Fótbolti

Glódís bikar­meistari með Bayern

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir fagnar með Carolin Simon eftir að sú síðarnefnda skoraði annað mark Bayern München í bikarúrslitaleiknum gegn Werder Bremen.
Glódís Perla Viggósdóttir fagnar með Carolin Simon eftir að sú síðarnefnda skoraði annað mark Bayern München í bikarúrslitaleiknum gegn Werder Bremen. getty/Fabian Strauch

Bayern München vann 4-2 sigur á Werder Bremen í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar í fótbolta í dag. Glódís Perla Viggósdóttir er fyrirliði Bayern sem vann bæði deild og bikar.

Þetta er í fyrsta sinn á ferlinum sem Glódís vinnur tvöfalt. Hún hefur fimm sinnum orðið bikarmeistari; tvisvar sinnum með Stjörnunni, tvisvar sinnum með Rosengård og nú einu sinni með Bayern.

Um síðustu helgi tryggði Bayern sér sinn þriðja Þýskalandsmeistaratitil í röð og í dag bætti liðið bikarmeistaratitlinum við. Wolfsburg hafði orðið bikarmeistari tíu sinnum í röð en tapaði fyrir Hoffenheim í átta liða úrslitum. 

Bayern byrjaði leikinn vel og Lea Schuller kom liðinu yfir á 6. mínútu. Carolin Simon tvöfaldaði forskotið á 20. mínútu en Rieke Dieckman minnkaði muninn í 2-1 í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Á 65. mínútu skoraði Schuller annað mark sitt og hún fullkomnaði svo þrennuna ellefu mínútum fyrir leikslok. 

Larissa Muhlhaus lagaði stöðuna fyrir Werder Bremen í uppbótartíma og lokatölur því 4-2. Leikurinn fór fram á RheinEnergieStadion í Köln.

Þetta er í annað sinn sem Bayern verður bikarmeistari og í fyrsta sinn í þrettán ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×