
Geim-Fréttir

Þekktar raddir talsetja True Crime
Activision hefur ráðið skara af þekktum leikurum til að talsetja leikinn True Crime: New York City. Christofer Walken, Laurence Fishburn, Mariska Hargitay, Mickey Rourke, Esai Morales, Traci Lords og Avery Waddell munu öll taka þátt í talsetningu leiksins og tala fyrir helstu lykil persónur.

Total Overdose kemur í næstu viku
Í næstu viku kemur út leikurinn Total Overdose á PC, PlayStation 2 og Xbox. Ef Robert Rodriguez og Grand Theft Auto leikirnir myndu eyða nóttinni saman yrði útkoman Total Overdose.

Sony innkallar PS2 straumbreyta
Sony risinn er um þessar mundir að innkalla suma straumbreyta fyrir sumar Playstation 2 Slimline tölvurnar. Straumbreytarnir sem eru framleiddir frá Ágúst til Desember 2004 og koma með svörtu PS2 Slimline módelunum SCPH70002, 70003 og 70004 geta ofhitnað og valdið skaða hjá þeim sem nota straumbreytana.

Útgáfudagar Xbox 360 staðfestir
Eins og áður hefur komið fram í fréttum hér á GEIM mun Xbox 360 koma samtímis á markað á helstu markaðssvæðum og er það í fyrsta skipti sem leikjavél er gefin út í sama tímaramma.

GTA á leiðinni á PSP
Nú styttist óðum í að Grand Theft Auto Liberty City Stories komi á PSP vélina. Þetta er alveg ný útfærsla af GTA með nýjum karakterum, söguþræði farartækjum og vopnum. Leikurinn gerist eins og nafnið gefur til kynna í Liberty City og hefur Rockstar eytt mikilli orku í að gera GTA upplifunina eins massífa og hægt er.

Mobile connect á Íslandi
Á heimasíðu Ogvodafone er greint frá nýrri og spennandi þjónustuleið fyrirtækisins í fjarskiptum. Vodafone kynnir nú Mobile Connect þjónustu sína á Íslandi núna í September og hleypir svo af stað í beinu framhaldi Blackberry þjónustu í október sem farið hefur sigurför um heiminn. Nú þegar eru 3,5 milljónir notanda að Blackberry og eykst sú tala sífellt.

Skjálfti 3 2005
Seinustu helgi, 2-4 september var haldinn Skjálfti 3 leikjamót Símans og Opinna kerfa í íþróttahúsinu við Digranesskóla í Kópavogi. Ákveðið var að senda útsendara GEIM á vettvang á sunnudeginum sem og seinasta keppnisdegi til að athuga með eftirskjálfta mótsins.

PSP komin á markaðinn
Það er stór dagur í dag í Evrópu fyrir Sony því nýja PSP er komin á markaðinn og því einnig á Íslandi. Útsöluverð er í kringum 21.999 – 23.999 og sökum hversu mikil eftirspurn er á vélunum eru aðeins um 2000 vélar í sölu í dag á Íslandi.

Kvikmynd um Splinter cell?
Í fréttatilkynningu frá Dreamworks kvikmyndaverinu er sagt frá að þeir séu stutt frá því að eignast kvikmyndaréttinn af tölvuleikjum Tom Clancy um Splinter cell. Munu Dreamworks tefla fram David Pyne(The Manchurian candidate) sem leikstjóraefni fyrir komandi kvikmynd um Sam Fisher og leyniaðgerðir hans með Third Echelon í háspennu, hátæknivæddum ævintýrum hans.

Ryu Ga Gotoku tilkynntur formlega
Þeir sem áttu Dreamcast tölvuna sálugu frá Sega ættu að þekkja til leiksins Shenmue sem er talinn dýrasti leikur sögunnar. Í þeim leik var allt gert til að búa til lifandi heim með sterkum söguþræði og heilsteyptum karakterum.

