

Samkvæmislífið
Fréttir af fólki að gera sér glaðan dag við hin ýmsu tilefni.

Ósýnilegum konum fagnað á Hverfisgötu
Á dögunum kom út íslensk þýðing á bókinni Invisible Women. Sæunn Gísladóttir þýddi bókina Ósýnilegar konur en hún hefur brennandi áhuga á efni bókarinnar. Útgáfunni var fagnað í bókabúð útgáfunnar Sölku á Hverfisgötu.

Myndaveisla frá Extreme Chill-hátíðinni
Tónlistarhátíðin Extreme Chill fór fram í Reykjavík dagana 7. til 10. október en þetta er ellefta árið sem hátíðin er haldin.

Bríet gerði áhorfendur agndofa í Hörpu
Söngkonan Bríet hélt tvenna tónleika í Eldborgarsal Hörpu á föstudag. Á tónleikunum sýndi þessi listakona enn og aftur hversu ótrúlega hæfileikarík og fjölhæf hún er.

Kröftugar konur veittu innblástur í Hörpu
Kraftur hélt í gær Kröftuga kvennastund í Silfurbergi í Hörpu þar sem yfir 130 manns komu saman og fengu kraft og innblástur frá öðrum. Markmið kvennastundarinnar var að fá konur til að deila reynslu sinni, hvaða þær sækja sinn styrk, hvernig þær hafa tekist á við áskoranir í lífinu og gefa öðrum innblástur og kraft.

Gunnlaugur Sigfússon barnahjartalæknir hlaut Míuverðlaunin
Míuverðlaunin voru afhent í annað sinn í gær við hátíðlega athöfn í Cava salnum. 42 heilbrigðisstarfsmenn sem vinna með langveikum börnum voru heiðraðir á viðburðinum.

Stóð vaktina í Surtseyjargosi og Heimaeyjareldum
Fjöldi fólks fagnaði á dögunum útgáfu bókarinnar Sigurður Þórarinsson - Mynd af manni eftir Sigrúnu Helgadóttur.

Leynilögga loksins frumsýnd á Íslandi
Kvikmyndin Leynilögga hefur slegið í gegn á kvikmyndahátíðum síðustu mánuði og fengið mikið lof gagnrýnenda erlendis. Eftir mikla eftirvæntingu var myndin frumsýnd í Egilshöll í gær.

Drottningin lokaði vel heppnaðri hátíð
RIFF kvikmyndahátíðinni er lokið og var endað á sérstakri heiðurssýningu á kvikmyndinni Margrét - Drottning norðursins. Trine Dyrholm leikur Margréti í myndinni og var hún viðstödd.

Troðfullt í Bíó Paradís á hinstu mynd Árna Ólafs
Kvikmyndagerðarmaðurinn Árni Ólafur Ásgeirsson lést fyrr á þessu ári en hann markaði djúp spor í íslenskt kvikmyndalíf sem listamaður og manneskja. Hans fjórða og hinsta mynd, Wolka, var frumsýnd á RIFF í ár og var hún sýnd í nokkrum sölum í einu vegna fjölda gesta.

Versta manneskja í heimi opnaði RIFF í Gamla bíói
RIFF - Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík var sett formlega í Gamla bíói í gær. Opnunarmynd hátíðarinnar var kvikmyndin Versta manneskja í heimi.

Stjörnulífið: Kosningahelgi og tilfinningalegur rússíbani
Eins og fór vonandi ekki fram hjá neinum voru Alþingiskosningar hér á landi um helgina og Íslendingar flykktust á kjörstað.

Fjölskyldustemning á frumsýningu Kjarval
Fjölskyldusýningin Kjarval var frumsýnd í Borgarleikhúsinu í gær. Sýningin byggir að hluta til á verðlaunabók Margrétar Tryggvadóttur um listamanninn.

Sigurpartýið lét aðrar kosningavökur líta út eins og fermingarveislur
Blaðamaður og ljósmyndari tóku púlsinn á öllum kosningarvökum flokkanna í gær. Tíu partý dreifð um allt höfuðborgarsvæðið og var stemningin mjög ólík á hverjum viðkomustað, allt frá rólegu kaffiboði í kirkju yfir í tónleika Herra Hnetusmjörs í troðfullu partýi Framsóknarmanna úti á Granda en þar var stemningin áberandi best.

Tískudrottningar landsins sameinuðust í afmælisboði
Verslunin Kiosk Granda varð eins árs á dögunum og slógu hönnuðirnir Anita Hirlekar, Eygló, Hlín Reykdal, Magnea Einars og Helga Lilja upp ótrúlega flottri afmælisveislu.

