
Börn og uppeldi

Halda andlitinu í skólanum en hrynja niður heima
Skólaforðun einhverfra barna er kerfislægt vandamál í skólum en það liggur ekki hjá fjölskyldum barnanna. Þetta segir verkefnastjóri hjá Einhverfusamtökunum sem bendir á að opin rými líkt og hefðbundnar skólastofur séu „skynrænt helvíti“ fyrir einhverfa og heilsuspillandi fyrir umrædd börn. Örvænting þeirra sem séu föst í þessum aðstæðum sé algjör.

Liður í uppbyggingunni að fólk geti sest niður og unnið úr áfallinu
Á næsta skólaári munu leik- og grunnskólabörn úr Grindavík sækja skóla næst sínu heimili og safnskólar verða lagðir af. Forseti bæjarstjórnar í Grindavík segir um tímamót að ræða en

Áttu efnaða foreldra eða ekki?
Stéttaskipting vegna húsnæðismála er hafin og allt bendir til þess að hún muni versna næstu árin í ljósi framboðsskorts fasteigna. Áttu efnaða foreldra sem veita hjálparhönd eða ekki?

Cyrus og Herkúles fá já en Bergman bannaður
Mannanafnanefnd hefur samþykkt ný eiginnöfn á borð við Herkúles, Bjartdís, Kriss og Cyrus. Þá var nöfnunum Bergman og Boom báðum hafnað bæði sem eiginnafni og millinafni.

Ritskoðun bjóra: „Þetta er gert fyrir börnin“
Bjórinnflytjandi þurfti að líma fyrir mynd af fugli á bjórdós svo Vínbúðin samþykkti að selja hana. Hann segir það háð huglægu mati starfsmanna Vínbúðarinnar hvað komist þar í sölu.

Segir „ómanneskjulegt“ álag á foreldrum einhverfra barna
Einstæð móðir einhverfrar stúlku brann út og þurfti að segja upp vinnunni til þess að geta annast dóttur sína. Hún segir stjórnvöld verða að gera betur fyrir einhverf börn og foreldra þeirra, álagið sé í raun ómanneskjulegt.

Hætta með safnskóla fyrir grindvísk börn
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar hefur samþykkt að leggja af safnskóla fyrir leik- og grunnskólabörn bæjarins. Á næsta skólaári munu öll börn sækja skóla sem næst sínu heimili og þurfa foreldrar og forráðamenn að sækja þar um skólavist.

Ítarleg úttekt á þjónustu við börn með kynama þungur áfellisdómur
Ný skýrsla Dr. Hilary Cass um þjónustu við börn með kynmisræmi og/eða kynama á Bretlandi er þungur áfellisdómur yfir kerfinu. Cass segir langa biðlista og ógagnreyndar meðferðir hafa komið harkalega niður á börnum og ráðleggur víðtækar breytingar.

Ritskoðaður bjór fær blessun ÁTVR
ÁTVR hefur lagt blessun sína yfir uppfært útlit bjórs úr smiðju Brewdog sem væntanlegur er í vínbúðir á næstu vikum þar sem límmiða hefur verið límt yfir teiknaðan fugl. Á límmiðanum stendur „Ritskoðað af ÁTVR“, en ríkisfyrirtækið hafði áður hafnað að setja bjórinn í sölu þar sem varan væri talin höfða sérstaklega til barna eða ungmenna.

Deilur Persónuverndar og borgarinnar beint til Hæstaréttar
Hæstiréttur hefur fallist á að taka mál Reykjavíkurborgar á hendur Persónuvernd fyrir, án þess að það komi við í Landsrétti. Milljónaendurgreiðslur á stjórnvaldssektum eru undir í málinu

Systkinin í Celebs frumfluttu lag Barnamenningarhátíðar
Suðureyrska systkinahljómsveitin Celebs frumfluttu lag sitt Spyrja eftir þér í Hlíðskóla í dag við mikla kátínu gesta. Texti lagsins er byggður á svörum barna í verkefni um lýðræði.

