Lífið

Með flygil Hall­dórs Lax­ness inni í stofu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ásdís er bæjarstjóri Kópavogs.
Ásdís er bæjarstjóri Kópavogs.

Hún skilar bestu afkomu Kópavogs í sautján ár, kann muninn á debet og kredit, elskar lyftingar og væri til í að vera áfram bæjarstjóri.

Sindri fór í morgunkaffi til Ásdísar Kristjánsdóttur á fallegt heimili hennar í Kópavoginum.

„Ég er mikil a-manneskja og er sofnuð klukkan tíu á kvöldin,“ segir Ásdís sem er gift Agnari Tómasi Möller og eiga þau saman þrjú börn. Sautján ára tvíbura og síðan einn dreng í áttunda bekk. Ásdís er með hagfræðimenntun.

Fjölskyldan á góðri stundu í myndatöku saman.

„Ég var byrjuð vinna í banka og vann sem forstöðumaður í greiningardeild hjá Arion banka en þá ákvað ég bara að breyta algjörlega um kúrs og réð mig til starfa hjá Samtökum atvinnulífsins. Þá svolítið varð ég pólitískari og pólitískari. Það kitlaði mig því alltaf að á einhverjum tímapunkti myndi ég stíga þetta skref. Þetta fer alveg saman, ef þú hugsar út það að huga að rekstri og hafa áhuga á rekstri hefur nýst mér rosalega vel í þessu starfi.“

Hún segir að aldrei hafi neitt annað komið til greina en Sjálfstæðisflokkurinn. Eins og staðan er í dag stefnir hún ekki í landspólitíkina.

„Ég hef sagt það að ég vilji vera fjögur ár í viðbót hér og svo verðum við bara sjá hvað gerist. Ég er allavega ekki þessi týpa sem er búin að ákveða það að eftir tíu ár ætla ég að vera komin inn á þing og verða ráðherra og svo framvegis.“

Það vakti athygli í heimsókn Sindra að þau hjónin er með flygil frá 1873 inni í stofu hjá sér. Flygil sem var í eigu Halldórs Laxness. Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.