„Ekki sitja í störukeppni á meðan molnar undan unga fólkinu“ Hljóðið er fremur þungt í skólameisturum Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri en ótímabundið verkfall er skollið á í skólunum tveimur, auk þriggja annarra. Þeir vilja að deiluaðilar sitji við og fundi að lausn deilunnar, það sé ekki í boði að vera í störukeppni á meðan nemendur verði af menntun. Innlent 24. febrúar 2025 19:35
Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn haldi skólakerfinu í gíslingu Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Hafnarfirði hafi lýst yfir fullum stuðningi við þá afstöðu formanns stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga að samþykkja innanhússtillögu ríkissáttasemjara sem lögð var fram 20. febrúar síðastliðinn. Þeir segja fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknar halda skólakerfinu í gíslingu með pólitískum leikjum. Innlent 24. febrúar 2025 16:53
„Þetta er atriðið þar sem þið takið til fótanna…” „Þetta er atriðið þar sem þið takið til fótanna…” sagði Shrek og nú langar manni að segja það sama við kennara. Já, það virðist að samtöl Kennarasambandsins og Sambands sveitarfélaga séu nú á stigi leikrits og brandara. En kennurum finnst þetta alls ekki fyndið lengur. Skoðun 24. febrúar 2025 16:04
Opið bréf til Jóns Björns Hákonarsonar Opið bréf til Jóns Björns Hákonarsonar, forseta sveitarstjórnar í Fjarðabyggð og stjórnarmanns í Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Skoðun 24. febrúar 2025 14:01
Grasrót kennara lætur til sín taka á samfélagsmiðlum Jón Hákon Halldórsson kennari í Foldaskóla segir mælinn fullan og tímabært að sýna fullan stuðning við kennaraforystuna. Innlent 24. febrúar 2025 13:27
Óttast afleiðingarnar ef kennarar fá mun meiri hækkun en aðrir Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segist hafa haft áhyggjur af fyrri innanhússtillögu ríkissáttasemjara í kennaradeilunni sem opinberir launagreiðendur samþykktu en nýja tillagan hljóðar upp á enn hærri upphæðir. Hún segist velta fyrir sér hvaða áhrif slíkar hækkanir, ef af verður, muni hafa á þá samninga sem þegar hafa verið gerðir og þá sem eftir á að gera. Innlent 24. febrúar 2025 13:16
Samræmd próf jafna stöðuna Áhrifamikið fólk í skólamálum hefur haft horn í síðu samræmdra prófa og fundið þeim eitthvað til foráttu og má þar nefna þrennt helst. Skoðun 24. febrúar 2025 11:01
Síðasti naglinn í líkkistuna? Þegar þessi skoðun mín birtist lesendum er ég að stíga afar erfið skref inn á minn vinnustað. Ástæðan er sú vanvirðing og það vonleysi sem ég upplifði síðasta föstudag þegar SÍS hafnaði nýrri innanhústillögu ríkissáttasemjara og þær uppgefnu ástæður fyrir þeirri ákvörðun sem ég les um í fjölmiðlum og heyri um frá mínu fólki. Skoðun 24. febrúar 2025 07:32
Áfram kennarar! Ég tel mig alltaf hafa borið virðingu fyrir kennurum og er þakklát öllum þeim kennurum sem hafa mótað mig og mitt líf en ég gerði mér þó ekki fullkomlega grein fyrir virði kennara fyrr en ég varð foreldri barna í leik- og grunnskóla. Þá fyrst áttaði ég mig á því hversu ómetanlegt það er að vita af börnum mínum í höndum frábærra kennara. Skoðun 23. febrúar 2025 16:01
Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Til greina kemur að Reykjavíkurborg kljúfi sig frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga í kjaraviðræðunum við kennara og geri sérsamninga við Kennarasamband íslands, ef marka má orðræðu nýs meirihluta í borgarstjórn. Innlent 23. febrúar 2025 14:30
Hafnaðir þú Margrét Sanders? Við, undirrituð, fulltrúar Kennarafélags Reykjanes, 9.deild Félags leikskólakennara (FL), Félags stjórnenda leikskóla (FSL) og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, skorum á þig sem fulltrúa í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga að greina frá þinni afstöðu til innanhússtillögu ríkissáttasemjara í kjaradeilu sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Skoðun 23. febrúar 2025 11:31
Opið bréf til Einars Þorsteinssonar og Hildar Björnsdóttur - Hafið þið enga sómakennd? Fyrir 9 árum gerðu opinberir starfmenn samning við ríkið og sveitarfélög um skerðingu lífeyrisréttinda gegn jöfnun launa á milli markaða. Á þessum tíma hefur lítið áunnist og oftar en ekki lítill áhugi verið á því af hendi viðsemjenda okkar að fara í þessa vegferð. Skoðun 22. febrúar 2025 17:02
Opið bréf til bæjarstjóra Kópavogs Ég hef starfað í Kópavogi frá því ég útskrifaðist úr Kennararháskólanum árið 2006 fyrst sem leikskólakennari svo sem deildastjóri, aðstoðarskólastjóri og nú síðast sem skólstjóri. Ég hef oftast verið stolt af því að vinna fyrir Kópavogsbæ margt hefur verið gert vel. Skoðun 22. febrúar 2025 16:00
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga er sama um menntun barna en hvað með foreldra? Ríkissáttasemjari lagði fram innanhússtillögu á fimmtudaginn til að reyna að binda enda á þann stórskaða sem samningsleysi og vanvirðing gagnvart kennurum og menntakerfinu hefur haft á kennarastéttina alla. Skoðun 22. febrúar 2025 15:30
Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga í kjaradeilunni gegn kennurum, segir ekkert til í ásökunum formanns Kennarasambands Íslands um að Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn standi í vegi fyrir samningum til að koma höggi á ríkisstjórnina. Innlent 22. febrúar 2025 13:55