Hverjum er treystandi? Tjáningarfrelsið og upplýst umræða
Höfundur þessara lína er lögfræðingur og sem einstaklingur, manneskja í þessu samfélagi, hef ég áhyggjur af því hversu lítið er fjallað um notkun kynhormónabælandi lyfja við meðhöndlun barna og ungmenna með kynama. Þess vegna hef ég talið mikilvægt að umræða um þessi efni komist upp á yfirborðið og lærdómur sé dreginn af reynslu annarra ríkja.

Leitinni að foreldrunum lauk á hörmulegum nótum
Tinna Rúnarsdóttir hóf leit að blóðforeldum sínum á Srí Lanka fyrir um mánuði. Þar fæddist hún í nóvember árið 1984. Þremur mánuðum síðar var hún ættleidd til Íslands. Tinna sagði sögu sína á Vísi um helgina og fékk á sama tíma afar erfiðar fréttir um afdrif blóðforeldra sinna.

Samkennd og skólastarf
Hvernig ætli samkennd geti stuðlað að betri líðan og námsárangri hjá börnum? Í nútímaskólastarfi er einstaklingsmiðuð nálgun mikilvæg til að börn þroskist og dafni. Öll erum við ólík og við tökumst á við þær áskoranir sem koma upp í daglegu lífi á mismunandi hátt. Það má ekki gleyma því þegar kemur að börnum.

Hefur miklar áhyggjur af áhuga ungra stúlkna á snyrtivörum
„Í gegnum tíðina hefur konum og körlum verið sagt að lifa, borða og hreyfa sig á sama hátt frá degi til dags án tillits til þess hve ólík hormónanakerfi þeirra eru. Hormónin okkar hafa nefnilega áhrif á ótal margt í lífi okkar eins og andlega líðan, orkustig, kynhvöt, úthald, fæðuval, svefn og fleira,“ segir Sara Snædís Ólafsdóttir heilsuþjálfari og stofnandi Withsara.

Er í lagi að nota kynhormónabælandi lyfjameðferð fyrir börn og ungmenni?
Er kynhormónabælandi lyfjameðferð, sem notuð er til að meðhöndla börn og ungmenni með kynama, afturkræf? Svarið við þessari spurningu skiptir máli hér á landi en á árunum 2011–2022 fengu 55 börn á Íslandi meðferð af þessu tagi, sbr. til dæmis umfjöllun á mbl.is hinn 25. mars síðastliðinn (Börnum í transteymi BUGL hefur fjölgað umtalsvert).

Óhamingjusamt hjónaband: Að hanga saman fyrir börnin
Við þekkjum öll þessar sögur: Að foreldrar haldi hjónabandi gangandi „fyrir“ börnin. Óhamingjan samt einkennandi, jafnvel búin að vara í mörg ár.

Skrítin tilfinning að vera mögulega búin að finna mömmu sína
Tinna Rúnarsdóttir ákvað fyrir um mánuði að nú væri kominn tími til að leita uppruna síns. Tinna er fædd árið 1984 og var ættleidd til Íslands frá Srí Lanka 1985. Með aðstoð Auri Hinriksson hefur hún að öllum líkindum fundið þau og langar út til Srí Lanka.

Safnar undirskriftum gegn foreldrum
Nemandi í 10.bekk Laugalækjarskóla segir kennara hafa hemil á árgangnum alla daga og því sé ekkert því til fyrirstöðu að þeir fari einir með krökkunum í útskriftarferð. Hún stofnaði því undirskriftalista til að mótmæla fjölda foreldra í ferðina.

Ekki lengur kátt á Klambra
Skipuleggjendur barnahátíðarinnar Kátt á Klambra sem haldin hefur verið í fjórgang á Klambratúni leita nú að annarri staðsetningu fyrir hátíðina. Þeir segjast mæta fálæti og áhugaleysi hjá borgaryfirvöldum en hefur verið tekið opnum örmum hjá öðrum sveitarfélögum.

Lést kornungur og ótryggður frá fjölskyldunni
Bjarki Gylfason lést ótryggður í faðmi fjölskyldu sinnar í lok mars aðeins 36 ára gamall eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Honum var ókleift að tryggja sig fyrir alvarlegum áföllum vegna þess að hann var með sáraristilbólgu. Söfnun hefur verið komið af stað fyrir fjölskyldu hans og verða haldnir minningar-og styrktartónleikar á Sviðinu Selfossi 17 apríl næstkomandi.

