Hafnarfjörður
24 25 26 27 28 29 30 31 32 … 61 ›
Eldur kviknaði í St. Jósefsspítala Tilkynnt var um eld í viðbyggingu við St. Jósefsspítala í Hafnarfirði um klukkan hálf ellefu í kvöld. Mikið var að gera hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu en mannskapur einnar slökkviliðsstöðvar var upptekinn annar staðar þegar útkallið barst. Innlent 21.8.2022 23:56
Davíð Þór sendir ákall til FH-inga: Vill snúa hlutum við eftir óvægna gagnrýni og þunga umræðu Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá FH, sendi í dag opið bréf til stuðningsmanna FH og kallaði eftir stuðningi við liðið sem er í bráðri fallhættu í Bestu deild karla. Íslenski boltinn 21.8.2022 16:30
Engin uppgjöf á endurreisnarfundi FH-inga FH-ingar voru með svokallaðan endurreisnarfund í Krikanum á fimmtudag en tilgangur fundarins var að þjappa stuðningsmönnum félagsins saman fyrir harða fallbaráttu sem blasir við liðinu. Fótbolti 20.8.2022 08:01
FH boðar til endurreisnarkvölds með Eiði Smára FH-ingar ætla annað kvöld að halda stuðningsmannakvöld til að þjappa saman raðirnar fyrir komandi átök í Bestu-deild karla þar sem liðið er á ókunnum slóðum, í fallbaráttu. Fótbolti 17.8.2022 23:31
Húsnæðisvandinn eins og hann birtist bæjarfulltrúa í Hafnarfirði Ég settist í bæjarstjórn Hafnarfjarðar sumarið 2018 og fyrsta eina og hálfa árið stóðum við andspænis þeim veruleika að stórum hluta lóða sem bæjarráð úthlutaði til einstaklinga var skilað til baka að skömmum tíma liðnum. Skoðun 17.8.2022 09:01
Minkur skýtur Hafnfirðingum skelk í bringu Íbúa nokkrum sem búsettur er á Norðurbakka í Hafnarfirði brá í brún þegar hann fór í bílakjallara sinn fyrir tæpri viku. Hann segir í samtali við Vísi að minkarnir séu farnir að sækja mikið inn í byggðina. Innlent 12.8.2022 14:02
Eldur logaði við Lækjarskóla Eldur logaði í rusli á bak við Lækjarskóla í Hafnarfirði í gærkvöldi. Fram kemur í dagbók lögreglu að tilkynnt hafi verið um eld í gámi í hverfinu klukkan 21:57. Innlent 8.8.2022 07:37
Hestar sluppu með skrekkinn þegar kviknaði í hesthúsi Laust fyrir klukkan sjö í morgun barst slökkviliði tilkynning um eld í hesthúsi í Hafnarfirði. Tveir hestar voru inni í húsinu en þeim var bjargað. Innlent 7.8.2022 08:52
Ungi ökumaðurinn hafi fengið gott tiltal Þrettán ára gamall ökumaður var stöðvaður af lögreglu í Hafnarfirði laust eftir klukkan fjögur í nótt. Lögregla segir óalgengt að svo ungir ökumenn séu stöðvaðir af lögreglu en Barnavernd var gert viðvart um málið og það leyst með aðkomu foreldra. Innlent 6.8.2022 11:53
Þrettán ára unglingur ætlaði að sækja félaga sinn Laust fyrir klukkan fjögur í nótt var ökumaður stöðvaður af lögreglu í Hafnarfirði. Sá reyndist aldrei hafa öðlast ökuréttindi enda aðeins þrettán ára gamall. Innlent 6.8.2022 08:25
Straumlaust í Straumsvík Rafmagni sló út í álverinu í Straumsvík eftir jarðskjálftahrinuna í nótt. Innlent 2.8.2022 11:12
Lögreglan varar fólk við að auglýsa ferðalög á samfélagsmiðlum fyrir helgi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með hefðbundið eftirlit um Verslunarmannahelgina. Hún biður íbúa á svæðinu að hafa augun opin með grunsamlegum mannaferðum en innbrotsþjófar herji gjarnan á yfirgefin heimili á þessari helgi. Innlent 28.7.2022 13:36
Vara við óþarfa ferðum um Krýsuvíkurbjarg í skjálftahrinum Stórar sprungur eru í Krýsuvíkurbjargi vegna stöðugrar hreyfingar sem bjargið er á. Sprungurnar hafa dýpkað talsvert undanfarin ár vegna jarðskjálftahrina. Fólk er varað við því að fara út á bjargbrúnina, sérstaklega þegar jarðskjálftahrinur ganga yfir. Innlent 25.7.2022 10:39
Rósa Guðbjarts býður sig fram í formann Sambands íslenskra sveitarfélaga Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnafjarðar, hefur gefið kost á sér til formennsku í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Nýr formaður sambandsins verður kjörinn í ágúst næstkomandi. Innlent 13.7.2022 13:18
Carbfix hlýtur sextán milljarða króna styrk frá Evrópusambandinu Íslenska kolefnisbindingarfyrirtækið Carbfix hefur hlotið styrk frá Evrópusambandinu til uppbyggingar á móttöku- og förgunarmiðstöðinni Coda Terminal sem á að rísa í Straumsvík. Styrkurinn er sá stærsti sem íslenskt fyrirtæki hefur fengið úr sjóðum sambandsins og nemur 16 milljörðum króna. Viðskipti innlent 13.7.2022 08:56