Halo færir sig upp á silfurtjaldið
Samkvæmt frétt úr skemmtiiðnaðar blaðinu Variety hafa Universal og 20th Century Fox komist að samkomulagi um að framleiða kvikmynd eftir hinum vinsæla skotleik Halo sem Xbox spilarar ættu að þekkja vel. Myndin á að vera komin í bíó innan við tvö ár samkvæmt heimildum.

Fullt af leikjum á útgáfudegi PSP
Sama dag og PSP leikjatölvan kemur út hér á landi þann fyrsta September næstkomandi, kemur út fjöldi leikja frá hinum ýmsu framleiðendum. Sjaldan eða aldrei hefur útgáfa verið jafn öflug í upphafi nokkurrar tölvu og PSP, þannig að flestir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Nintendo DS lækkar í Bandaríkjunum
Nintendo hafa ákveðið að lækka verðið á Nintendo DS leikjavélinni um 20 dollara í Bandaríkjunum 21. Ágúst næstkomandi. Vélin mun þá kosta 129.99 dollara (rúmar 8.000 krónur) og kemur lækkunin í tíma fyrir útgáfu á Nintendogs sem er nýjasta æðið í Japan. Ekki er komið á hreint hvort lækkun er að vænta á næstunni í Evrópu en GEIM mun fylgjast með þeirri þróun. Nintendo DS hefur setið á toppnum á öllum sölulistum í Japan síðustu fjóra mánuði.

Sanctuary kynnir 5 titla fyrir PSP
Sanctuary Visual Entertainment hafa tilkynnt um fimm titla sem fyrirtækið mun gefa út fyrir Sony PSP vélina sem kemur á markað í Evrópu 01. september næstkomandi.

Pokémon Emerald kemur í október
Nú er kominn útgáfudagur fyrir Pokémon Emerald fyrir Game Boy Advance í Evrópu. Pokémon sjúklingar ættu að merkja 21. október í dagatalið sitt því þá lendir Emerald í Evrópu í hinni gríðarlega vinsælu Pokémon seríu.

Manager 2006 Staðfestar nýjungar
Sports Interactive og SEGA hafa sent frá sér eftirfarandi tilkynningu varðandi þær nýjungar sem staðfestar eru í Football Manager 2006 á PC/Mac. Gaurarnir hjá Sports Interactive hafa unnið hörðum höndum að því að gera þessa næstu útgáfu sem besta.

Conflict skiptir um nafn
Nýjasti leikurinn í hinni vinsælu skotleikjaseríu Conflict hefur nú skipt um nafn en upphaflega átti næsti leikur að heita Conflict: Global Terror. Eidos hafa endurskýrt leikinn Conflict: Global Storm og mun hann koma á markað 30. september á PS2, Xbox og PC.

Ridge Racer 6 verður að netleik
Upplýsingar um Ridge Racer 6 fyrir Xbox360 hafa nú borist frá framleiðanda leiksins Namco. Ridge Racer er gamall í hettunni í kappakstursleikja geiranum en í fyrsta sinn mun leikurinn verða fjöldaspilunarhæfur fyrir leikjatölvu. Með Xbox Live munu spilarar keppa á móti hvorum öðrum yfir netið, niðurhala nýjum tólum og tækjum.

Rallíleikir tilbúnir fyrir PSP
Codemasters hafa tilkynnt að Colin McRae Rally 2005 Plus og TOCA Race Driver 2 verði tilbúnir fyrir útgáfu á PSP vélinni frá Sony fyrsta september 2005. Leikirnir eru mjög heitir kappakstursleikir og því góð viðbót fyrir vélina.

Nokia með nýja útgáfu af N-Gage
Nokia risinn hefur tilkynnt um silfur útgáfu á N-Gage leikjasímanum sínum fyrir Evrópu, Mið-Austurlönd og Afríkumarkað. Risinn mun halda áfram að styðja við leikjasímann með frekari útgáfu á titlum eins og One, System Rush, Pathway to Glory, Ikusa Islands og High Seize.

