

Víglínan
Þjóðmálaþáttur á vegum fréttastofu Stöðvar 2 þar sem fjallað er um það helsta sem er í umræðunni hverju sinni.

Síðustu dagar kjörtímabilsins að renna upp á Alþingi
Síðustu dagar þingstarfa á yfirstandandi kjörtímabili eru framundan í vikunni og setja svip sinn á Víglínuna á Stöð 2 í dag. Eldhúsdagsumræður fara fram á morgun og samkvæmt starfsáæltun á þingstörfum á vorþingi að ljúka næst komandi fimmtudag hinn 10. júní.
Fréttir í tímaröð

Leggja til að fallið verði frá skyldu um lágmarksfjölda íbúa sveitarfélaga
Fallið verður frá skyldu um lágmarksfjölda íbúa sveitarfélaga ef breytingartillaga meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar nær fram að ganga. Ráðherra sveitarstjórnarmála segir að með þessu sé verið að hlusta á sjónarmið minni sveitarfélaga.

Í höndum Kolbeins hvort hann sitji út kjörtímabilið
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna, segir þingflokkinn ekki hafa boðvald yfir sínum þingmönnum um hvað þeir gera. Mál sem varðaði hegðun Kolbeins Óttarssonar Proppé, þingmanns Vinstri grænna, var tilkynnt til fagráðs flokksins en þingflokkurinn hafði ekki vitneskju um það fyrr en hann sjálfur greindi frá því. Kolbeinn dró framboð sitt í forvali flokksins til baka í kjölfarið.

Maður minnisblaðanna, Covid og pólitík í Víglínunni
Fárra minnisblaða er beðið með annarri eins eftirvæntingu og minnisblaða Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra. Heimir Már Pétursson fréttamaður ræðir við hann og formanna og varaformann velferðarnefndar í Víglínunni á Stöð 2 í dag.

Sér vel fyrir sér áframhaldandi samstarf við VG og Framsókn
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það skyldu stjórnarflokkanna þriggja að skoða áframhaldandi samstarf fái þeir fylgi til þess í komandi Alþingiskosningum.

Vill færa Eldfjallasafnið úr Stykkishólmi á Reykjanes
Eldgosið í Geldingadölum markar mikil tímamót í jarðsögunni þar sem vísindamenn fá í fyrsta skipti innsýn í möttulinn undir Íslandi. Þetta sagði Haraldur Sigurðsson, eldfjallafræðingur, í Víglínunni í dag.

Tilfærsla Krýsuvíkur á Reykjanesi og vonbrigði fjármálaráðherra með fjárfestingar í Víglínunni
Heimir Már Pétursson fréttamaður fær Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra og Harald Sigurðsson eldfjallafræðing til sín í Víglínuna á Stöð 2 í dag. Rætt verður um fjármálaáætlun og aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins við Bjarna og eldgosið í Geldingadölum við Harald.

Sönnunargögn til staðar en málin samt felld niður
„Þarna voru til staðar játningar í skilaboðum og SMS-um, það voru myndbandsupptökur, Snapchat-upptökur á meðan brotið átti sér stað, það eru vitnisburðir vitna, áverkavottorð og vottorð sálfræðinga um andlegar afleiðingar. Samt eru þessi mál felld niður og fá ekki áheyrn dómstóla.“

Hjúkrunarheimili, baráttan um miðjuna og kynferðisofbeldi í Víglínunni
Í vikunni gagnrýndu Vestmannaeyjabær og Fjarðabyggð hvernig heilbrigðisyfirvöld ætla að standa að yfirtöku hjúkrunarheimila í bæjarfélögunum eftir að þau ákváðu að hætta rekstri þeirra sjálf.

„Ansi nálægt því að vera misnotkun á markaðsráðandi stöðu“
Það að Mjólkursamsalan selji erlendum matvælafyrirtækjum nýmjólkurduft á lægra verði en íslenskum matvælafyrirtækjum fer ansi nálægt því að vera misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Þetta segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Hann segir íslenska framleiðendur ekki eiga annarra kosta völ en að kaupa duftið frá MS þar sem innflutningstollar séu meðal þeirra hæstu í heimi.

Vill að fólk borgi fyrir dvölina að fullu ef það getur
Forstjóri Grundarheimilanna segir íslenska ríkið ekki geta staðið undir rekstri hjúkrunarheimila um ókomna tíð. Taka eigi fyrirkomulag sem viðhaft er víða á Norðurlöndum til fyrirmyndar, þar sem greiðsluþátttaka sjúklinganna sjálfra er meiri en hér á landi.

„Einboðið að næðu þessir flokkar meirihluta að þeir haldi áfram“
„Mér finnst alveg einboðið að næðu þessir flokkar meirihluta í næstu kosningum, þá hlýtur að vera fyrsti kostur að þeir haldi áfram. Þetta stjórnarsamstarf hefur verið í öllum aðalatriðum afskaplega gæfusamt,“ sagði Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í Víglínunni í dag.

