Samfélagsmiðlar

Rússinn með falda myndavél þegar hann greiddi sektina á lögreglustöðinni
Rússneska Instagram-stjarnan Alexander Tikhomirov hefur birt um hálftíma langt myndband frá Íslandsreisu sinni fyrr í mánuðinum en í ferðinni gerðist hann sekur um utanvegaakstur við Bjarnarflag í Mývatnssveit.

Youtube-stjarna opnar sig um kynhneigð sína í einlægu myndbandi
Eugene Lee Yang hefur slegið í gegn sem hluti af hópnum The Try Guys á Buzzfeed.

Nökkvi stofnar Swipe
Nökkvi Fjalar Orrason steig nýlega til hliðar frá daglegum rekstri Áttunnar en hann var einn af stofnendum hennar.

Fjölmiðlar og fjölmiðlanefnd
Fjölmiðlanefnd birti nýverið álit þar sem niðurstaðan er sú að frétt sem ég skrifaði og birtist á Vísi í nóvember á síðasta ári brjóti í bága við lög um fjölmiðla í því sem snýr að birtingu viðkvæmra persónugreinanlegra persónuupplýsinga.

Frá Como í fossana á Suðurlandi
Lúsmý sem hrellt hefur landsmenn á suðvesturhorninu undanfarna daga virðist ekki hafa ná til ofurparsins Rúriks Gíslasonar og Nathaliu Soliani.

Sótti innblástur í blaðakonuna sem afhjúpaði Cambridge Analytica hneykslið
Rithöfundurinn Sif Sigmarsdóttir sótti innblástur í blaðakonuna sem afhjúpaði Cambridge Analytica hneykslið þegar hún skrifaði norrænu glæpasöguna The Sharp Edge of a Snowflake.

Settu óvart „kisufilter“ á beina útsendingu af blaðamannafundi
Pakistanski stjórnmálamaðurinn Shaukat Yousafzai lendi í grátbroslegri uppákomu á föstudag þegar hann streymdi blaðamannafundi sínum.

Rúrik sígur niður fyrir milljónina á Instagram
Rúrik Gíslason landsliðsmaður í knattspyrnu hefur sigið niður fyrir milljón fylgjendur á Instagram en hann er nú með um 999 þúsund fylgjendur, sem verður þó að teljast ansi álitlegur fjöldi.

Jón Steinar segir rektor HR fara með tilhæfulausar dylgjur í réttarsal
Jón Steinar segir forsvarsmenn HR grípa til eftiráskýringa og ósanninda til að koma höggi á Kristinn Sigurjónsson.


Áhrifavaldar nota vettvang kjarnorkuslyssins í sjálfsmyndatökur: „Hámark óvirðingarinnar“
Höfundur sjónvarpsþáttanna Chernobyl fann sig knúinn til að skamma áhrifavalda fyrir virðingarleysi.

Íslandsreisan sem Tyrkir vilja væntanlega gleyma sem fyrst
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann frækinn sigur á tyrkneska landsliðinu í undankeppni EM 2020 á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Leikurinn fór 2-1 fyrir Ísland en ýmislegt gekk á í aðdraganda leiksins, þá aðallega utan vallar.

Myndatökur bannaðar í brúðkaupinu hjá Sólrúnu Diego
Samfélagsmiðlastjarnan Sólrún Diego ætlar ekki að greina fylgjendum sínum frá dagsetningu brúðkaups hennar og unnusta síns Frans Garðarssonar,

Facebook bítur ekki á agnið vegna gervimyndbands af Zuckerberg
Bandaríski tæknirisinn mun ekki fjarlægja svokallað "deep-fake“ myndband þar sem sjá má Mark Zuckerberg, stofnanda og forstjóra, gorta sig af því að hafa safnað persónuupplýsingum milljarða notenda Facebook.

Bryndísi er nákvæmlega sama hvað fólki finnst
Samfélagsmiðlastjarnan Bryndís Líf ögrar stjórnendum miðlanna reglulega með myndum af sér þar sem hún sýnir brjóstin sín, allt nema geirvörturnar.

Bandarísk samfélagsmiðlastjarna dregin inn í Tyrkjadeiluna
Svo virðist sem að æstir stuðningsmenn tyrkneska landsliðsins í knattspyrnu hafi farið víða um internetið um helgina eftir fregnir af meintri útreið sem landsliðsmennirnir fengu við komuna til Íslands brutust út. Bandarísk samfélagsmiðlastjarna var dreginn inn í deiluna og hún virðist ekki botna neitt í neinu.

