
Dalabyggð

Segjast trúa henni en senda börnin sín í pössun til gerandans
Kristín Þórarinsdóttir segir tvískinnung ríkja hjá fólki í sveitinni hennar eftir að út spurðist um kynferðislegt áreiti af hendi fullorðins sveitunga hennar þegar hún var aðeins fjórtán ára. Málið hafi þó haft takmörkuð áhrif á samskipti þeirra við manninn. Fólk hafi sagst trúa henni og styðja en á sama tíma sent börnin sín í pössun til hans.

Dalabyggð – samfélag í sókn
Dalabyggð er þátttakandi í samstarfsverkefni með Byggðarstofnun sem tengt er við brothættar byggðir. Í Dölum er vinnuheiti þessa verkefni DalaAuður.

Dalamanni ársins sagt upp fyrir að tala of mikið
Rebeccu Cathrine Kaad Ostenfeld, sem útnefnd var Dalamaður ársins 2022, var í gær sagt upp störfum í Krambúðinni í Búðardal. Formleg ástæða uppsagnarinnar var skipulagsbreyting en verslunarstjórinn sagði Rebeccu einfaldlega tala of mikið við viðskiptavini.

90 laxa holl í Laxá í Dölum
Laxá í Dölum er ein af þessum ám sem á oftar en ekki rosalega endaspretti og getur síðsumars og haustveiðin verið ævintýralega góð í henni.

Færa sig frá Reykjum að Laugum í Sælingsdal
Fráfarandi rekstaraðilar skólabúðanna að Reykjum í Hrútafirði hafa samið við Dalabyggð um að taka ferðaþjónustuþorpið Laugar í Sælingsdal á kaupleigu. Þar ætla þeir að reka ferðaþjónustu frekar en skólabúðir.

Gamlir landpóstar mynda nýtt fimmtíu kílómetra hlaup
Nýtt fimmtíu kílómetra utanvegahlaup, Pósthlaupið, verður haldið í fyrsta sinn þann 6. ágúst næstkomandi. Hlaupið verður milli gamalla landpósta sem voru lífæð samskipta á Íslandi um árhundruð.

Sveitarstjóri Dalabyggðar með tæplega 1,7 milljón króna í mánaðarlaun
Björn Bjarki Þorsteinsson var í dag ráðinn sveitarstjóri Dalabyggðar en hann fær 1,675 milljón króna í mánaðarlaun auk ökutækjastyrks sem nemur 127 þúsundum króna. Ellefu umsóknir um stöðuna bárust en þeim var öllum hafnað og var Björn Bjarki ráðinn í staðinn.

Tilboð hefur borist í Laugar í Sælingsdal
Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur borist tilboð í ferðaþjónustuþorpið Laugar í Sælingsdal. Þorpið hefur verið til sölu frá árinu 2016 og illa hefur gengið að selja það.

„Það er pólitísk nálykt af þessu“
Skipulagsstofnun hefur samþykkt aðalskipulagsbreytingu sveitarfélagsins Dalabyggðar vegna tveggja vindorkuvera, annars vegar í landi Hróðnýjarstaða og hins vegar í Sólheimum. Innviðaráðherra hafði áður synjað sveitarfélögunum um staðfestingu á sambærilegum breytingum vegna þess að þær samræmdust ekki lögum um rammaáætlun en með breyttri skilgreiningu á svæðinu virðist það vandamál hafa verið leyst. Verkefnastjóri hjá Landvernd er afar ósáttur yfir málinu og segir pólitíska nálykt af því.

Ferðamenn og svínin á Erpsstöðum vitlaus í ísinn
Heimavinnsla bændanna á Rjómabúinu á Erpsstöðum í Dalasýslu er alltaf að verða vinsælli og vinsælli enda rjúka vörurnar af bænum út til ferðamanna. Ísinn og ostarnir eru alltaf mjög vinsælir, svo ekki sé minnst á broddinn beint úr kúnum. Svínin á bænum elska líka ísinn.

Síðasta holl í Haukadalsá með 21 lax
Haukadalsá hefur verið mjög vinsæl síðustu ár og áratugi enda er áin þægileg, nokkuð auðveidd og þrædd virkilega skemmtilegum veiðistöðum.

Helstu bæjarhátíðirnar um helgina: Bryggjusöngur, brennur, sveitaböll og sápubolti
Þá er komið því, einni af stærstu ferðahelgum sumarsins; fyrstu helginni í júlí og eflaust eru einhverjir nú þegar samviskusamlega búnir að pakka, troðfylla bílinn af útileigubúnaði og smyrja flatkökur og rækjusamlokur í tonnavís. En hvert skal halda?

Loksins 100 sm lax hjá Stefáni
Þeir eru ekki margir veiðimennirnir hér á landi sem geta líklega fullyrt að hafa landað 1000-2000 löxum en Stefán Sigurðsson er klárlega í þeim hóp.

