
United Silicon

United Silicon í Reykjanesbæ – víti til varnaðar fyrir Ölfus!
Hugmyndir þýska iðnaðarrisans Heidelberg um að byggja mölunarverksmiðju í Þorlákshöfn kalla óneitanlega fram ákveðin hugrenningartengsl við annað stórt iðnaðarverkefni í nágrannasveitarfélagi sem fór út um þúfur með miklum fjárhagslegum- og samfélagslegum tilkostnaði.

Þarf að greiða alla leiguna í glæsihýsi Magnúsar Ólafs
Rúmlega fimmtug kona hefur verið dæmd til að greiða þrotabúi Magnúsar Ólafs Garðarssonar, fyrrverandi forstjóra United Silicon, rúmlega þrjár milljónir króna í vangoldna leigu á einbýlishúsi og húsgögnum.

Tvö hundruð milljóna gjaldþrot félags Magnúsar
Engar eignir fundust í þrotabúi félagsins Tomahawk Development á Ísland sem var úrskurðað gjaldþrota í febrúar 2019. Félagið var að stærstum hluta í eigu Magnúsar Ólafs Garðarssonar fyrrverandi forstjóra og stofnanda United Silicon.

Hefði verið frábært ef þetta hefði gengið upp
Möguleikinn á starfsemi kísilvers í Helguvík er að öllum líkindum úr sögunni. Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ segir meirihluta íbúa anda léttar eftir að þetta varð ljóst, enda hafi margir orðið fyrir mikilum óþægindum. Óljóst er hvað verður um verksmiðjuna sjálfa.

Rúmlega milljarðs gjaldþrot félags Magnúsar
Engar eignir fundust í búi Tomahawk framkvæmda ehf. þegar það var tekið til gjaldþrotaskipta. Lýstar kröfur voru tæpir 1,3 milljarðar króna. Þetta kemur fram í skiptalokatilkynningu í Lögbirtingablaðinu.

Helguvíkurhöfn skuldaði níu milljarða króna
Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segir skuldavanda hafnarinnar í Helguvík gífurlegan og gagnrýnir að stjórnvöld hafi ekki sýnt nokkurn áhuga á að koma sveitarfélaginu til aðstoðar. Allir bæjarfulltrúar sem og meirihluti íbúa leggist alfarið gegn því að kísilverið í Helguvík verði endurræst.

Arion banki – úlfur í sauðagæru?
Ég hef býsna oft stungið niður penna og hneykslast á misheppnuðu kísilveri í Helguvík, sem framan af var kennt við United Silicon.

Magnús Ólafur orðinn gjaldþrota
Magnús Ólafur Garðarsson, fyrrverandi forstjóri United Silicon, hefur verið úrskurðaður gjaldþrota í Danmörku. Úrskurðurinn var kveðinn upp þann 12. október en birtur í Lögbirtingablaðinu í dag.

Arion mátti krefjast fjárnáms hjá forstjóra United Silicon
Héraðsdómur Reykjavíkur gaf Arion banka grænt ljóst á að krefjast fjárnáms í fasteign Magnúsar Ólafs Garðarssonar, fyrrverandi forstjóra United Silicon, í mars. Bankinn hefur freistað þess að fá greidda skuld félags í meirihlutaeigu Magnúsar upp á tæpar fimm milljónir króna.

Synjað um endurupptöku á skaðabótamáli United Silicon
Héraðsdómur Reykjaness hafnaði kröfu Magnúsar Ólafs Garðarssonar, stofnanda og fyrrverandi forstjóra United Silicon, á máli þar sem hann er sagður hafa verið dæmdur til að greiða þrotabúi kísilversins 1,2 milljarða króna í bætur.

Kynnir endurbætur á kísilverinu í Helguvík
Eigandi kísilversins í Helguvík, sem staðið hefur ónotað í þrjú ár, stefnir að því að hefja endurbætur á verksmiðjunni í byrjun næsta árs með það að markmiði að hún geti tekið til starfa á ný eftir tvö ár. Skýrsla um umhverfismat endurbótanna hefur verið auglýst.

Arion banki í bulli
Það er eins og Arion banka sé fyrirmunað að taka skynsamlegar ákvarðanir þegar kemur að kísilverinu í Helguvík segir Tómas Guðbjartsson læknir.

Arion gerir sátt og greiðir 21 milljón í sekt
Arion banki og Fjármálaeftirlitið hafa gert samkomulag um að ljúka máli varðandi fjármögnun kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík.

730 milljóna króna gjaldþrot félags stofnað í kringum kísilverksmiðjuna í Helguvík
Engar eignir fundust í þrotabúi Kísils III sem úrskurðað var gjaldþrota í september síðastliðnum. Lýstar kröfur í búið námu 731 milljón króna.

