
Ástralía

Kóalabjörninn Lewis er dauður
Myndir af kóalabirni sem fannst skaðbrenndur og kona kom til bjargar vöktu mikla athygli í síðustu viku, en nú hafa borist fréttir af því að björninn sá allur.

Áströlsk móðir ákærð fyrir morð fyrir að skilja dætur sínar eftir í bíl
Áströlsk móðir hefur verið ákærð fyrir morð eftir að tvö börn hennar fundust látin í bíl í steikjandi hita.

Reykjarmökkur yfir Sydney og Adelaide
Í Sydney vöknuðu íbúar upp við þykkan mökk og eru loftgæðin í borginni sögð hættuleg sökum reyksins sem liggur þar yfir vegna gróðureldanna.

Kóalabirnir hafa orðið verulega illa úti vegna elda
Toni Doherty kom á dögunum illa brenndum Kóalabirni til bjargar í Suður-Wales í Ástralíu. Björninn hafði brunnið í umfangsmiklum skógar- og kjarreldum þar í landi og Doherty fór úr skyrtu sinni til og vafði henni utan um björninn.

Erfitt að sjá fram á að tapa öllum eigum sínum og jafnvel lífinu
Búist er við að gróðureldar í Ástralíu haldi áfram að versna. Íslendingur sem þar býr segir erfitt að sjá fram á að tapa öllum eigum sínum og jafnvel lífinu.

Reykur vegna gróðureldanna gerir íbúum Sydney lífið leitt
Íbúar í áströlsku stórborginni Sydney vöknuðu í morgun upp við að mikill reykur lá eins og mara yfir borginni.

Spá versnandi ástandi í Ástralíu
Reiknað er með því að erfið veðurskilyrði muni ýta undir frekari útbreiðslu gróðurelda í Ástralíu í komandi viku

Fjórir látnir vegna gróðureldanna í Ástralíu
120 eldar loga enn í New South Wales og Queensland og óttast er að eldar kvikni einnig í Vestur-Ástralíu.

Gróðureldar ógna enn íbúum í Ástralíu
Yfirvöld í Ástralíu vara við því að hinir gríðarlegu gróðureldar sem nú brenna í tveimur ríkjum landsins verði áfram hættulegir þrátt fyrir að veðurskilyrði hafi skánað.

Á níunda tug kjarrelda brennur í Ástralíu
Varað er við hamfaraaðstæðum fyrir elda í Nýju Suður-Wales í dag.

Neyðarástandi lýst yfir vegna gróðureldanna í Ástralíu
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í fjölmennasta ríki Ástralíu, New South Wales, og þar með talið stórborgina Sydney, vegna gríðarlegra kjarrelda sem þar geisa en ástandið hefur aldrei verið eins slæmt í ríkinu.

Eldarnir gætu ógnað íbúum í Sydney
Óttast er að mikir gróðureldar í Ástralíu geti ógnað íbúum í Sydney. Að minnsta kosti þrír hafa látist í eldunum. Gróðureldunum hefur fylgt mikil eyðilegging en á annað hundrað heimili eru gjörónýt eftir eldana.

Þrjú látin í kjarreldum í Ástralíu
Miklir eldar sem nú loga á þurrkasvæðum á austurströnd Ástralíu hafa kostað þrennt lífið. Þá hafa yfir 150 heimili brunnið til grunna og um og yfir 30 manns hafa slasast vegna kjarreldana.

Gróðureldar herja á íbúa í Ástralíu
Talsmenn ástralskra yfirvalda segja að fordæmislaus fjöldi alvarlegra skógarelda ógni nú íbúum í ríkinu New South Wales í suðausturhluta landsins.

Hákarl beit tvo Breta við strendur Ástralíu
Tveir breskir menn særðust alvarlega þegar hákarl beit þá á vinsælum ferðamannastað í Ástralíu. Annar maðurinn missti fót og hinn særðist á fæti.