BF2: Special Forces tilkynntur
Gerið ykkur klár fyrir miskunarlaust stríð með sérsveitum. Electronic Arts (NASDAQ: ERTS) og Digital Illusions tilkynntu í dag að þeir hefðu byrjað vinnu við aukapakka fyrir verðlauna leikinn Battlefield 2 á PC. Leikurinn byggir á grafíkvélinni í Battlefield 2. Battlefield 2: Special Forces gefur leikmönnum sömu spennu og hasar og fyrri leikir, nema nú er áherslan lögð á sérveitir.

Microsoft kynnir útgáfu Xbox 360
Leikjarisinn Microsoft er nú að kynna væntanlega útgáfu fyrir Xbox 360 á Xbox Summit 2005 í Tokyo, Japan. Yfir 50 Japönsk útgáfufyrirtæki hafa tilkynnt að þau muni framleiða fyrir vélina sem mun koma á markað í enda árs samtímis í Japan, Bandaríkjunum og Evrópu.

Netslagurinn er hafinn
Teiknimyndafyrirtækið Marvel Comics hefur tilkynnt að þeir hafi gert samning við Microsoft sem geftur Microsoft einkarétt á öllum Multiplayer Online leikjum sem byggðir eru á persónum í eigu Marvel Comics.

GTA San Andreas aftur í fréttum
Grand Theft Auto serían er komin aftur í fréttirnar, nú fyrir svokallaðan Hot Coffee kóða sem opnar fyrir kynlífsleiki í leiknum. Nú getur Carl heimsótt vinkonur sínar og notið ástarleikja með tilheyrandi stellingum og tækni.

Doom frumsýnd á Íslandi í oktober
Kvikmyndin sem gerð er eftir hinum ofurvinsæla tölvuleik Doom er nú á loka vinnslustigi. Myndin verður frumsýnd 21. október í Bandaríkjunum. Myndin var tekin upp í Prag 2004, leikstýrð af hinum pólska Andrzej Bartkowiak (Romeo Must Die, Exit Wounds).

Sin City sms leikur
Þeir sem vilja eignast miða á hina svakalega flottu Sin City ættu að smella <a title="Smelltu hér til að taka þátt!" href="http://www.btnet.is/myndefni/SMSLeikur/sin/visir/" target="_blank">hér</a> til að fá upplýsingar um hvernig má taka þátt í léttum SMS leik og þar með eiga séns á að næla sér í eins og eitt stykki.

Singstar serían seld í 2 milljónum
Nú hefur SingStar serían selst í meira en 2 milljónum eintaka, og þar með hefur Sony Computer Entertainment Europe (SCEE) náð að koma á markað enn einni vinsælli nýjung fyrir PlayStation 2. Leikurinn er gerður af London Studio, sem er í eigu SCEE, og var SingStar stærsta nýjungin í tölvuleikjageiranum í Evrópu árið 2004, og fetar þar með í fótspor metsöluleikja á borð við EyeToy seríuna (stærsta nýjung árið 2003) og The Getawa (stærsta nýjung árið 2002).

Max Payne á hvíta tjaldið
Kvikmyndafyrirtækin í Hollywood eru í miklum ham þessa daganna með nýjar tilkynningar fyrir kvikmyndum sem eru framleiddar eftir tölvuleikjum. Nýjasta fregnin úr borg englanna er sú að 20th Century Fox hefur hafið samstarf við Collision Entertainment til að gera mynd eftir hinum frábæra Max Payne sem kom út árið 2001.

Nintendo selja milljón DS í Evrópu
Nintendo hefur nú selt milljón DS vélar í Evrópu samkvæmt nýjustu tölum frá fyrirtækinu. 250.000 stykki hafa selst eingöngu í Bretlandi. Nintendo fór ágætlega af stað með 500.000 seld eintök á fyrstu þrem sölumánuðunum.

Quake kemur í næstu kynslóð síma
Seinna á þessu ári mun hinn þrælgóði Quake sem gefin var út 1996 mæta í farsíma. Útgáfan sem birtist í farsímum er fyrir næstu kynslóð síma sem ráða við þrívíddarumhverfi.