Niinistö segir aukinn fjölda hælisleitenda hefndaraðgerð Rússa Sauli Niinistö, forseti Finnlands, hefur heitið því að grípa til afdráttarlausra aðgerða vegna aukins fjölda hælisleitenda sem kemur til landsins frá Rússlandi. Segir hann um að ræða hefndaraðgerðir Rússa vegna samstarfs Finna og Bandaríkjamanna. Erlent 16. nóvember 2023 09:58
Hafa náð fótfestu á austurbakka Dnipro Úkraínskir landgönguliðar vinna nú hörðum höndum að því að stækka fótfestu þeirra á austurbakka Dnipro-ár í Kherson-héraði. Harðir bardagar hafa geisað á svæðinu en Úkraínumenn vilja koma bryndrekum yfir ánna. Erlent 15. nóvember 2023 22:42
Einn af morðingjum Politkovskayu náðaður eftir herþjónustu í Úkraínu Einn af mönnunum sem var dæmdur í fangelsi fyrir morðið á rússnesku blaðakonunni Önnu Politkovskayu árið 2006 hefur verið náðaður eftir að hafa barist í Úkraínu. Erlent 14. nóvember 2023 12:06
Andspyrnumenn felldu þrjá rússneska leyniþjónustumenn Að minnsta kosti þrír rússneskir leyniþjónustumenn voru drepnir í úkraínsku borginni Melitopol í gær. Erlent 13. nóvember 2023 07:57
Selenskí varar Úkraínumenn við auknum árásum á innviði Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur varað Úkraínumenn við auknar árásir Rússa á innviði í landinu nú þegar vetur gengur í garð. Hann segir herinn búinn undir sókn Rússa á austurvígstöðvunum. Erlent 13. nóvember 2023 03:16
Rússar gefa út handtökuskipun á hendur íslenskum ríkisborgara Yfirvöld í Rússlandi hafa gefið út handtökuskipun á hendur Liudmilu „Lucy“ Shtein, 27 ára meðlimi hljómsveitarinnar og aðgerðahópsins Pussy Riot. Erlent 8. nóvember 2023 08:53
Dó þegar afmælisgjöfin sprakk Aðstoðarmaður yfirmanns herafla Úkraínu dó í gær þegar handsprengja sem hann fékk í afmælisgjöf sprakk. Þrettán ára sonur mannsins, sem hét Gennadiy Chastyakov og var majór, særðist alvarlega en fyrst var talið að um banatilræði hefði verið að ræða. Erlent 7. nóvember 2023 23:41
Salúsjní segir þrátefli á víglínunni Valerí Salúsjní, yfirmaður herafla Úkraínu, segir ólíklegt að Úkraínumenn muni ná að brjóta sér leið í gegnum varnir Rússa og að stríðið í Úkraínu sé að færast í nýjan fasa staðbundins hernaðar og þreytistríðs (e: attritional warfare). Hann segir nýja tækni lykilinn að því að gera Úkraínumönnum kleift að sigra Rússa. Erlent 3. nóvember 2023 08:01
Fengu gervihnattatækni í skiptum fyrir sprengikúlur Sérfræðingar Leyniþjónustu Suður-Kóreu telja að nágrannar þeirra í norðri séu að undirbúa þriðju tilraunina til að skjóta gervihnetti á braut um jörðu. Geimvísindamenn Norður-Kóreu eru sagðir hafa fengið tæknilega aðstoð frá Rússum. Erlent 1. nóvember 2023 13:54
Carlsberg í hart við Pútín og Rússland Danski bruggrisinn Carlsberg hefur stigið fyrstu skrefin í átt að því að sækja bætur frá Rússlandi eftir að Pútín Rússlandsforseti skrifaði undir tilskipun sem kom dótturfyrirtæki Carlsberg undir Rússa. Viðskipti erlent 31. október 2023 23:00
Úkraínsk Rússahækja skotin á Krímskaga Oleg Tsarev, fyrrverandi þingmaður í Úkraínu, er á sjúkrahúsi og sagður í alvarlegu ástandi eftir að hann var skotinn á Krímskaga síðustu nótt. Tsarev er sakaður um að hafa svikið Úkraínu og gengið til liðs við Rússa. Erlent 27. október 2023 17:01
Segja Rússa taka eigin hermenn af lífi Yfirmenn í rússneska hernum taka eigin hermenn sem neita að fylgja skipunum af lífi og hafa hótað því að myrða heilu hersveitirnar, hörfi þær af víglínunum í Úkraínu. Þykir það til marks um lélegan baráttuanda rússneskra hersveita. Erlent 27. október 2023 13:37
Gengur illa að auka framleiðslu skotfæra Ætlanir Evrópusambandsins varðandi sendingar skotfæra til Úkraínu virðast ekki ætla að ganga eftir. Vandræði Evrópuríkja við að auka framleiðslu skotfæra gæti komið niður á vörnum Úkraínumanna og veitt Rússum ákveðið forskot. Erlent 26. október 2023 13:18
Slóvakía hættir hernaðaraðstoð við Úkraínu Nýskipaður forsætisráðherra Slóvakíu, Robert Fico, tilkynnti fyrr í dag að stjórnvöld þar í landi muni stöðva hernaðaraðstoð til Úkraínu og hætta þátttöku landsins í viðskiptabanni gagnvart Rússlandi. Erlent 26. október 2023 13:15
Rússar sækja hart fram í austri Undanfarna daga hafa gífurlega harðir bardagar átt sér stað í austurhluta Úkraínu. Þar hafa Rússar reynt að umkringja víggirta úkraínska hermenn við bæinn Avdívka og hafa þeir náð einhverjum árangri. Sókninni hefur þó fylgt gífurlegur kostnaður fyrir Rússa. Erlent 24. október 2023 23:30