Einn alræmdasti raðmorðingi Ástralíu látinn
Raðmorðingin Ivan Milat, betur þekktur sem bakpokaferðalangamorðinginn, lést í fangelsi í Sydney í Ástralíu í dag.

Fjölmenni á síðasta degi þar sem heimilt er að klífa Uluru
Stjórn þjóðgarðsins Uluru-Kata Tjuta samþykkti það einróma á fundi fyrir tveimur árum að banna göngur á fjallið sem er heilagt í hugum ástralskra frumbyggja.

Ástralskir fjölmiðlar mótmæla leyndarhyggju
Stærstu fjölmiðlafyrirtæki landsins tóku sig saman til að mótmæla ströngum þjóðaröryggislögum sem þau telja ógna fjölmiðlafrelsi.

19 klukkustundir og 16 mínútur í loftinu
Ástralska flugfélagið Qantas lét reyna á lengsta farþegaflug heims í nótt þegar það flaug með 49 farþega um borð frá New York í Bandaríkjunum til Sydney í Ástralíu.

Lögreglumaður afhenti ofbeldismanni upplýsingar um fórnarlamb
Ástralskur lögregluþjónn var í dag dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa brotist inn í gagnagrunn lögreglu.

Ástrali fær háar bætur eftir að hafa setið saklaus í fangelsi í nítján ár
David Eastman var sleppt á þeirri forsendu að réttarhöldin yfir honum hafi verið gölluð, og var síðan sýknaður af morðinu en þó ekki fyrr en hann hafði setið inni í nítján ár.

Skapari Nágranna látinn
Höfundur áströlsku sápuóperunnar geysivinsælu, Nágrannar eða Neighbours, Reg Watson er látinn 93 ára að aldri.

Hundruð loftslagsaðgerðasinna handteknir um allan heim
Hundruð aðgerðarsinna, sem eru meðlimir í Extinction Rebellion hreyfingunni, voru handteknir á mótmælum sem fóru fram úti um allan heim.

Ferðabloggararnir lausir úr fangelsi og komnir heim
Jolie King og Mark Firkin, ástralskt par sem handtekið var á ferðalagi um Íran í byrjun júlí, hafa verið látin laus úr fangelsi og komið til síns heima.

Bað Boris einnig um hjálp við að grafa undan Rússarannsókninni
Donald Trump hefur lengi staðið í þeirri trú að uppruna rannsóknarinnar megi að miklu leyti rekja til Bretlands og hefur hann meðal annars sakað breskar leyniþjónustur um að njósna um framboð sitt fyrir Barack Obama, forvera sinn.

Ástralar kveðast reiðubúnir til að aðstoða við hvers kyns rannsóknir
Donald Trump Bandaríkjaforseti bað forsætisráðherra Ástralíu um að rannsaka Rússarannsóknina svokölluðu

Bað forsætisráðherra Ástralíu um að hjálpa Barr að rannsaka Rússarannsóknina
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, þrýsti á Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, og bað hann um að hjálpa William Barr, dómsmálaráðherra sínum, við rannsókn hans á uppruna Rússarannsóknarinnar svokölluðu.

Ökumaður sakaður um að hafa drepið tuttugu kengúrur
Lögregla í Ástralíu hefur óskað eftir vitnum eftir að ekið var á um tuttugu kengúrur og þær drápust í bænum Merimbula.

Göngumanni bjargað eftir að hafa „haldið“ á brotnum fæti sínum í tvo daga
Neil Parker var einn á ferð í óbyggðum nærri Brisbane þegar hann féll um sex metra niður foss.

Tíðablóð í auglýsingum í góðu lagi í Ástralíu
Opinber nefnd sem tekur kvartanir vegna auglýsinga í sjónvarpi í Ástralíu til skoðunar, segir fyrirtækið Asaleco Care, sem framleiðir dömubindi, ekki hafa brotið gegn reglum með því að sýna tíðablóð í sjónvarpi í fyrsta sinn.