Ekki króna fannst upp í 600 milljóna gjaldþrot fyrirtækis Magnúsar
Engar eignir fundust upp í 628 milljóna króna kröfur í þrotabú félags í eigu Magnúsar Ólafs Garðarssonar, fyrrverandi forstjóra United Silicon. Félagið Brimstone ehf. var úrskurðað gjaldþrota í maí á þessu ári og lauk skiptum þann 4. desember.

Meint fjársvik tæpir tveir milljarðar króna
Meint fjársvik Magnúsar Ólafs Garðarssonar, stofnanda United Silicon, nema um 1,8 milljarði króna samkvæmt þremur stefnum.

Telja Magnús hafa eytt gögnum og krefja hann um 1,3 milljarð króna
Þrotabú Sameinaðs sílíkons hefur stefnt Magnúsi Ólafi Garðarssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækisins, og krafið hann um greiðlu upp á rúmlega 1,2 milljarð króna auk vaxta aftur til ársins 2013.

Fullyrða að endurbætur á kísilverksmiðju í Helguvík muni draga verulega úr mengun
52 metra hár skorsteinn sem áætlað er að rísi við hlið síuhúss kísilverksmiðju Stakksbergs í Helguvík á að draga verulega úr mengun frá verksmiðjunni í nærliggjandi íbúabyggð.

Kostnaður Arion vegna starfsloka Höskuldar 150 milljónir króna
Sagði starfi sínu lausu í apríl.

Teslan ekki aftur í hendur Magnúsar eftir neitun Hæstaréttar
Hæstiréttur hefur hafnað málskotsbeiðni Magnúsar Ólafs Garðarssonar, fyrrverandi forstjóra United Silicon, sem vildi fá að áfrýja dómi Landsréttar frá því í apríl á þessu ári þar sem hann var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir ofsaakstur. Þá var tugmilljóna króna Tesla-bíll Magnúsar gerður upptækur og nú því endanlega ljóst að Magnús fær bílinn ekki aftur.

Stefna að því að ræsa kísilverið á ný um mitt ár 2021
Unnið er eftir þeirri áætlun að kísilverksmiðjan í Helguvík hefji starfsemi að loknum endurbótum um mitt ár 2021. Framkvæmdir við verksmiðjuna þurfa að fara í umhverfismat með ellefu matsþáttum samkvæmt ákvörðun Skipulagsstofnunar sem var birt í dag.

Krefst mats á áhrifum kísilverksmiðjunnar í Helguvík á heilsu íbúa
Ein af þeim kröfum sem Skipulagsstofnun fer fram á er mat á áhrifum kísilverksmiðjunnar á heilsu íbúa.

„Ég var ekki rekinn“
Segir ákvörðunina um starfslok alfarið sína.

Fjársvikamál Magnúsar umfangsmeira en talið var í fyrstu
Eftir því sem vinnu skipstjóra þrotabús Sameinaðs sílicon hf. hefur undið fram hafa fleiri tilvik komið fram sem hafa verið tilkynnt til héraðssaksóknara.

Sýndi skeytingarleysi um líf annarra og fær ekki Tesluna aftur
Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu í dag að Magnús Ólafur Garðarsson, fyrrverandi forstjóri United Silicon, fái ekki aftur Tesla bifreið sína. Þá var fjögurra mánaða skilorðsbundinn dómur yfir Magnúsi úr héraðsdómi fyrir umferðarlagabrot.

Margir mögulega bótaskyldir vegna United Silicon
Til skoðunar er hvort fimm lífeyrissjóðir sem fjárfestu í United Silicon hefji málaferli.

Reykjanesbær leitar álits ráðuneytis vegna íbúakosningar
Reykjanesbær hefur sent erindi til sveitarstjórnarráðuneytisins vegna mögulegrar íbúakosningar um kísilver í Helguvík.

Vilja vissu fyrir bindandi íbúakosningu um kísilver
Skriflegri undirskriftarsöfnun verður haldið áfram til áramóta eftir að rafrænu ferli lauk.

Friðjón Einarsson: „Ég held að kosning fari fram“
Friðjón Einarsson forseti bæjarráðs í Reykjanesbæ telur líklegt að íbúar fái að greiða atkvæði um framtíð kísilversins í Helguvík og þá hvort kísilverksmiðja Thorsil verði reist í bæjarfélaginu

Vilja fjórfalda afköst kísilverksmiðjunnar í Helguvík
Eigendur kísilversins í Helguvík vilja fjórfalda afköst verksmiðjunnar og lofa íbúum Reykjanesbæjar að gera betur en forverar þeirra.