Kaldri norðlægri átt beint til landsins Hæð yfir Grænlandi og lægð fyrir norðaustan land beina til okkar kaldri norðlægri átt og má víða gera ráð fyrir kalda eða strekkingi í dag og dálitlum éljum. Það verður bjart að mestu um landið suðvestanvert. Veður 28.11.2024 07:11
Gul viðvörun á Vestfjörðum Gul viðvörun er í gildi á norðanverðum Vestfjörðum til klukkan tvö í nótt. Veður 27.11.2024 19:59
Tvær sviðsmyndir á kjördag Kjördegi í heild sinni verður ekki frestað að sögn framkvæmdastjóra landskjörstjórnar sem liggur yfir veðurspánni. Veðrið gæti þó valdið því að niðurstaða kosninga liggi fyrir síðar en ella. Innlent 27.11.2024 12:03
Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Mikill ís er í Ölfusá við Selfoss í kjölfar kuldatíðar síðustu daga, ekki síst við Selfosskirkju og Selfossbæina. Innlent 25. nóvember 2024 14:32
Töluverðar líkur á leiðindaveðri á kjördag Veðrið gæti sett strik í reikninginn á kjördag þegar spáð er leiðindaveðri um mest allt land sem gæti torveldað flutning atkvæða til talningastaða. Hátt í átján þúsund manns hafa nú þegar kosið utan kjörfundar. Innlent 25. nóvember 2024 11:52
Norðanátt og éljalofti beint til landsins Allmikil lægð er nú yfir Skotlandi sem hreyfist í norðaustur og grynnist, en beinir norðanátt og éljalofti til landsins. Á Grænlandshafi er hins vegar vaxandi hæðarhryggur, sem þokast austur yfir landið í dag og veldur því að vindurinn dettur niður og léttir til. Veður 25. nóvember 2024 07:05
Áfram kalt og bætir í vind á morgun Hæð yfir Grænlandi og víðáttumikil lægð yfir Skandinavíu stýra veðrinu í dag þar sem búast má við norðaustlægri átt, víða stinningsgolu eða strekkingi og lítilsháttar éljum á Norður- og Austurlandi. Það mun svo bæta þar í ofankomu seint í dag. Veður 22. nóvember 2024 07:04
Áfram kalt á landinu en bjartviðri sunnan heiða Útlit er fyrir norðlæga átt í dag þar sem víða verður stinningsgola en allhvasst á Austfjörðum fyrripart dags. Veður 21. nóvember 2024 07:24
Leiðindafæri á Austurlandi og víða þungfært Leiðindafæri er víða á Austurlandi og þungfært nokkuð víða. Unnið er á mokstri en það gæti tekið tíma. Einnig er ófært um Öxi, Breiðdalsheiði og Mjóafjarðarheiði. Innlent 19. nóvember 2024 07:35
Áfram köld og norðlæg átt Hæð yfir Grænlandi og lægð við vesturströnd Noregs beina áfram til okkar kaldri norðlægri átt, víða átta til fimmtán metra á sekúndu, og éljum. Lengst af verður þurrt og bjart sunnantil á landinu. Veður 19. nóvember 2024 07:09
Heimskautaflofti beint til landsins í sífellu Hæð yfir Grænlandi og víðáttumikil lægð yfir Skandinavíu beina nú í sífellu heimskautalofti úr norðri til landsins. Þessi staða veðrakerfa virðist ætla að verða þrálát og því er líklegt að það verði kalt í veðri hjá okkur alla vikuna. Veður 18. nóvember 2024 07:08
Stinningskaldi og él fram í miðja viku og svo kólni frekar Gular viðvaranir vegna hríðarveðurs gilda fram eftir morgni á Norðurlandi eystra, Austfjörðum og Austurlandi að Glettingi. Viðvörun vegna hvassviðris eða storms gildir á Suðurausturlandi fram til klukkan 16 í dag. Veður 16. nóvember 2024 08:05
Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Ragnar Erling Hermannsson skorar á fólk að prófa að dvelja á kaffistofu Samhjálpar í heilan dag. Hann kallar eftir því að heimilislausu fólki verði úthlutað íbúðum hjá Félagsbústöðum. Sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar segir reynt að gæta að mannúð í samskiptum við heimilislaust fólk. Innlent 15. nóvember 2024 14:48