Hátíðarsýning á Dýrinu fyrir fullum sal í Háskólabíó
Hátíðarsýning var á íslensku kvikmyndinni Dýrið í Háskólabíói í gær fyrir fullum sal. Myndin hlaut mjög góðar viðtökur á meðal gesta.

Hláturinn bergmálaði um allt Borgarleikhúsið
Leikverkið Þétting hryggðar var frumsýnt í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi Verkið er brjálæðislega hnyttið, skemmtilegt og um fram allt vel leikið.

Stjörnulífið: Flutningar, ferðalög og djammið
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga.

Bó sá sjálfan sig loksins á sviði í Borgarleikhúsinu í gær
Björgvin Halldórsson mætti á sýningu á Níu líf í Borgarleikhúsinu gær. Hann gat því loksins hitt sjálfan sig þar sem Halldór Gylfason fer með hlutverk Bó í sýningunni.

Pallíettur og blöðruregnbogi á frumsýningu Æði 3
Fyrstu tveir þættirnir úr þriðju þáttaröðinni af Æði voru frumsýndir fyrir boðsgesti í Bíó Paradís í gær. DJ Dóra Júlía þeytti skífum á meðan gestir skáluðu með þeim Patta, Binna og Bassa áður en gestir færðu sig inn í bíósalinn.

Rómeó og Júlía í mótun fram á lokastundu fyrir frumsýningu
Um helgina var frumsýnt verkið Rómeó og Júlía í Þjóðleikhúsinu í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar. Um er að ræða einstaka uppsetningu á þessu fræga verki og nær Þorleifur algjörlega að setja sinn svip á sýninguna.

Sjóðheitt útgáfuboð fyrir vinsælustu bók landsins
Barnabókahöfundurinn Bergrún Íris Sævarsdóttir hélt á dögunum sjóðheitt útgáfuboð tilefni af útgáfu bókarinnar Kennarinn sem kveikti í. Um er að ræða funheita barnabók og var þemað tekið alla leið í fjölmennu boðinu.

Þakið ætlaði af Gamla bíói á frumsýningu Hlið við hlið
Í gær var söngleikurinn Hlið við hlið frumsýndur í Gamla bíói. Hlið við hlið er söngleikur með lögum þjóðþekkta listamannsins Friðriks Dórs Jónssonar, leikstýrt af Höskuldi Þór Jónssyni.

Stjörnulífið: Brúðkaup, veiði og ævintýri í útlöndum
Íslendingar eru á faraldsfæti þrátt fyrir heimsfaraldurinn og virðist sem margir séu að njóta lífsins á heitari slóðum þessa dagana. Ástin lá í loftinu þessa vikuna og var mikið um brúðkaupsveislur um helgina.

Sjáðu stemninguna á opnunarkvöldi Bankastræti Club
Nýr klúbbur verður opnaður í kvöld, eins og hefur kannski ekki farið fram hjá mörgum, þar sem hinn vinsæli B5 var áður til húsa. Klúbburinn, Bankastræti Club, er nokkuð ólíkur öðrum skemmtistöðum miðbæjarins.

Sælkerarar fögnuðu nýrri matreiðslubók
Meistarakokkarnir Viktor Örn Andrésson og Hinrik Örn Lárusson eigendur Sælkerabúðarinnar sendu á dögunum frá sér bókina GRILL og var útgáfu bókarinnar fagnað í vikunni.

Bókaþyrstir skáluðu í opnunarteiti Sölku
Salka hefur opnað nýja bókabúð á Hverfisgötu. Í henni má finna bækur íslenskra útgefenda og einnig úrval erlendra bóka. Eigendur Sölku eru Anna Lea Friðriksdóttir og Dögg Hjaltalín en þær eru alvanar bóksölu og kynntust meira að segja í bókabúð.

Frumsýning Saumaklúbbsins var stjörnum prýdd
Gamanmyndin Saumaklúbburinn var frumsýnd í gær og var gríðarlega góð mæting á frumsýninguna í Laugarásbíói.

Fjölmennt á frumsýningu Little Kingdom í gær
Í gær var myndin íslensk/slavneska myndin Little Kingdom frumsýnd á Stockfish Kvikmyndahátíðinni við frábærar undirtektir áhorfenda.

Þeim var boðið ásamt forsetahjónunum í hátíðarkvöldverð Svíakonungs
Mikið var um dýrðir þegar fólk fjölmenni mætti í hátíðarkvöldverð Karls Gústafs Svíakonungs til heiðurs forsetahjónunum íslensku, Guðna Th. Jóhannessyni og Elizu Reid, í sænsku konungshöllinni í kvöld.