Meirihluti í Dalabyggð vill hefja sameiningarviðræður
Meirihluti íbúa í Dalabyggð vill hefja sameiningarviðræður. Flestir þeirra vilja sameinast Sameinuðu sveitarfélagi Helgafellssveitar og Stykkishólms og næst flestir Húnaþingi vestra.

Íbúar langþreyttir á rafmagnsleysi: „Þetta er bara fáranlegt“
Íbúi í Dalabyggð er orðin dauðþreytt á langvarandi rafmagnsleysi. Hún segist aldrei hafa upplifað jafnslæman vetur - ekki síðan hún var barn.

Síminn, Vodafone og Nova – „Eru íbúar í dreifbýli minna virði en íbúar í þéttbýli?“
Fyrir skemmstu var birt svar við fyrirspurn um farsímasamband í dreifbýli á vef Alþingis. Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur þingmanni er hér með þakkað fyrir að vekja athygli þingheims á þessu brýna máli.

Umdeild ákvörðun og vanhæfi kjörins fulltrúa gætu kostað Dalabyggð skildinginn
Sveitarfélagið Dalabyggð hefur verið dæmt til að greiða skólabílstjóra 800 þúsund krónur í miskabætur. Bílstjórinn var starfsmaður fyrirtækis sem tók að sér skólaakstur í sveitarfélaginu en sagði starfsmanninum upp vegna sjö ára ásökunar um kynferðislega áreitni. Þá var skaðabótaábyrgð Dalabyggðar í málinu viðurkennd.

Íslensk hlaða á topplista yfir hús ársins
Hlaða nokkur á Skarðsströnd í Dalasýslu er á meðal þeirra mannvirkja sem kemst á topplista erlends arkítektúrveftímarits yfir flottustu hús ársins.

Fella niður skólahald og herða heimsóknarreglur vegna útbreiðslu Covid
Skólahald í Auðarskóla í Dalabyggð hefur verið fellt niður út þessa viku og heimsóknarreglur á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Silfurtúni verið hertar, vegna útbreiðslu kórónuveirunnar í sveitarfélaginu.

Yfir 100 laxa holl í Laxá í Dölum
Eftir ansi rólegar vikur í Laxá í Dölum er eins og eitthvað hafi spyrnt við þeim löxum sem áttu eftir að ganga í ánna.

Mjöll bar þremur sprelllifandi kálfum
Sá óvenjulegur atburður átti sér stað í gær að kýrin Mjöll á bænum Miðskógi í Dalabyggð bar þremur kálfum, tveimur nautum og einni kvígu. Þríkelfingnum og móður þeirra heilsast vel.

Dæmdir í fangelsi vegna bílstuldar og líkamsárásar í Sælingsdal
Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi á föstudag tvo menn í fangelsi fyrir að hafa stolið bifreið í Reykhólasveit á síðasta ári. Annar mannanna, sem hafði verið sviptur ökuréttindum, ók bifreiðinni undir áhrifum áfengis og amfetamíns og valt hún þegar förinni var heitið suður Vestfjarðarveg við Klofningsveg.

Börnin nutu vafans og skólabílstjóri fær engar bætur
Héraðsdómur Vesturlands hefur sýknað Dalabyggð af kröfu manns um miska- og skaðabætur fyrir að hafa neitað honum um starf sem skólabílstjóri. Sveitarfélagið sendi verktakafyrirtæki sem annaðist aksturinn bréf þar sem tilkynnt var um þá ákvörðun að hafna því að maðurinn myndi sinna slíkum akstri.

Er ég kem heim í Búðardal
Ætli flestir íbúar þessa lands kannist ekki við þennan þekkta dægurlagatexta eftir Þorstein Eggertsson. En veistu hvar Búðardalur er? Búðardalur stendur við Hvammsfjörð, einn af innfjörðum Breiðafjarðar (stígvélið á Íslandskortinu).

Þverar veginn um Bröttubrekku
Vegurinn um Bröttubrekku er lokaður þar sem flutningabíll þverar nú veginn. Unnið er að losun.

Keyra í klukkustund til að kaupa í matinn
Ímyndið ykkur að engin verslun væri í Reykjavík og að borgarbúar þyrftu að keyra yfir fjallveg austur á Selfoss til að kaupa nauðsynjavörur í matinn. Þetta er sá veruleiki sem íbúar Reykhólasveitar búa við eftir að einu búðinni þar var lokað.

Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi við Heydalsveg
Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi við Heydalsveg þann 4. október var Halldór Erlendsson.

Banaslys við Heydalsveg
Karlmaður á sextugsaldri lést eftir að bifreið sem hann var í hafnaði utan vegar við Heydalsveg.

Horfði bjargarlaus upp á hvalinn drepast í flæðarmálinu
Allir hvalirnir nema tveir drápust í firðinum.

Einu matvöruverslun Reykhólasveitar lokað
Eigendur Hólabúðar á Reykhólum hafa tilkynnt að versluninni verði lokað um næstu mánaðamót. Jafnframt verður rekstri veitingastaðarins 380 Restaurant hætt. Fyrir íbúa Reykhóla þýðir þetta að 50 til 60 mínútna akstur verður í næstu búð til að kaupa í matinn.