Neitaði að fara út af veitingastað Klukkan rúmlega níu í gærkvöldi barst lögreglunni tilkynning um ölvaðan mann sem neitaði að fara út af veitingastað í Hafnarfirði. Þegar komið var á staðinn gat lögregla rætt við manninn og hann fór að lokum. Innlent 9.7.2022 07:08
Slökktu í alelda húsbíl við Hvaleyrarvatn Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um klukkan hálf tvö í nótt vegna elds sem hafði komið upp í húsbíl skammt frá Hvaleyrarvatni í Hafnarfirði. Innlent 8.7.2022 07:30
Hægt að hoppa um allt höfuðborgarsvæðið í fyrsta skipti Fyrirtækið Hopp sem leigir út rafhlaupahjól hefur nú fært út kvíar sínar og opnað fyrir leigu í Árbæ, Grafarvogi og Grafarholti. Þá stækkar fyrirtækið þjónustusvæði sitt annars staðar á höfuðborgarsvæðinu og því er hægt að keyra um á rafskútu frá fyrirtækinu á öllu höfuðborgarsvæðinu í fyrsta skipti. Viðskipti innlent 7.7.2022 16:44
Hálf öld í Hafnarfirði á næsta ári Fjölskyldufyrirtækið Fjarðarkaup fagnar 49 ára afmæli sínu í dag en verslunin opnaði fyrst við Trönuhraun í Hafnarfirði þann 7. júlí árið 1973, og á því hálfrar aldar stórafmæli á næsta ári. Samstarf 7.7.2022 16:38
Fellihýsi og trampólín fjúka út á götu Gular veðurviðvaranir eru í gildi víða á landinu í dag vegna hvassviðris. Engin veðurviðvörun er í gildi á höfuðborgarsvæðinu en þar hefur lögregla þó fengið tilkynningar um nokkuð fok lausamuna. Fólk er hvatt til að ganga vel frá lausamunum utandyra í dag og tryggja vel að trampólín og hjólhýsi séu vel fest eða í skjóli. Innlent 7.7.2022 10:38
„Mjög gaman og mikill heiður að hátíðin vilji nota lagið okkar“ Hljómsveitin Poppvélin gaf út lagið „Bærinn minn“ í dag og er það lag hátíðarinnar Hjarta Hafnarfjarðar í ár. Lagið spilar inn nostalgíuna og hjálpar hlustandanum að rifja upp góðar minningar frá æskuslóðunum. Lífið 5.7.2022 22:01
Rósa með rúmlega 2,2 milljónir í laun á mánuði Meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar samþykkti ráðningarsamning við Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra og oddvita Sjálfstæðisflokksins, á fundi bæjarráðs í gær. Hún fær rúmar 2,2 milljónir í laun á mánuði þegar yfirvinnutímar, ökutækjastyrkur og laun fyrir störf hennar sem bæjarfulltrúi bætast ofan á grunnlaun hennar. Innlent 2.7.2022 09:03
Framkvæmdir í Bláfjöllum komnar á fullt Framkvæmdir við tvær nýjar stólalyftur í Bláfjöllum eru komar á fullt. Reiknað er með að önnur þeirra verði kominn í gagnið á næstu skíðavertíð. Innlent 30.6.2022 11:42
Eldurinn kviknaði líklega út frá gasbrennara Slökkvilið var eldsnöggt á vettvang þegar eldur kviknaði í klæðningu atvinnuhúsnæðis í Dalshrauni í Hafnarfirði í dag. Slökkvistarf gekk vel og slökkviliðsmönnum tókst að koma í veg fyrir mikið tjón. Innlent 28.6.2022 14:27
Kristín Rut ráðin útibússtjóri í Hafnarfirði Kristín Rut Einarsdóttir hefur verið ráðin útibússtjóri Landsbankans í Hafnarfirði. Viðskipti innlent 27.6.2022 14:18
„Minna hik við að beita skotvopnum á almannafæri“ Sérsveit Ríkislögreglustjóra vopnaðist margfalt oftar á síðasta ári vegna skotvopna en fimm árum áður. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir minna hik við að beita skotvopnum á almannafæri en áður. Innlent 23.6.2022 20:31
„Maðurinn reyndi augljóslega að drepa okkur. Hvað annað er hægt að kalla þetta?“ Maðurinn sem var í bílnum með syni sínum þegar skotið var að þeim í Hafnarfirði í gær telur ljóst að skotmaðurinn hafi ætlað sér að drepa þá feðga. Maðurinn segist vera í miklu áfalli eftir atburði gærdagsins. Innlent 23.6.2022 19:18
„Fólki er vissulega brugðið yfir þessu“ Mörgum er brugðið eftir skotárásina í Hafnarfirði í gær þar sem skotið var á feðga í bíl sínum við leikskóla. Verkefnisstjóri Hjálparsíma Rauða krossins 1717 segir þó nokkuð um að fólk haft samband til að fá ráðgjöf eða stuðning eftir árásin. Innlent 23.6.2022 13:51
Byssumaðurinn vistaður á „viðeigandi stofnun“ Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði karlmann á sjötugsaldri sem var handtekinn fyrir að skjóta á bíla í Hafnarfirði í gær til vistunar á viðeigandi stofnun í fjórar vikur. Skotárásin er rannsökuð sem tilraun til manndráps. Innlent 23.6.2022 10:33
Beitti líklega riffli: „Guðs lifandi feginn að enginn hafi skaðast“ Sex ára barn var í bílnum sem skotið var á fyrir utan leikskóla í Hafnarfirði dag. Íbúi í húsi byssumannsins segist hafa verið skjálfandi hræddur en maðurinn notaði líklega riffil í árásinni. Innlent 22.6.2022 19:04