Vinnuskólabörnin fá loksins launahækkun
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að hækka laun nemenda í Vinnuskóla Reykjavíkur sumarið 2024. Vinnuskólabörnin fá því sína fyrstu launahækkun í tvö ár.

Byggja þurfi upp örugga framtíð fyrir börnin í Grindavík
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands segir brýnt að leita allra leiða til að tryggja að börnin í Grindavík geti snúið þangað aftur og litið glaðan dag. Grindvíkingar kunni vel að meta samhuginn sem þjóðin hefur sýnt undanfarna mánuði.

Óánægja með tilraunaverkefni í frístund: „Okkar hópur logar bara, á okkar leikskóla“
Foreldrar barna sem eiga að fara beint í frístund eftir leikskólaútskrift í vor eru einhverjir ósáttir við stuttan fyrirvara á tilraunaverkefninu. Þá finnst þeim kostnaður of mikill, óheppilegt að frí sé ekki á sama tíma og í leikskóla og of lítið samráð við bæði foreldra og fagaðila.

Hvað ef krakkinn manns er farinn að stunda kynlíf alltof ungur?
Svar við spurningunni: Hvað gerir maður ef krakkinn manns er farinn að stunda kynlíf (að mínu mati) alltof ung/ur? Og hvernig metur maður það?

Leikskólinn sem foreldrar elska og starfsfólkið vill ekki hætta
Leikskólinn Laufásborg þykir einn vinsælasti leikskólinn á landinu. Sindri Sindrason leit við í skólanum á dögunum og reyndi að komast að því af hverju hann væri svona eftirsóttur hjá foreldrum og einnig leikskólakennurum.

Foreldrar undra sig á skerðingu opnunartíma sundlauga
Frá og með deginum í gær loka sundlaugar Reykjavíkurborgar klukkan 21 um helgar. Opnunartíminn hefur þannig verið styttur um klukkustund með það að yfirlýstu markmiði að spara fé. Foreldrar ungmenna undra sig á þessari ákvörðun þar sem sund er gríðarlega vinsæl kvöldafþreying unglinga og jafnframt eitt af fáum skjá- og vímulausum umhverfum sem þeim stendur til boða.

Fékk lifur úr pabba sínum sex mánaða gömul
„Ég hef svo margt jákvætt að segja um reynsluna og hef hingað til reynt að einblína á það en það fylgja alltaf neikvæðar tilfinningar sem þarf líka að fá að vinna úr,” segir Sigríður Björk Bragadóttir en dóttir hennar, Úlfey Minevera fæddist með sjaldgæfan lifrarsjúkdóm. Misheppnuð ígræðsla í Svíþjóð átti eftir að enda með því að faðir hennar, Finnbogi Hans Sævarsson, lagðist undir hnífinn og gaf dóttur sinni hluta af sinni lifur. Úlfey var á þessum tíma einungis sex mánaða og leiða má líkur að því að hún sé einn af yngstu lifrarþegunum hér á landi.

Leita að fólki sem vill leigja dótið sitt til ókunnugra
Á vefsíðunni stoff.is, eða Stöff.is, er nú hægt að leigja út dótið sitt til ókunnugra. Síðan er nýkomin í loftið en þónokkuð af dóti er þegar komið inn. Til dæmis er hægt að leigja þar kajak, rafhjól, sous-vide tæki og allskonar tölvuleiki. Að síðunni standa þrír vinir sem kynntust í vinnu hjá Advania.

„Það er eins og þú þurfir að skera barnið þitt úr reipinu til að fá aðstoð“
„Fyrir okkur er þetta einfaldlega spurning um líf eða dauða. Við erum vanmáttug, við erum týnd og við erum alltaf í lausu lofti,” segja Adam Snær Atlason og Thelma Rut Hafliðadóttir, foreldrar þrettán ára stúlku sem glímir við flókinn og fjölþættan vanda. Þau hafa staðið í stappi undanfarin tíu ár við að fá viðeigandi úrræði fyrir dóttur sína hjá Akureyrarbæ en segjast koma allstaðar að lokuðum dyrum.