Týndar töskur rétt fyrir brottför í brúðkaup aldarinnar
Gylfi Þór Sigurðsson og Alexandra Helga Ívarsdóttir ganga í það heilaga í Como á Ítalíu næstu helgi.

Tyrkir taka Bjarna Ben fyrir á Twitter
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra tjáði sig um hið umtalaða þvottaburstaatvik á Twitter-síðu sinni í dag.

Segir fullyrðingar sínar um fall WOW air standa óhaggaðar
Stefán Einar Stefánsson, fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu og höfundur bókar um fall WOW air, segir svör Skúla Mogensen um fullyrðingar sem birtust í bókinni einungis sýna fram á mikilvægi bókarinnar.

Pollrólegur yfir reiðum Tyrkjum á Twitter: „Ég ætla ekkert að breyta um lögheimili“
Benedikt Grétarsson, íþróttafréttamaður, varð fyrir slysni sameiginlegur óvinur margra Tyrkja á Twitter í gærkvöldi.

Lífsspeki samfélagsmiðlastjörnunnar gengur út á að brjóta reglur og lifa án ótta
Rússneska samfélagsmiðlastjarnan sem staðgreiddi 450 þúsund króna sekt vegna utanvegaaksturs í grennd við Jarðböðin í Mývatnssveit gefur lítið fyrir ummæli náttúruunnenda um athæfið. Hann segir að sumir geti einfaldlega ekki lifaðán þess að brjóta lög og reglur.

Instagram-stjarna segir að best sé að taka nektarmyndir á Íslandi
Instagramstjarnan Svetlana Reus, sem gengur undir nafninu Ligthy Light á miðlinum, segist hafa fundið bestu staðsetningu heims til að taka nektarmyndir og mun það vera hér á landi.

„Enginn sagði mér að utanvegaakstur væri ólöglegur“
Rússneski ferðamaðurinn sem gerðist sekur um utanvegaakstur við Bjarnarflag í Mývatnssveit um helgina hefur tjáð sig um athæfið. Hann segist ekki hafa gert sér grein fyrir að utanvegaakstur væri ólöglegur á Íslandi, hópur hans hafi orðið fyrir aðkasti vegna málsins auk þess sem að hann gagnrýnir þá sem farið hafa hörðum orðum um hann á samfélagsmiðlum vegna málsins.

Staðgreiddi 450 þúsund króna sekt vegna utanvegaaksturs
Rússneska samfélagsmiðlastjarnan sem gripin var við utanvegaakstur í grennd við Jarðböðin í Mývatnssveit var sektuð um 450 þúsund krónur. Sektin var staðgreidd á lögreglustöðinni á Akureyri fyrr í dag.

Bubbi hefur reynt að leita réttar síns vegna auðkennisþjófnaðar í tvö ár
Bubbi Morthens hefur leitað til lögreglu, tölvusérfræðings og lögfræðinga vegna auðkennisþjófnaðar en enginn virðist geta hjálpað honum. Dómsmálaráðherra ætlar að fela refsiréttarnefnd að skoða hvort lögfesta þurfi ákvæði um auðkennisþjófnað í hegningarlög.

Iggy Azalea hætt á samfélagsmiðlum eftir að nektarmyndir af henni fóru í dreifingu
Tónlistarkonan Iggy Azalea er hætt á samfélagsmiðlum eftir að myndir af henni berbrjósta láku á veraldarvefinn.

Berglind Festival leysti ráðgátuna um manninn á bak við umdeilda Twitter-aðganginn
„Ég var á næturvakt og er búin að pæla mjög mikið í því hver væri á bakvið Boring Gylfi Sig og vinkona mín sendi mér skjáskot um nóttina þar sem hann klúðraði að kroppa í burtu prófíl myndina sína.“

Leikari með umdeildan nafnlausan Twitter-aðgang: „Jæja það hlaut að koma að því“
Í dag kom í ljós að leikarinn Þórir Sæmundsson væri á bak við nafnlausa Twitter-aðganginn @BoringGylfiSig en aðgangurinn var stofnaður í desember árið 2017, um það bil mánuði eftir að hann var látinn fara frá Þjóðleikhúsinu.

Konan segist hafa verið heilaþvegin af þeim sem lést vera annar maður
Sá dæmdi sagði upphafið hafa verið hugsunarlaust grín.

Nökkvi Fjalar kveður Áttuna
"Mér þykir svo vænt um það sem ég skapa að ég myndi aldrei taka þetta skref nema að ég vissi að merkið væri í góðum höndum.“