
HM 2019 í Frakklandi

Færu líklega á hausinn ef þau ætti að borga konunum það sama og körlunum
Cindy Parlow Cone, forseti bandaríska knattspyrnusambandsins, segir að sambandið myndi ekki ráða við það fjárhagslega að verða við kröfum leikmanna kvennalandsliðsins sem hafa stefnt sambandinu.

Rapinoe: Við höfum ekki hugmynd um það hversu langt kvennaíþróttir geta náð
Knattspyrnukonan og kvenréttandabaráttukonan Megan Rapinoe er hvergi nærri hætt að berjast fyrir jöfnum launum kynjanna í knattspyrnuheiminum enda er langur vegur að því ófarinn ennþá.

Bandarísku landsliðskonurnar hættar að krjúpa
Bandaríska kvennalandsliðið hélt sigurgöngu sinni áfram í gærkvöldi en það vakti líka talsverða athygli sem þær gerðu ekki fyrir leikinn sinn í gær.

Enginn tími fyrir leikmenn að verða óléttar næstu fimm árin segir ein sú besta í heimi
Frestun Ólympíuleikanna fram á næsta ár verður til þess að ástralska kvennalandsliðið í fótbolta þarf að spila á stórmóti á hverju ári næstu fimm árin.

Biden hótar knattspyrnusambandinu
Joe Biden, tilvonandi forsetaefni Demókrataflokksins, hvetur heimsmeistarana í bandaríska kvennalandsliðinu í fótbolta til að gefast ekki upp í kjarabaráttu sinni fyrir dómstólum.

Þær bandarísku töpuðu í jafnlaunamálinu
Landsliðskonur Bandaríkjanna í fótbolta hafa hug á að áfrýja eftir að dómari í Kaliforníu úrskurðaði bandaríska knattspyrnusambandinu í vil í jafnlaunamálinu svokallaða.

Bandaríski heimsmeistarinn æfir enn á fullu komin níu mánuði á leið
Alex Morgan, ein besta knattspyrnukona heims, á að eiga sitt fyrsta barn í þessum mánuði en hún er enn að æfa á fullum krafti.

Forseti bandaríska knattspyrnusambandsins sagði af sér
Carlos Cordeiro er ekki lengur forseti bandaríska knattspyrnusambandsins en hann hefur sagt af sér.

Segja knattspyrnukonurnar vera eftirbátar karlanna í leikni og ábyrgð
Bandarísku landsliðskonurnar eru á því að röksemdafærsla bandaríska knattspyrnusambandsins gæti verið frá steinöld.

Landsliðskarlarnir vilja að fótboltasambandið þrefaldi laun kvennanna
Landsliðskarlarnir hafa blandað sér inn í launabaráttu kvennalandsliðsins í knattspyrnu og saka bandaríska fótboltasambandið um að mismuna landsliðskonunum í nýrri yfirlýsingu.

Sam Kerr best í heimi og Sara Björk númer 52
Sara Björk Gunnarsdóttir er 52. besta knattspyrnukona heims í dag ef marka má samantekt Guardian sem setti saman lista yfir hundrað bestu knattspyrnukonur heims. 26 ára Ástrali er sú besta í heimi en ekki þær sem hafa fengið Gullboltann undanfarin tvö ár, Megan Rapinoe og Ada Hegerberg.

Sportpakkinn: Rapinoe hefur farið með kvennafótboltann í rétta átt
Arnar Björnsson fór betur yfir magnað ár hjá hinni bandarísku Megan Rapinoe sem á árinu 2019 vann allar viðurkenningar sem hún gat unnið á þessu magnaða ári sínu. Þar á meðal er Gullboltann sem hún fékk í gær.

Ein besta knattspyrnukona heims er ófrísk en ætlar ekki að missa af ÓL 2020
Fyrirliði heimsmeistaraliðs Bandaríkjanna og ein allra besta knattspyrnukona heims lét vita af því í gær að hún á von á barni.

Billie Jean King vill að bandarísku landsliðskonurnar kljúfi sig út úr knattspyrnusambandinu
Tennisgoðsögnin Billie Jean King barðist á sínum tíma fyrir jafnrétti kynjanna innan tennisheimsins og nú hefur hún blandað sér inn í baráttuna fyrir jafnrétti í launum fyrir bandarísku landsliðskonurnar í knattspyrnu.

„Ætla sér að halda áfram að borga konum minna en körlum en þeim mun ekki takast það“
Engin lausn fannst og mál bandarísku landsliðskvennanna gegn bandaríska sambandinu endar í réttarsal

Megan Rapinoe segir nýjasta útspil bandaríska knattspyrnusambandsins dæmigert fyrir þeirra hegðun
Bandaríska knattspyrnusambandið svífst einskis í baráttunni sinni fyrir að borga knattspyrnukonum ekki það sama og knattspyrnukörlum.