Á hlóðum Mennta- og barnamálaráðuneytisins Fyrir og eftir Menntaþing í september á síðasta ári, var duglega fírað undir pottum nýbreytni í menntamálum landsins á borð við inngildingu, farsæld, Frigg, valdeflingu, matsferil, heillaspor, landsteymi og memm með tilheyrandi brúarsmíði og tvítyngisráðgjöf fyrir innflytjendur. Þáverandi ráðherra og hans hugmyndateymi hafði vafalaust gengið gott eitt til með slíkum gæðahugmyndum, en óneitanlega svolítið útópískum og á kostnað annarra mikilvægra málaflokka. Skoðun 22. febrúar 2025 13:33
Skora á fulltrúa sveitarfélaganna að greina frá sinni afstöðu Stjórn Kennarasambandsins hefur skorað á fulltrúa í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga að greina frá sinni afstöðu til innanhústillögu ríkissáttasemjara. Sveitarfélögin höfnuðu innanhústillögu ríkissáttasemjara í gær, en Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og formaður SÍF, hefur sagst hafa stutt tillöguna. Innlent 22. febrúar 2025 11:10
Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Magnea Arnardóttir leikskólakennari sagði upp starfi sínu á leikskólanum Rauðhóli eftir tíðindi dagsins í kjaradeilu kennara. Hún telur að fleiri munu fara sömu leið. Innlent 21. febrúar 2025 23:02
Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Formaður Kennarasambandsins segir höfnun samninganefndar sveitarfélaganna á innanhússtillögu ríkissáttasemja ekki hafa með pening að gera heldur pólitík. Sellur Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks innan sambandsins hafi komið í veg fyrir að samningar næðust. Innlent 21. febrúar 2025 20:03
Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Fjöldi kennara minnti á kjarabaráttu sína bæði á pöllunum í borgarstjórnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og sömuleiðis fyrir utan húsið. Kjaradeila kennara er í hnút eftir að Samband íslenskra sveitarfélaga hafnaði tillögu sáttasemjara í hádeginu í dag. Nýr borgarstjóri og formaður sambandsins segist hafa stutt tillögu sáttasemjara og skoði sín mál. Innlent 21. febrúar 2025 16:58
„Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Skólastjórnendur Vogaskóla í Reykjavík hafa sent foreldrum nemenda tölvupóst vegna umfjöllunar Kveiks um ofbeldi innan skólans. Þar segir að skólastjórnendur hafi farið í alla bekki unglingadeildar og rætt um efni þáttarins. Innlent 21. febrúar 2025 16:26
Snúist ekkert um hvort börnin eigi íslenska eða erlenda foreldra Hermann Austmar á dóttur í sjöunda bekk í Breiðholtsskóla þar sem hann segir hóp drengja hafa áreitt aðra nemendur bæði andlega og líkamlega. Lífið 21. febrúar 2025 15:40
Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga segist hafa kynnt ríkissáttasemjara að þeim litist ekki á innanhússtillögu hans á fundi sem fram fór í gær. Innlent 21. febrúar 2025 15:36
Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag Skólastjóri Laugalækjarskóla hefur tilkynnt forráðamönnum barna við skólann að á upptökum úr öryggismyndavélum sjáist ókunnugur fullorðinn maður kasta tösku upp á syllu á þaki skólans, um klukkan 16 á fimmtudag síðustu viku. Í töskunni hafi skotvopnið verið, sem nemendur skólans fundu. Innlent 21. febrúar 2025 15:01
„Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Íris Björk Eysteinsdóttir, aðstoðarskólastjóri í Hörðuvallaskóla, segir stjórnendur skólans standa með kennurum. Margir þeirra hafa lagt niður störf í dag í kjölfar þess að kjarasamningur sem Ríkissáttasemjari hafði lagt til var hafnað af Sveitarfélögunum. Innlent 21. febrúar 2025 14:43
Skilur vel reiðina sem blossi upp Formaður Félags grunnskólakennara segist hafa fullan skilning á því að kennarar treysti sér ekki til kennslu eftir hádegið í dag eftir útspil Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hún hafi þó ekki vitað af skipulagðri útgöngu kennara víða um landið. Innlent 21. febrúar 2025 14:25
Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Formaður Kennarasambands Íslands klórar sér í kollinum yfir því að Samband íslenskra sveitarfélaga hafni nú forsenduákvæði í tillögu ríkissáttasemjara sem sambandið samþykkti í janúar. Hann segir útgöngu kennara víða um land í dag hafa verið alfarið án hans vitneskju. Innlent 21. febrúar 2025 14:04
Óljóst með skólahald eftir helgi Hermann Örn Kristjánsson, skólastjóri Sunnulækjarskóla á Selfossi, segist skilja aðgerðir kennara vel, en margir þeirra hafa lagt niður störf í dag í kjölfar þess að kjarasamningur sem Ríkissáttasemjari hafði lagt til var hafnað af Sveitarfélögunum. Innlent 21. febrúar 2025 13:59
Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Kennarar í fjölmörgum grunnskólum landsins lögðu niður störf klukkan tólf á hádegi. Formaður félags grunnskólakennara segir ekki um skipulagða aðgerð á vegum félagsins að ræða. Innlent 21. febrúar 2025 12:34
Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Samband íslenskra sveitarfélaga hafnaði klukkan 11:59 innanhússtillögu ríkissáttasemjara í deilu kennara við hið opinbera. Kennarar samþykktu tillöguna síðdegis í gær en sveitarfélögin telja sig ekki geta fallist á tvennt í tillögu sáttasemjara. Innlent 21. febrúar 2025 11:29