Njósnarar þjálfaðir af CIA heyja skuggastríð gegn Rússum Hópar úkraínskra njósnara sem hafa náin tengsl við Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) og hafa jafnvel verið þjálfaðir í Bandaríkjunum eru sagðir heyja eigið stríð gegn Rússlandi í skuggunum. Þeir eru meðal annars sagðir hafa myrt Daríu Dugina í sprengjuárás, samverkamenn Rússa í austurhluta Úkraínu og rússneska hermenn. Erlent 24. október 2023 10:56
Sex létust þegar flugskeyti hæfði pósthús í Kharkiv Sex eru látnir og fjórtán særðir eftir að flugskeyti hæfði póstdreifingarmiðstöð í borginni Kharkiv í austurhluta Úkraínu í kvöld. Erlent 21. október 2023 22:43
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Erfiður vetur í vændum hjá Úkraínumönnum Úkraínumönnum tókst ekki að brjóta sér leið í gegnum varnir Rússa í suðurhluta Úkraínu í sumar. Eftir fimm mánaða átök er vetur að skella á, sem mun gera frekari sóknir erfiðar. Þá eiga Rússar enn í umfangsmiklum árásum við bæinn Avdívka í austurhluta Úkraínu, sem hafa skilað litlum árangri og kostað Rússa mikið. Erlent 21. október 2023 09:01
Evrópskir leiðtogar í uppnámi vegna fundar Pútín og Orbán Leiðtogar og sendiherrar í Evrópu eru ósáttir við fund leiðtoga Rússlands og Ungverjalands í vikunni. Talsmaður Ungverjalands segir það þó alltaf hafa verið skýrt að forsetinn vildi halda samtalinu opnu. Erlent 20. október 2023 08:55
Stuðningurinn við Ísrael og Úkraínu sé skynsamleg fjárfesting til framtíðar Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði Bandaríkjamenn frá skrifstofu sinni í Hvíta húsinu í gær og biðlaði til þeirra um að hverfa ekki frá hlutverki sínu sem „leiðarljós“ heimsins. Erlent 20. október 2023 06:32
Fyrsta símtal Bjarna í embætti til Úkraínu Fyrsta símtal Bjarna Benediktssonar í embætti utanríkisráðherra var til Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu. Innlent 18. október 2023 18:39
Sagðar meðal verstu árása sem Rússar hafa orðið fyrir Úkraínumenn segjast hafa grandað minnst níu herþyrlum Rússa, loftvarnarkerfi, skotfærum og öðrum hergögnum í árásum á tvo flugvelli í nótt. Rússneskir herbloggarar segja árásirnar meðal þeirra alvarlegustu sem Rússar hafa orðið fyrir í stríðinu. Erlent 17. október 2023 11:32
Pútín staddur í Kína Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er staddur í Peking í Kína, þar sem hann mun funda með Xi Jinping, forseta Kína. Þetta er í annað sinn sem Pútín fer frá Rússlandi síðan innrás Rússa í Úkraínu hófst í fyrra en Alþjóðasakamáladómstóllinn hefur gefið út handtökuskipun gagnvart honum. Erlent 17. október 2023 10:47
Reyna að umkringja úkraínska hermenn Rússneskar hersveitir hafa á undanförnum dögum gert umfangsmiklar árásir við bæinn Avdívka í austurhluta Úkraínu. Markmið þeirra virðist hafa verið að skera á birgðalínur úkraínskra hermanna í borginni en áhlaupið hefur skilað takmörkuðum árangri hingað til. Erlent 12. október 2023 22:00
NATO hótar afdráttarlausum viðbrögðum ef skemmdirnar reynast viljaverk Atlantshafsbandalagið hefur heitið afdráttarlausum viðbrögðum ef það kemur í ljós að skemmdir á gasleiðslu sem liggur á milli Finnlands og Eistlands reynast viljaverk. Erlent 12. október 2023 08:42
Þvinga fanga til að flytja skotfæri gegnum jarðsprengjusvæði Rannsakendur Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna segjast hafa staðfest að sex úkraínskir stríðsfangar hafi verið teknir af lífi af föngurum sínum. Stofnunin hefur einnig staðfest tvær grimmilegar aftökur úkraínskra manna sem tekin voru upp á myndbönd sem birt voru á netinu. Erlent 7. október 2023 09:00
Brestir að myndast í samstöðunni með Úkraínu Leiðtogar aðildarríkja Evrópusambandsins hafa safnast saman í Granada á Spáni þar sem til stendur að ræða meðal annars stækkun sambandins, flóttamannastrauminn og áframhaldandi stuðning við Úkraínu. Erlent 6. október 2023 07:38
Handsprengjubrot hafi fundist í líkum í flakinu Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir að brot úr handsprengju hafi fundist í líkum fólks sem fórst með flugvél Jevgení Prígósjíns í ágúst. Erlent 5. október 2023 18:36
Segja 49 hafa fallið í árás á matvöruverslun Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir 49 manns hafa fallið í árás Rússa á matvöruverslun og kaffihús í þorpinu Hroza í Karkívhéraði. Sex ára drengur er meðal hinna látnu en minnst sex aðrir særðust í árásinni. Erlent 5. október 2023 13:59
Tekist á um áframhaldandi fjárstuðning við Úkraínu Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur heitið áframhaldandi stuðningi Bandaríkjanna við Úkraínu, jafnvel þótt aukinn fjöldi Repúblikana sé nú á móti auknum fjárútlátum vegna stríðsátakana í landinu. Erlent 2. október 2023 07:15