Þessi tuttugu koma til greina sem besta knattspyrnufólk heims: Þrír frá Liverpool
Tíu knattspyrnukarlar og tíu knattspyrnukonur voru í dag tilnefnd sem besta knattspyrnufólk heims af Alþjóða knattspyrnusambandinu fyrir árið 2019.

Guardiola og Klopp meðal þeirra sem eru tilnefndir sem þjálfari ársins hjá FIFA
Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, hefur gefið út hvaða tíu þjálfarar hjá körlum og konum eru tilnefndir sem besti þjálfarar ársins hjá FIFA.

Hættir með heimsmeistarana í október eftir ótrúlegan árangur
Jill Ellis, þjálfari heimsmeistara Bandaríkjanna í knattspyrnu, hættir með liðið í október eftir að hafa unnið heimsmeistaramótið í tvígang með þeim bandarísku.

Segjast hafa borgað konunum meira en körlunum undanfarin ár
Nýjasta útspil bandaríska knattspyrnusambandsins er að halda því fram að knattspyrnukonurnar hafi fengið miklu meiri pening en knattspyrnukarlarnir undanfarin tíu ár.

Fyrsti erlendi landsliðsþjálfari Brasilíu verður Svíi
Pia Sundhage er að skrifa nýjan kafla í fótboltasögu Brasilíu nú þegar hún tekur við landsliði Brasilíumanna.

Besti leikmaður HM kvenna ætlar að skrifa bók
Árið 2019 hefur verið magnað hjá bandarísku knattspyrnukonunni Megan Rapinoe sem varð fyrst heimsfræg fyrir að stinga upp í Donald Trump Bandaríkjaforseta en fylgdi því síðan eftir með að ná gullnu þrennunni á HM í Frakklandi.

Fyrirtæki farin að hjálpa bandarísku fótboltastelpunum að brúa launamuninn
Bandaríska kvennalandsliðið í knattspyrnu varð heimsmeistari á dögunum eins og hefur ekki farið fram hjá neinum. Baráttan fyrir að fá jafnmikið borgað og karlarnir hefur líka kallað á sterk viðbrögð hjá bandarísku þjóðinni.

Hetjan á toppnum fær styttu af sér fyrir utan Rose Bowl
Bandaríska knattspyrnukonan Brandi Chastain er nýbúin að fá styttu af sér fyrir utan Rose Bowl leikvanginn í Pasadena í Kaliforníu-fylki.

Bandarísku konurnar vilja réttlát laun
Bandaríska kvennalandsliðið í knattspyrnu sem varð heimsmeistari um síðustu helgi hefur í þó nokkurn tíma staðið í stappi við bandaríska knattspyrnusambandið. Leikmenn liðsins vilja fá jafn mikið greitt fyrir að leika með liðinu og karlarnir fá í sinn hlut.

Bandarísku þingkonurnar leggja fótboltakonunum lið í launabaráttunni
Bandaríska kvennalandsliðið í fótbolta fór fylktu liði um Manhattan í gær og fagnaði heimsmeistaratitli sínum með löndum sínum og öðrum í New York borg. Þær fengu allar afhentan lykil af New York en fengu auk þess góðar fréttir úr bandaríska þinginu.

Sjáðu bandaríska kvennalandsliðið fagna HM-gullinu í skrúðgöngu á götum New York
Árangur bandaríska kvennalandsliðsins í fótbolta á heimsmeistaramótinu í Frakklandi vakti mikla athygli á fótbolta og kvennaíþróttum í Bandaríkjunum.

Megan Rapinoe horfði beint í myndavélina og talaði til Trump
Megan Rapinoe mætti í sjónvarpsviðtal hjá CNN og fékk tækifæri til að tala beint til Donald Trump Bandaríkjaforseta og hún greip það tækifæri með báðum höndum.

Sjáðu stuðið og skíðagleraugun þegar bandarísku stelpurnar fögnuðu HM-titlinum inn í klefa
Bandaríska kvennalandsliðið í fótbolta varð heimsmeistari í gær og stelpurnar böðuðu sig í sviðsljósi ljósmyndara og sjónvarpsvéla á vellinum en það var líka brjálað stuð á þeim inn í klefa.

Þjálfarinn nánast orðlaus og besti leikmaður mótsins sagði augnablikið súrrealískt
Jill Ellis var himinlifandi í leikslok og Megan Repinoe, besti leikmaður mótsins, sagði augnablikið súrrealískt.