðstoðar við leitina. Samkvæmt Aftonbladet á árásin að hafa átt sér stað nálægt hárgreiðslustofu. Vegfarendur á svæðinu segjast hafa heyrt nokkra skothvelli. „Ég heyrði fimm skot, og sá fólk hlaupa í mismunandi áttir og fela sig,“ sagði vitni við SVT. Lestarumferð til og frá Uppsölum var stöðvuð tímabundið klukkan 17:30 að staðartíma, en klukkan 18 var hún komin aftur í gang, að sögn sænsku samgöngustofunnar. EPA EPA Fréttin verður uppfærð
Svíþjóð Mest lesið „Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvað grín“ Innlent Þrír látnir eftir skotárás í Uppsölum Erlent Varðstjóri leystur undan vinnuskyldu vegna gruns um njósnir Innlent „Viltu ekki tala við mig eins og ég sé gamalmenni“ Innlent „Í guðanna bænum höldum vöku okkar við aksturinn" Innlent „Við þrífumst ekki til lengdar ein“ Innlent Ný stjórn Ríkisútvarpsins kjörin Innlent Von á allhvössum vindi og rigningu Veður Allt í rugli á Rauðahafi Erlent Hraðbankinn enn ekki látinn í friði Innlent Fleiri fréttir Þrír látnir eftir skotárás í Uppsölum Fella niður hluta ákæru á hendur meintum sveppamorðingja Íhuga að loka Everest öðrum en reyndu göngufólki Bannað að selja auðmönnum evrópskan ríkisborgararétt Orsakir rafmagnsleysisins sögulega enn óþekktar Fjórir létust þegar bíl var ekið í gegnum frístundaheimili Allt að komast í samt lag á Spáni og í Portúgal Carney og Frjálslyndir fóru með sigur af hólmi Rafmagn að koma aftur á: Íslendingar lýsa mikilli óvissu Spennan eykst milli Indlands og Pakistan Allt í rugli á Rauðahafi Hvetur Kanadamenn að kjósa sig Lýsir yfir einhliða vopnahléi vegna sigurhátíðar í næstu viku Rafmagnsleysið „fordæmalaust“ en engar vísbendingar um tölvuárás Páfakjör hefst í næstu viku Umfangsmiklar og óútskýrðar rafmagnstruflanir á Íberíuskaga Mæðgur alvarlega særðar eftir sprengingu í úthverfi Stokkhólms Rússar segjast hafa handsamað morðingja herforingjans Ökumaðurinn í Vancouver ákærður fyrir manndráp Sixtínsku kapellunni lokað vegna páfakjörs Telur að Selenskí geti samþykkt að gefa eftir Krímskaga Kjördagur framundan í Kanada Vissu ekki að þeir væru að ræna Kim Kardashian Ellefu manns látnir og talan gæti hækkað Rúmur helmingur óhress með Trump Eðlilegt að endurskoða sjálfstjórnarlögin Framtíðin sé járntjald frá Finnlandi niður að Svartahafi Gröf Frans páfa opin gestum Bréf ritað um borð í Titanic seldist á tugi milljóna Sprenging í Íran varð 25 að bana Sjá meira