„Þjóðfélaginu til háborinnar skammar“ að fólk bíði í röðum eftir mat
Guðmundur Ingi Kristinsson, þingflokksformaður Flokks fólksins, segist ekki óttast að flokkurinn detti út af þingi í næstu kosningum. Samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis mælist flokkurinn með um það bil fjögur prósent og nær ekki manni inn.

Blóðug barátta á botninum fyrir kosningar
Fylgi Samfylkingarinnar dalar nokkuð samkvæmt nýrri könnun og Flokkur fólksins dettur út af þingi. Prófessor í stjórnmálafræði telur nær ómögulegt að flokkum fjölgi á Alþingi og segir blóðuga baráttu fram undan á milli minnstu flokkanna.

Bregðist ferðasumarið þyrfti Icelandair sennilega að draga á lánalínur með ríkisábyrgð
Forstjóri Icelandair segir stefnt að því að hefja áætlunarflug til borga í Bandaríkjunum snemma í sumar. Stór hluti af 51 milljarðs króna tapi félagsins á síðasta ári sé vegna afskrifa á flugvélum. Taki ferðalög ekki við sér í sumar þurfi félagið sennilega að draga á lánalínur með ríkisábyrgð í haust.

Líf og dauði í ferðaþjónustunni í Víglínunni
Eftir að bólusetningar gegn kórónuveirunni hófust hér á landi og víða um heim hafa vonir glæðst um að ferðaþjónustan fari að taka við sér. Hvenær það verður ræðst bæði af aðstæðum innanlands og utan og hversu hratt tekst að bólusetja meirihluta þjóðarinnar og heimsbyggðina.

Segir auðlindaákvæðistillögu „eins og að setja upp reykskynjara án battería“
Formenn Viðreisnar og Miðflokksins segja ýmislegt við stjórnarskrárbreytingatillögur Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, sem hún hefur lagt fram á þingi, óljóst. Þau telja það bæði varhugavert að tillögurnar séu ekki lagðar fram í sátt eða breiðri samstöðu.

Segir fjölda fólks í framlínunni og sérstaklega konur hafa fengið alvarlegar hótanir
Borgarstjóri segir mikilvægt að stjórnmálin séu hluti af samfélaginu. Það sé varhugavert að fólk í stjórnmálum eða framlínufólk þurfi aukna öryggisgæslu vegna hættu á ofbeldi en það sé nauðsynlegt berist þeim hótanir eða ofbeldi beinist gegn þeim.

Borgarstjóri og ríkislögreglustjóri í Víglínunni
Borgarstjóri og ríkislögreglustjóri verða gestir Heimis Más Péturssonar í Víglínunni í dag til að ræða nýlegar skotárásir á bíl borgarstjórans og skrifstofur stjórnmálaflokka. Áhrif kórónuveirukreppunnar á borgina verða einnig til umræðu ásamt stefnumörkun ríkislögreglustjóraembættisins.

Vill ekki hlýða kalli „nokkurra fjárfesta í vandræðum með peningana sína“
Óli Björn Kárason þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur óumdeilt að stefna að dreifðu eignarhaldi á fjármálafyrirtækjum til framtíðar. Umsvif ríkisins á fjármálamarkaði séu of mikil og ástandið eins og það er núna sé óheilbrigt. Oddný Harðardóttir þingmaður Samfylkingar segir ekkert ákall vera frá almenningi um söluferli og vill ekki hlýða kalli „nokkurra fjárfesta“ í peningavandræðum.

Hefur trú á að flokkurinn geti styrkst í þéttbýli
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra tilkynnti það í liðinni viku að hann hyggist gefa sig fram til komandi Alþingiskosninga í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Vongóð að meirihluti þjóðarinnar verði bólusettur um mitt ár
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segist bjartsýn á það að meirihluti þjóðarinnar verði bólusettur við kórónuveirunni um mitt ár. Hún segir þó að við munum þurfa að lifa með sóttvarnaaðgerðum í einhvern tíma eftir það.

Lokabaráttan fyrir kosningar í haust í Víglínunni
Síðasta vorþing yfirstandandi kjörtímabils hefst á morgun og í vikunni mun Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra leggja fram þingmannafrumvarp um breytingar á stjórnarskránni í fjórum aðalatriðum. Ólíktlegt er að það frumvarp nái fram að ganga í heild sinni en þetta var niðurstaða Katrínar eftir fjölda funda með formönnum annarra flokka á kjörtímabilinu í tilraun til að ná breiðri sátt um stjórnarskrárbreytingar.

Segir stjórnvöld hafa gert mistök í að elta Evrópusambandið í bóluefnamálum
Prófessor í ónæmisfræði furðar sig á því að Ísland skuli hafa hengt sig á Evrópusambandið við kaup á bóluefni, þegar það sé yfirlýst stefna hérlendra stjórnvalda að vera utan þess. Íslenska þjóðin hefði getað tekið forystu í bólusetningum og þannig klárað að bólusetja alla þjóðina á skömmum tíma.