Skerðingum að hluta frestað þökk sé hlýindum Landsvirkjun hefur ákveðið að fresta skerðingum á raforku til stórnotenda á norður- og austurhluta landsins til áramóta hið minnsta. Ástæðan er sögð batnandi staða miðlunarlóna eftir hlýindin og úrkomuna undanfarið, sem leitt hafi til þess að niðurdráttur hafi stöðvast tímabundið í öllum lónum. Viðskipti innlent 15. nóvember 2024 11:00
Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Norðvestan hvassviðrði eða stormur er að ganga yfir landið í dag og gular eða appelsínugular viðvaranir verða í gildi í öllum landshlutum á einhverjum tímapunkti næsta sólarhringinn og gott betur. Innlent 15. nóvember 2024 07:03
Sextán flugferðum aflýst Sextán flugferðum frá Keflavíkurflugvelli sem voru á áætlun í fyrramálið hefur nú verið aflýst sökum veðurs. Búið er að gefa út gula og appelsínugula veðurviðvörun fyrir stóran hluta landsins á morgun. Innlent 14. nóvember 2024 20:42
Hitamet féll Hitamet féll á Kvískerjum í Öræfum dag þegar hitinn mældist 23,8 gráður. Aldrei áður hefur mælst eins mikill hiti í nóvember á Íslandi. Þá hafa hátt í þrjátíu aurskriður fallið síðan á mánudag sem tengist þessum hlýindum. Innlent 14. nóvember 2024 19:01
Myndband sýnir umfang skriðanna í Eyrarhlíð Vegagerðin hefur birt myndband sem sýnir vel umfang þeirra aurskriða sem féllu yfir veginn um Eyrarhlíð, milli Ísafjarðar og Hnífsdals á þriðjudag. Þar má einnig sjá starfsfólk Vegagerðarinnar við vinnu að hreinsa veginn. Innlent 14. nóvember 2024 12:57
Viðvaranirnar sumar orðnar appelsínugular Veðurstofan hefur gefið út appelsínugular viðvaranir á Norðurlandi estra, Austurlandi og Suðausturlandi vegna norðvestan stórhríðar sem mun skella landið á morgun. Áður var búið að gefa út gular viðvaranir á landinu öllu vegna óveðursins, en gular viðvaranir verða áfram í gildi í öðrum landshlutum. Veður 14. nóvember 2024 11:21
Allhvöss suðvestanátt og hlýtt en illviðri á morgun Veðurstofan gerir ráð fyrir allhvassri eða hvassri suðvestanátt í dag og hlýtt í veðri. Súld eða rigning, en lengst af þurrt um landið norðaustanvert. Veður 14. nóvember 2024 07:17
Flateyringum ráðlagt að sjóða neysluvatn Veginum um Eyrarhlíð, á milli Ísafjarðar og Hnífsdals var lokað að nýju á miðnætti vegna skriðuhættu. Lögreglan ákvað þetta í gær í öryggisskyni en gert er ráð fyrir frekari úrkomu á Vestfjörðum og er óvissustig vegna skriðuhættu enn í gildi. Innlent 14. nóvember 2024 06:47
Hundruð umsókna frá bændum vegna tjóns í kuldatíð í vor og sumar Tjón af völdum óvenjulegrar kuldatíðar í vor og sumar hefur verið skráð á fjórða hundrað búa, fyrst og fremst á Norðurlandi. Starfshópur á vegum ríkisstjórnarinnar á að fara yfir tjón bænda og leggja fram tillögur um stuðning við þá. Innlent 13. nóvember 2024 14:12
Búast má við frekari vegalokunum þegar byrjar aftur að rigna Búið er að opna aftur vegi sem lokað var á norðanverðum Vestfjörðum í gær vegna aurskriða sem féllu, þrátt fyrir miklar skemmdir, og eins hefur Bíldudalsvegur verið opnaður að nýju. Óvissustig er enn í gildi og viðbragðsaðilar í viðbragðsstöðu. Búast má við úrkomu í kvöld og vegalokunum vegna þess. Innlent 13. nóvember 2024 12:06
Hafa opnað veginn um Eyrarhlíð á ný Búið er að opna veginn um Eyrarhlíð á nýjan leik. Vegurinn liggur á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur og var lokað fyrr í vikunni eftir að aurskriður féllu þar. Innlent 13. nóvember 2024 11:20